24.3.2026 12:08

Draumaheimur utanríkisráðherra

Ráðherrann sér þarna tækifæri til að snúa umræðunni um ESB-aðild Íslands á hvolf. Það þurfi enga sérreglu í sjávarútvegsmálum fyrir Ísland því að þegar að þeim málaflokki komi sé Ísland ekki að ganga í ESB heldur ESB að ganga í Ísland.

Á forsíðu Morgunblaðsins í dag (24. mars) er frétt um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra meti það svo að í hugsanlegum aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið (ESB) sé líklegra að sambandið taki upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið en að Íslendingar þurfi að aðlaga sig sjávarútvegsstefnu ESB.

Utanríkisráðherra er með öðrum orðum þeirrar skoðunar að líklegra sé að ESB hverfi frá núverandi sjávarútvegsstefnu sinni en að íslensk stjórnvöld verði að laga sig að stefnu Evrópusambandsins. Þar ákveður meirihluti leyfilegt aflahámark og er aflanum síðan skipt milli ríkja sambandsins þannig að breyting á hámarksafla minnki ekki eða auki hlutfallslega hlutdeild hvers ríkis í honum.

Í fréttinni segir einnig að utanríkisráðherrann telji að með ESB-aðild Íslands myndi „fiskveiðikommissarinn“, eða embætti sjávarútvegsmálastjóra ESB, koma í hlut Íslendinga.

Ráðherrann getur ekki haft neitt annað fyrir sér um þetta efni en eigin ímyndun eða óskhyggju, þó segir í frétt Morgunblaðsins að hún hafi flutt þennan boðskap „á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða, sem haldinn var í utanríkisráðuneytinu“ síðdegis mánudaginn 16. mars.

Vitnar blaðið í þrjá fundargesti sem sögðu að ráðherrann hefði ekki sagt á hverju hún reisti þetta mat sitt. Má skilja á fréttinni að það væri reist á formlegum og óformlegum viðræðum ráðherrans við ráðamenn í Brussel. „Hún hefði látið fylgja að yrði þetta raunin myndi það eflaust velgja Norðmönnum undir uggum, sem henni hefði greinilega þótt skemmtileg tilhugsun,“ segir í blaðinu.

Þá segir að þeir sem hlýddu á ráðherrann á þessum árlega fundi með millilandaviðskiptaráðum teldu að þetta „hefði ekki verið í gamni mælt, hún [Þorgerður Katrín] teldi sig ljóslega hafa komist töluvert áleiðis varðandi aðildarviðræður við ESB“.

Því miður benda allar fréttir til þess frá því að POLITICO sagði 23. febrúar að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði hér í ágúst að stjórn aðildarferlisins hafi nú færst í hendur stækkunardeildar ESB í Brussel og þaðan sé ýtt undir að utanríkisráðherra Íslands segi það sem helst er talið auka líkur á velvild í garð ESB í kjörklefanum.

Screenshot-2026-03-24-at-12.06.29

Þeir sem telja utanríkisráðherra Íslands trú um að ESB falli frá eigin sjávarútvegsstefnu og taki upp fiskveiðistjórnun Íslendinga og feli svo íslenskum sjávarútvegsstjóra að ráða ferðinni til velgja Norðmönnum undir uggum vinna greinilega fyrir kaupinu sínu við að spinna vef upplýsingaóreiðu.

Ráðherrann sér þarna tækifæri til að snúa umræðunni um ESB-aðild Íslands á hvolf. Það þurfi enga sérreglu í sjávarútvegsmálum fyrir Ísland því að þegar að þeim málaflokki komi sé Ísland ekki að ganga í ESB heldur ESB að ganga í Ísland.

Vafalaust falla einhverjir fyrir þessu tali. Í Noregi kippa menn sér ekki upp við það, þeim finnst það þó ekki fyndið heldur hlægilegt. Og í Brussel hlægja menn einnig að einfeldni utanríkisráðherra Íslands.