26.9.2026 12:42

Dagstund í Pizzo

Við fórum nokkur úr MR-64-hópnum til smábæjarins Pizzo á strönd Kalabríu föstudaginn 25. september það rigni en stytti fljótt upp. Hér eru þrjár myndskreyttar minningar.

Við fórum nokkur úr MR-64-hópnum til smábæjarins Pizzo á strönd Kalabríu föstudaginn 25. september það rigni en stytti fljótt upp. Hér eru þrjár myndskreyttar minningar:

IMG_4157_1790424549986

Garibaldi-brunnurinn – 1866
Áður „Gamli brunnurinn“ – frá 15. öld.
Í ágúst 1860 fundu Garibaldi-liðarnir úr Orsini-sveitinni svalandi hressingu í járnríku vatni brunnsins, meðal gestrisins fólks sem tók þeim fagnandi og umvafði þá hlýju með hrópinu:
„Lifi Ítalía!“

Þetta stóð við þennan brunn í hjarta bæjarins og vísar til sameiningar Ítalíu og herferðar Giuseppe Garibaldis árið 1860. Garibaldi kom einmitt til Pizzo 27. ágúst 1860 á leið sinni norður eftir Kalabríu í átt að Napólí. Skiltið varðveitir því minningu um að menn úr liði hans hafi komið að þessum gamla brunni og fengið þar vatn og góðar móttökur bæjarbúa.

Það er líka skemmtilegt samhengi við Pizzo: bærinn tengist tveimur mjög ólíkum köflum í sameiningarsögu Ítalíu. Joachim Murat, konungur Napólí og mágur Napóleons, var tekinn af lífi í Pizzo árið 1815 eftir misheppnaða tilraun til að endurheimta ríki sitt. Aðeins 45 árum síðar komu menn Garibaldis hingað sem hluti af þeirri hreyfingu sem raunverulega leiddi til sameiningar Ítalíu árið 1861.

IMG_4164

Vindasafnarinn í Pizzo

Á göngu um Pizzo í Kalabríu blasti við þessi sjón. Hópur fólks iðkaði qi gong og fyrir ofan sat gegnsær mannvera, mótuð úr vírneti, kyrr og horfði til hafs.

Verkið heitir Il Collezionista di Venti – Vindasafnarinn. Það er eftir ítalska listamanninn Edoardo Tresoldi og var reist í Pizzo árið 2013 í tengslum við Mura Mura-listahátíðina. Þetta var eitt af fyrstu verkunum sem vöktu athygli á þeirri aðferð Tresoldis að móta manneskjur og síðar heilu byggingarnar úr málmneti.

Vindasafnarinn situr hátt yfir Tyrrenahafinu og snýr í átt að Eolíueyjum. Hann er um tveir metrar á hæð en virðist þó varla efniskenndur. Birtan, himinninn og landslagið sjást í gegnum hann. Vindurinn fer óhindraður um líkamann. Styttan breytist því eftir birtu, veðri og sjónarhorni; stundum verður hún skýr en stundum rennur hún næstum saman við umhverfið.

Nafnið gefur verkinu sérstaka merkingu. Maðurinn situr kyrr og „safnar“ vindunum af hafinu án þess að geta haldið þeim. Hann er hluti af landslaginu frekar en að standa utan þess.

Tilviljunin gerði sjónina enn áhrifameiri þennan dag. Fyrir neðan Vindasafnarann stóð qi gong-hópurinn og hreyfði sig hægt og samstillt. Qi gong er iðkun önduna, einbeitinga og mjúkra hreyfinga. Fyrir ofan situr gegnsæi maðurinn grafkyrr og lætur vindinn fara í gegnum sig.

Hreyfing og kyrrð, öndun og vindur birtust  þannig frá bæjartorginu í Pizzo.

IMG_4173

Þetta er frá Chiesetta di Piedigrotta í Pizzo í Kalabríu, afari sérstakri lítilli kirkju sem er að mestu höggvin beint inn í klettinn við sjóinn. Að baki er staðbundin saga og þjóðsaga.

Sagan segir að um miðja 17. öld hafi skip frá Napólí lent í ofsaveðri undan ströndinni við Pizzo. Skipverjar söfnuðust saman í káetu skipstjórans þar sem varðveitt var mynd af Madonnu di Piedigrotta. Þeir báðu Maríu mey um björgun og hétu því að ef þeir kæmust lífs af myndu þeir reisa henni kapellu á þeim stað þar sem þeir næðu landi.

Skipið sökk, en allir skipverjar björguðust á ströndinni. Með þeim rak einnig Maríumyndin og skipsbjallan, sem sögð er hafa verið frá 1632. Mennirnir efndu heitið: þeir grófu litla kapellu inn í klettinn rétt hjá staðnum þar sem þeir höfðu komist á land og komu Maríumyndinni þar fyrir.

Það er engin samtímaheimild sem sannar þessa sögu. 

Sagan fær síðan traustari sögulegan grunn á 19. öld. Um 1880 ákvað kaupmaðurinn Angelo Barone, sem rak litla verslun í miðbæ Pizzo, að helga sig kapellunni. Hann stækkaði hellinn með eigin höndum, gróf út tvö hliðarrými og hóf að höggva myndir og styttur úr berginu. Þær sýndu meðal annars líf Jesú og ýmsa dýrlinga.

Angelo vann að þessu nær alla ævi. Hann lést árið 1917, 99 ára að aldri. Þá tók sonur hans Alfonso Barone við verkinu og hélt því áfram í um fjóra áratugi. Þannig varð kirkjan smám saman að þeirri furðulegu blöndu af helli, kirkju og höggmyndasafni sem þú sérð nú.

Svo varð næstum hörmulegur endir á verkinu. Í byrjun sjöunda áratugarins urðu skemmdarverk í kirkjunni. Ungur maður komst þar inn með staf eða barefli og braut höfuð og limi af mörgum styttunum.

Þá kom þriðji maður Barone-fjölskyldunnar til sögunnar. Giorgio Barone, frændi Angelos og Alfonsos, hafði flutt til Kanada og orðið þekktur myndhöggvari. Þegar hann kom heim til Pizzo í heimsókn og sá eyðilegginguna ákvað hann að vera lengur en fyrirhugað var. Hann vann mánuðum saman að því að endurgera og lagfæra höggmyndirnar. Endurreisninni lauk árið 1968.

Giorgio Barone bætti samtímamönnum sínum í hóp dýrlinga í kirkjunni: Jóhannesi páfa 23. og John F. Kennedy Bandaríkjaforseta en vangamynd hans sést hér fyrir neðan.

IMG_4179