11.10.2026 10:37

Brýning Rubios

Í stað þess að setja sig í þessar evrópsku varnarstellingar ætti frekar að skoða málið frá sjónarhóli ungs, bandarísks stjórnmálamanns, sem stefnir að öllum líkindum að því að verða forsetaframbjóðandi.

Marco Rubio utanríkisráðherra var vafalaust með hugann við ræðu sína við rætur Akrópólis í Aþenu í ljósaskiptunum miðvikudaginn 7. október þegar hann dvaldist hér í 18 klukkustundir 5. og 6. október á leiðinni til Grikklands.

Ræðan, sem lesa má hér, snýst um upphaf og nauðsyn endurfæðingar siðmenningar vestursins. Hún hefur vakið verðskuldaða athygli austan hafs og vestan. Sitt sýnist hverjum eins og vera ber um snjallar ræður sem skerpa mat okkar á samtímanum.

Sumir bregðast þannig við að um sé að ræða enn eina ádrepu af hálfu Trump-stjórnarinnar í garð Evrópubúa sérstaklega. Ekki kemur á óvart að það sé gert því að margir álitsgjafar í álfunni setja sig strax í spor fórnarlambsins þegar höfðað er til vestrænna grunngilda af bandarískum ráðamönnum.

Í stað þess að setja sig í þessar evrópsku varnarstellingar ætti frekar að skoða málið frá sjónarhóli ungs, bandarísks stjórnmálamanns, sem stefnir að öllum líkindum að því að verða forsetaframbjóðandi repúblikana og arftaki Trumps eftir tvö ár.

Screenshot-2026-10-11-at-10.35.29Marco Rubio við Akrópólis.

Ræðan er ekki síður áminning til Bandaríkjamanna en allra annarra í vestrinu um að sofna ekki á verðinum gegn einræðis- og ofstækisöflunum sem vega að grunngildum frjálslyndra lýðræðisríkja vestursins. Í mínum huga snertir Rubio þarna sama streng og Anne Applebaum gerir í bók sinni Einræði hf.

Applebaum er vissulega enginn aðdáandi Trumps og hikar ekki við að gagnrýna hann harðlega. Hún er hins vegar einlægur talsmaður grunngilda vestrænnar siðmenningar og hvetur lýðræðisþjóðir vestursins til að reka af sér slyðruorðið.

Í ræðunni ber Rubio lof á Trump eins og eðlilegt er í ræðu ráðherra í stjórn hans. Lofið verður hins vegar holara eftir framgöngu Trumps í sömu vikunni og ræðan var flutt.

Því til staðfestingar má nefna þrennt: Í fyrsta lagi þá ákvörðun Trumps að semja um olíuviðskipti við Pútin í von um að lækkun á dísilolíu verði til þess að fylgi repúblikana meðal bænda og langflutningabílstjóra aukist í kosningum til þings í byrjun nóvember. Í öðru lagi kröfu Trumps um að Zelenskíj Úkraínuforseta verði vikið til hliðar vegna andstöðu hans við olíusamninginn við Pútin. Í þriðja lagi árásir Trumps á Norðmenn fyrir að veita sér ekki friðarverðlaun Nóbels.

Allt er þetta til minnkunar fyrir Bandaríkjaforseta og álitshnekkis fyrir Bandaríkin. Við þetta býr þó Rubio ásamt öðrum Bandaríkjamönnum í valdatíð Trumps. Tapi repúblikanar kosningunum og missi meirihluta á Bandaríkjaþingi verður nýjum meirihluta beitt af þunga gegn Trump,

Hvað sem því líður hljóta þeir sem sækjast eftir áhrifum í bandarískum stjórnmálum að líta til lengri tíma en markast af stjórnartíð Trumps. Það er tilgangur Rubios og hann velur vissulega verðugan stað fyrir ræðu sína.

Framtíðarsýn sinni um NATO lýsti Rubio með því að nefna fordæmalausan Grænlandssamninginn frá 22. september sem myndi „endurskapa norðurslóðir og efla öryggi alls Atlantshafsbandalagsins“. Öll Evrópa – og NATO og Bandaríkin – hefði orðið „öruggari, sterkari og tryggari fyrir vikið“.

Þarna talar ekki andstæðingur Evrópu eða NATO.