15.10.2026 12:21

Bókun 35 og röng tímaröð

Bókun 35 var málamiðlun í samningsviðræðum EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsins. Hún varð ekki til við lokaafgreiðslu málsins á alþingi eða vegna áskorunar til forseta Íslands.

Hér var á dögunum gerð athugasemd við fullyrðingu á samfélagsmiðli um að EES-samningurinn hefði verið samþykktur á Alþingi með minnsta mögulega meirihluta „vegna breyttrar innleiðingar bókunar 35“.

Ég sagðist ekki vita til hvaða heimilda væri vísað með þessari fullyrðingu. Lögin hefðu verið samþykkt með 33 atkvæðum gegn 23 en sex setið hjá.

Svo virðist sem þeim sem gera mikið veður út af breytingu á EES-lögunum frá 1993 sé mikið í mun að veita bókun 35 næsta þjóðsagnakennt vægi. Orðalag hennar hafi verið eitthvert lausnarráð sem gripið var til svo að EES-samningurinn yrði samþykktur á alþingi.

Á mbl.is birtist sagan í þeim búningi 15. október að ágreiningurinn um EES-samninginn hafi verið harður og rúmlega 34 þúsund manns krafist þjóðaratkvæðagreiðslu með því að hvetja Vigdísi Finnbogadóttur forseta til að synja lögunum staðfestingar. „Þá kom til bókun 35, málamiðlun sem var lykillinn að því að tryggja samræmi EES-reglna án þess að EFTA-ríkin framseldu löggjafarvald,“ segir í fréttinni.

Þarna fer tímaröðin úr skorðum. Bókun 35 var málamiðlun í samningsviðræðum EFTA-ríkjanna og Evrópubandalagsins. Hún varð ekki til við lokaafgreiðslu málsins á alþingi eða vegna áskorunar til forseta Íslands.

Stjornarradid-skjaldarmerkid-e1646140964848-561x423

EES-samningurinn var undirritaður 2. maí 1992 af Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra fyrir Íslands hönd. Bókun 35 var hluti hans. Þegar samningurinn kom til kasta alþingis gat þingið ekki einhliða breytt efni hans. Það gat hins vegar breytt frumvarpinu um hvernig staðið yrði að framkvæmd hans í íslenskum rétti.

Með lögunum var heimilað að fullgilda samninginn og meginmáli hans veitt lagagildi, auk tiltekinna annarra ákvæða. Lögin voru stutt, aðeins fimm greinar. Í 3. gr. var mælt fyrir um að skýra lög og reglur, að svo miklu leyti sem við ætti, til samræmis við EES-samninginn og reglur byggðar á honum. Ég minnist ekki sérstakra deilna um þá grein í utanríkismálanefnd.

Þegar safnað var undirskriftum til að skora á forsetann að synja lögunum staðfestingar hafði bókun 35 því legið fyrir mánuðum saman. Hvað sem einstakir undirritendur töldu um hana varð hún ekki til sem viðbragð við áskorun þeirra.

Þegar lögin voru lögð fyrir frú Vigdísi minnist ég þess að við þingmenn biðum spenntir í þinghúsinu eftir fréttum af ákvörðun hennar. Hún hafði óskað eftir fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóni Baldvin í Stjórnarráðshúsinu. Bar fundurinn með sér að mikil alvara væri á ferðum og ritaði forseti undir lögin við kertaljós.

Davíð hringdi í mig sem formann utanríkismálanefndar þingsins eftir fundinn og sagði mér, til mikils léttis, að forseti hefði staðfest lögin.

Þarna var komið að staðfestingu forseta á lögum sem alþingi hafði samþykkt. Samningsgerðinni var löngu lokið. Frásögn sem tengir tilurð bókunar 35 við þessa atburði ruglar saman þremur aðskildum þáttum: samningsgerðinni, meðferð frumvarpsins á alþingi og staðfestingu forseta.

Undir lok fréttarinnar segir að í sumar hafi mikið verið rætt um „sérlausnir“ og „undanþágur“ sem áttu víst að geta verið varanlegar. Síðan segir: „Bókun 35 er áminning um að jafnvel þriggja áratuga varnagli er ekki endilega varanlegur.“

Þarna er aftur ruglað saman bókuninni og íslensku lögunum um framkvæmd hennar. Bókun 35 er áfram óaðskiljanlegur hluti EES-samningsins. Nú er lagt til að breyta EES-lögunum til að tryggja að rétt innleiddar EES-reglur njóti þeirrar stöðu sem bókunin áskilur og einstaklingar og fyrirtæki geti notið réttinda sinna samkvæmt þeim.

Bókun 35 er því ekki að hverfa. Verkefnið er að tryggja að íslensk lög fullnægi skuldbindingunni sem alþingi samþykkti árið 1993.