Danir fagna Zelenskíj
Kjarni málsins er réttur smáríkja til að eiga sæti við borðið þegar fjallað er um framtíð þeirra. Landamæri Úkraínu og öryggisskipan Evrópu megi ekki verða skiptimynt í samningum stórvelda.
Það er aðdáunarvert hve fast Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, stendur að baki Volodymyr Zelenskíj forseta Úkraínu og þjóð hans í stríðinu við Rússa. Sé litið yfir framlag einstakra þjóða til Úkraínumanna standa Danir framar öllum öðrum og á þeim er enginn bilbugur.
Fánar Úkraínu og Danmerkur blakta í turni Kristjánsborgarhallar.
Zelenskíj ávarpar danska þingið í dag (11. nóvember) og er það einstakur atburður í sögu þess. Í gær voru þau saman í sal Kaupmannahafnarháskóla Zelenskíj og Frederiksen þar sem um 500 manns komu saman, að stærstum hluta námsmenn, sem risu á fætur og fögnuðu Úkraínuforseta með dynjandi lófataki.
Heimsókn Zelenskíjs til Kaupmannahafnar og fundur hans með forsætisráðherrum Norðurlanda að kvöldi 11. nóvember snúast bæði um áframhaldandi stuðning við Úkraínu og rétt smáríkja til að ráða eigin framtíð segir í grein Jyllandsposten um heimsóknina. Þar segir einnig að Norðurlönd og Pólland óttist að stærri ríki semji um öryggi Evrópu án þess að þau fái þar nokkru ráðið. Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, hafi varað við því að Vestur-Evrópuríki semji við Rússa fram hjá Austur-Evrópuríkjum.
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur telur að Evrópa eigi að tala undir merkjum ESB. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, er nefnd sem hugsanlegur málsvari. Innan ESB er þó tekist á um skiptingu kostnaðar við stuðninginn við Úkraínu.
Zelenskíj er reiðubúinn að ræða frystingu víglínunnar, friðarviðræður og öryggistryggingar en hafnar því að gefa Donbas eftir. Rök hans eru að ekki sé hægt að treysta Pútín og markmið Rússlands nái langt út fyrir þetta landsvæði. Frederiksen tekur undir það: Ef deilan snerist aðeins um Donbas, hvers vegna stunduðu Rússar þá fjölþátta hernað annars staðar í Evrópu? Hún vísar jafnframt til ásælni í Grænland og leggur áherslu á virðingu fyrir fullveldi ríkja.
Kjarni málsins er réttur smáríkja til að eiga sæti við borðið þegar fjallað er um framtíð þeirra. Landamæri Úkraínu og öryggisskipan Evrópu megi ekki verða skiptimynt í samningum stórvelda.
Mette Frederiksen gagnrýndi á dögunum þegar Alexander Stubb Finnlandsforseti og Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs ræddu við Vladimír Pútin Rússlandsforseta í 90 mínútur í síma. Taldi hún það til marks um að Evrópuríkin sýndu ekki nauðsynlega samstöðu. Kristrún Frostadóttir var ósammála danska forsætisráðherranum. Með fundinum í gærkvöldi vildi Frederiksen árétta að norrænu ríkin stæðu saman að baki Úkraínu þrátt fyrir þennan ágreining og að Zelenskíj væri meðal vina í Kaupmannahöfn.
Danska ríkissjónvarpið gerir heimsókninni rækileg skil en skilmerkilegar frásagnir þess í áranna rás og skýringar á gangi stríðsins í Úkraínu hafa örugglega auðveldað dönsku ríkisstjórninni og stjórnmálamönnum almennt að bila aldrei í stuðningi sínum við Úkraínu.
Hér var fyrir nokkru bent á að ýmis teikn væru á lofti um að viðræður um frið í Úkraínu væru að komast á nýtt stig. Það á að líta á heimsókn Zelenskíjs til Kaupmannahafnar í því ljósi. Rússar setjast aldrei til alvöruviðræðna ef þeir telja að stríð sundri norrænni eða vestrænni samstöðu.