7.2.2026 11:33

Beina flugið frá Kína

Ráðuneytið ætti að fylgja þessum orðum eftir með því að birta opinberlega öryggismat stjórnvalda á beinu flugi kínverska ríkisflugfélagsins hingað. Þetta mál snýr að miklu meiru en útgáfu áritana og sölu minjagripa.

Undanfarin misseri og frá því fyrir heimsfaraldurinn hefur Morgunblaðið flutt jákvæðar fréttir um fyrirhugað beint flug milli Kína og Íslands. Í blaðinu í dag (7. febrúar) birtist enn ein fréttin í þessum dúr. Þar er ýtt undir miklar væntingar tengdar slíku flugi á vegum kínverska ríkisflugfélagsins, Air China.

Vissulega yrðu það tíðindi langt út fyrir Ísland ef Air China hæfi beint flug til landsins í ljósi þeirra evrópsku borga sem flogið er til núna. Flugfélagið er það sem á ensku er kallað national flag carrier Kína, sjálft þjóðarflugfélagið. Það hlítir ákvörðunum og forystu kínversku ríkisstjórnarinnar og er mjög samþætt Kommúnistaflokki Kína sem fer alfarið með stjórn kínverska alþýðuhersins.

Í Morgunblaðinu í dag segir Jökull Gíslason, formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins (KÍM), að heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta til Kína í október í fyrra hafi eflaust átt þátt í því að hugmyndir um beina flugtengingu til Íslands voru endurvaktar. „Halla stóð sig mjög vel og um það talað hvað heimsóknin var vel heppnuð og að hún hafi aukið vinskapinn á milli þjóðanna,“ segir Jökull.

Þarna er með öðrum orðum gefið til kynna að það hafi verið ákveðið á æðstu stöðum Kína, jafnvel eftir samtal Höllu við sjálfan alræðisherrann Xi Jinping forseta, að Air China skyldi fljúga til Íslands. Nýverið hrifsaði Xi öll völd yfir kínverska alþýðuhernum í sínar hendur. Velta sérfræðingar í Kínafræðum um heim allan fyrir sér hvað í valdatökunni felist og eru margir þeirrar skoðunar að hún sé ekki í þágu friðar.

Í fréttum undanfarinna ára hefur komið fram að starfsmenn ISAVIA hafi unnið að því með Kínverjum að koma á beina fluginu. Þá hafa einnig birst jákvæð viðtöl við embættismenn utanríkisráðuneytisins um beina flugið og miðað við viðtöl við sendiherra Íslands í Kína er hann talsmaður beina flugsins.

18xp-china-flight-mhkb-videoSixteenByNine3000

Fyrir alþingi liggur frumvarp til laga frá utanríkisráðherra um að utanríkisráðuneytið skuli fara með alla verkkeðjuna við vegabréfsáritanir inn á Schengen-svæðið.

Þetta er á skjön við allar meginreglur sem gilda almennt um útgáfu slíkra áritana og aðeins til marks um landvinningarstefnu ráðuneytisins innan stjórnarráðsins. Ber ráðuneytið fyrir sig að þetta sé nauðsynlegt til aukinnar tekjuöflunar fyrir ríkið, áritunum muni fjölga svo mikið undir forsjá þess.

Í nýsamþykktri stefnu um varnar- og öryggismál er lögð áhersla á að auka getu íslenska stjórnkerfisins til að greina með „virkum og heildstæðum hætti þau gögn sem safnað er á Íslandi og geta styrkt stöðu- og ástandsvitund stjórnvalda jafnt sem bandalagsríkja, svo sem hvað varðar hugsanlega ógn af hálfu erlendra ríkja, umferð sjófara, flugumferð, netárásir, njósnir og aðrar fjandsamlegar aðgerðir. Þetta er sérstaklega mikilvægt vegna margvíslegra fjölþáttaaðgerða þar sem beinlínis er skákað í skjóli leyndar,“ eins og segir í greinargerð utanríkisráðuneytisins.

Ráðuneytið ætti að fylgja þessum orðum eftir með því að birta opinberlega öryggismat stjórnvalda á beinu flugi kínverska ríkisflugfélagsins hingað. Þetta mál snýr að miklu meiru en útgáfu áritana og sölu minjagripa.