Andrew dreifir skjölum
Eftir að þetta augljósa ranghermi um íslenskan viðmælanda Andrews í Davos birtist vafðist fyrir ýmsum fjölmiðlamönnum hér að átta sig á hver hann hefði verið.
Í gær var sagt frá því hér að bréfaskipti af hálfu Andrews, þáverandi hertoga af York og viðskiptasendiherra Breta, til breska fjármálaráðuneytisins hefðu leitt til þess að hann fékk minnisblað um stöðu Icesave-deilunnar milli breskra og íslenskra stjórnvalda frá ráðuneytinu 15. febrúar 2010. Tveimur klukkustundum eftir að það barst framsendi hann það til vinar síns, Joanthans Rowland, fyrrv. forstjóra Banque Havilland sem keypti Kaupthing Bank Luxembourg S.A. sumarið 2009.
Þegar sagt var frá kaupunum kom fram að Banque Havilland væri í eigu Rowland-fjölskyldunnar. Hún hefði verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu í um 45 ár og m.a. sinnt fjárfestingarráðgjöf í gegnum fyrirtæki sitt Blackfish Group. Með þessum viðskiptum tæki fjölskyldan markvisst skref í uppbyggingu Blackfish Group sem þegar hefði víðtæka reynslu á þessu sviði fjármálaumsýslu.
Sömu dagana og Andrew safnaði þessum upplýsingum um fjármálastöðuna á Íslandi birti Viðskiptablaðið frétt (18. febrúar 2010) um að þrotabú Baugs ætlaði að stefna Banque Havilland, arftaka Kaupþings í Lúxemborg, og krefjast riftunar á niðurgreiðslum á lánum til eigenda 1998 ehf., fyrrum eiganda Haga.
The Telegraph birtir þessa mynd af tölvubréfi Andrews til vinar síns:
Amanda sem þarna er nefnd er ritari Andrews. Með orðunum democratic process kann að vera vísað til þess að gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana hér 6. mars 2010.
Í orðsendingu ritara Andrews til fjármálaráðuneytisins segir að hann hafi hitt forsætisráðherra Íslands í Davos í janúar 2010 og vilji þess vegna fá vitneskju um stöðu mála á Íslandi.
Þarna er farið með rangt mál. Jóhanna Sigurðardóttir var forsætisráðherra hér á þessum tíma og hún fór aldrei á fundi í Davos með stjórnmálamönnum, fjársýslumönnum, fjölmiðlamönnum og alls konar fólki sem taldi sig eiga erindi þangað og fékk náð fyrir augum ráðstefnuhaldara, stjórnenda World Economic Forum (WEF).
Eftir að þetta augljósa ranghermi um íslenskan viðmælanda Andrews í Davos birtist vafðist fyrir ýmsum fjölmiðlamönnum hér að átta sig á hver hann hefði verið. Fréttastofa ríkisútvarpsins bjó það meðal annars til að Geir H. Haarde hefði verið forsætisráðherra á þessum tíma en hann lét af embættinu um það bil réttu ári áður. Fréttin með þessu rugli var ekki leiðrétt fyrr en eftir nokkrar klukkustundir og enn stóð nafn Geirs í enskum texta fréttastofunnar á ruv.is laugardaginn 21. febrúar.
Í frétt í Morgunblaðinu sagði um þetta í frétt föstudaginn 20. febrúar: „Aflaði ritari prinsins upplýsinganna frá breska fjármálaráðuneytinu undir því yfirskini að hann hefði rætt IceSave-misklíðina við fjármálaráðherra Íslands á Davos-ráðstefnunni, á þeim tíma Jóhönnu Sigurðardóttur, sem ekki sótti þó ráðstefnuna.“
Þarna er meira að segja „fjármálaráðherra Íslands“ allt í einu nefndur til sögunnar en Steingrímur J. Sigfússon gegndi þá því embætti. Hann fór aldrei til Davos en það gerði hins vegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Framhald.