Deilt um konungsmálverk
Þetta setur konungsmálverkið í miklu stærra samhengi og snertir strengi langt út fyrir Danmörku.
Ný opinber mynd af Friðriki X Danakonungi hefur valdið miklu fjaðrafoki í Danmörku. Cathrine Raben Davidsen listmálari vann að verkinu í rúm tvö ár. Það var afhjúpað 25. september og hangir nú í Riddarasal Frederiksborgarhallar við hlið mynda af öðrum konungum af Glücksborgarætt frá Kristjáni IX, sem sótti Ísland heim 1874, fyrstur konunga.
Friðrik stendur þar í dökkbláum hátíðarbúningi flotaforingja, með Fílaorðuna og Dannebrogsorðuna, fyrir framan grænt, draumkennt landslag. Myndin er 240 sentímetrar á hæð og 140 á breidd.
Málverkið umdeilfda.
Gagnrýnendur hafa verið mjög ósammála. Sumir spyrja hvort Friðrik líkist sjálfum sér, jafnvel hvort hann minni meira á Jóakim bróður sinn. Aðrir bera mikið lof á verkið og má þar nefna Holger Dahl gagnrýnanda Berlingske sem gefur málverkinu fimm stjörnur.
Þetta er einmitt eins og vera ber. Ef allir eru sammála um listaverk vekur það sjaldnast mikla umræðu.
Annað hefur hins vegar gerst. Cathrine Raben Davidsen hefur sjálf orðið skotmark á samfélagsmiðlum. Þar er ekki aðeins deilt um myndina heldur hæfni hennar, menntun og jafnvel hvort hún hafi fengið verkefnið vegna þess að hún er kona.
Pia Søltoft, prestur og fyrrverandi forstöðumaður Søren Kierkegaard-rannsóknarsetursins, skrifar athyglisverða grein um þetta á Altinget.dk. Hún viðurkennir að hafa hvorki hitt konunginn né séð málverkið í Riddarasalnum. Hún hefur aðeins séð eftirmyndir í blöðum og á netinu – eins og flestir þeirra sem kveða upp stóra dóma um verkið.
Søltoft vísar til danskrar útgáfu bókar Giuliano da Empoli, Rovdyrenes tid – Tími rándýranna – og segir framkomuna gagnvart listamanninum minna á rándýr sem ráðist á bráð sína.
Þetta setur konungsmálverkið í miklu stærra samhengi og snertir strengi langt út fyrir Danmörku.
Samfélagsmiðlar gera öllum kleift að gagnrýna allt og alla og það er í sjálfu sér gott. Menn þurfa ekki próf í listasögu til að segja hvort þeim líki málverk. Rétturinn til að láta í ljós skoðun sína leiðir þó ekki sjálfkrafa til þekkingar á viðfangsefninu.
Søltoft bendir líka á það sem er augljóst: Hefði aðeins verið óskað eftir nákvæmri eftirmynd af útliti konungs hefði mátt taka ljósmynd. Listamaður sem fær það verkefni að mála opinbera konungsmynd til að hanga um aldir í sögulegum sal gerir annað. Hann túlkar bæði manninn og embættið.
Í Riddarasalnum.
Raben Davidsen segir konunginn hafa veitt sér frjálsar hendur og ekki skipt sér af sköpunarvinnu sinni. Hún styðst við aldagamla hefð en notar eigið myndmál. Það er einmitt það sem kallar á umræðu um verkið.
Það er ánægjulegt að eitt málverk skuli enn geta vakið slíka athygli og umræður árið 2026, hvað sem mönnum finnst um hvort nef konungs sé of mjótt, annað augað sé skakkt eða bakgrunnurinn sé undarlegur.
Hitt er síður ánægjulegt að menn virðast æ oftar telja að skoðun á verki gefi þeim leyfi til að ráðast á þann sem skapaði það.
Virðum þennan boðskap: Það má deila um list án þess að breytast í rándýr.