Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Öll stjórn Landsvirkjunar var endurnýjuð vorið 2025. Nú hættir forstjórinn eftir 17 ár og vísar til ágreinings um stjórnarhætti. Í hverju fólst sá ágreiningur?
Skyndileg ákvörðun Harðar Arnarsonar um að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár vekur eðlilega mikla athygli. Hann tilkynnti starfsfólki fyrirtækisins ákvörðun sína fimmtudaginn 1. október og sagði ástæðuna meðal annars vera ágreining um stjórnarhætti.
Þessi orð beina athyglinni frá vangaveltum um einstök rekstrarmál eða arðgreiðslur og að samskiptum stjórnar og forstjóra.
Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur staðfest að stjórn og forstjóri hafi ekki verið sammála um allt. Hún segir Hörð hafa ákveðið að taka þetta skref „örlítið fyrr en ella“.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti Hörð skömmu áður en ákvörðunin var kynnt. Hún segist ekki kannast við að ágreiningur um arðgreiðslur hafi ráðið ferðinni og segir þær ekki hafa verið ræddar á fundi þeirra.
Eftir stendur þó skýringin sem Hörður sjálfur hefur nefnt: ágreiningur um stjórnarhætti.
Í því sambandi er ástæða til að rifja upp það sem gerðist á aðalfundi Landsvirkjunar 14. apríl 2025. Þá var ekki aðeins skipt um stjórnarformann eða einstaka stjórnarmenn. Allir fimm aðalmenn stjórnarinnar hurfu og fimm nýir tóku við.
Fjármála- og efnahagsráðherra gerði tillögu um nýju stjórnina. Enginn úr fyrri stjórn sat áfram. Þetta voru óvenju hrein stjórnarskipti. Þegar litið er yfir fyrri breytingar á stjórn Landsvirkjunar hefur að jafnaði verið einhver samfella milli stjórna, jafnvel þegar ríkisstjórnarskipti eða verulegar breytingar urðu á eignarhaldi fyrirtækisins.
Hörður Arnarson (mynd: mbl.is/Hallur Már).
Þegar sami forstjóri stýrir stóru fyrirtæki í 17 ár mótast óhjákvæmilega ákveðin verkaskipting milli hans og stjórnar. Forstjórinn býr yfir mikilli þekkingu, reynslu og tengslum og hefur mótað starfshætti fyrirtækisins um langt árabil. Ný stjórn kann að líta öðrum augum á þessa verkaskiptingu og vilja leggja meiri áherslu á eigið hlutverk og ábyrgð.
Í lögum um Landsvirkjun eru valdmörkin skýr að því leyti að stjórnin ræður forstjórann og ákveður laun hans og starfskjör. Stjórn og forstjóri fara með stjórn fyrirtækisins og stjórnin ber ábyrgð á fjármálum og rekstri þess.
Þarna getur því skapast ágreiningur án þess að nokkur þurfi að hafa brotið reglur eða brugðist skyldum sínum.
Stjórnarformaðurinn mótmælir því ekki að ágreiningur hafi verið fyrir hendi heldur segir að um hafi verið að ræða „hluti sem við vorum ekki sammála um“.
Ágreiningurinn er því ekki tilbúin skýring utanaðkomandi manna. Hörður hefur sjálfur vísað til stjórnarhátta og stjórnarformaðurinn staðfest að stjórn og forstjóri hafi ekki verið sammála um allt, þótt efni ágreiningsins hafi ekki verið skýrt.
Landsvirkjun er að fullu í eigu ríkisins og eitt verðmætasta fyrirtæki þjóðarinnar. Þegar forstjóri sem hefur stýrt fyrirtækinu í 17 ár lætur skyndilega af störfum og vísar til ágreinings um stjórnarhætti er eðlilegt að eigandinn og almenningur fái að vita meira um hvað þar liggur að baki.
Spurningin er ekki hvort Hörður Arnarson eða stjórn Landsvirkjunar hafi haft „rétt fyrir sér“. Til þess vitum við einfaldlega ekki nóg.
Hitt þarf að upplýsa: Í hverju fólst ágreiningurinn um stjórnarhætti og tengdist hann breyttri verkaskiptingu stjórnar og forstjóra eftir hreinu stjórnarskiptin vorið 2025?
Svarið við þeirri spurningu segir meira um starfslok Harðar en vangaveltur um arðgreiðslur eða önnur einstök mál.