12.8.2026 9:57

Almyrkvi þá og nú

Varla hefur mig órað fyrir því þennan dag fyrir 72 árum að ég myndi upplifa almyrkva á sólu öðru sinni á ævi minni en árið 1954 hafði hann ekki orðið hér síðan 1727 og árið 2026 var í órafjarlægð.

Almyrkvinn á sólu 30. júní 1954 var einn stærsti vísinda- og samfélagsatburður áratugarins á Íslandi, en þetta var fyrsti almyrkvi sem sást frá Íslandi síðan árið 1727.

Ég var á tíunda ári þegar þetta var og dvöl minni í sveit norður á Reynistað í Skagafirði hefur greinilega verið frestað þetta sumar því að ég minnist ferðar með foreldrum mínum á sjávarströnd á Suðurlandi þennan dag.

Skuggi tunglsins gekk yfir Suðvestur- og Suðurlandið. Bæði Reykjavík, Snæfellsnes, Suðurland og Vestmannaeyjar voru á belti almyrkvans.

Faðir minn var dóms- og menntamálaráðherra á þessu ári og af fréttum má ráða að mikið hafi hvílt á honum og ráðuneytum hans við undirbúning vegna viðburðarins.

Ferðir og mælingar vísindamanna frá Bandaríkjunum og Evrópu kröfðust leyfa og aðstöðu hér á landi. Mikil umræða var í aðdraganda sólmyrkvans um nauðsyn þess að vernda sjón landsmanna og menntamálaráðuneytið og aðrir opinberir aðilar gáfu út leiðbeiningar og viðvaranir um að horfa ekki í sólina án viðeigandi hlífðarglerja.

Faðir minn notaði mikið diktafón. Hann las inn á spólur og ritarar skráðu textann af þeim. Spólurnar voru dökk-fjólubláar og mátti sjá votta fyrir sólu væri litið í gegnum þær. Ég man að við vorum með slíkar spólur þegar við horfðum til sólar á sandströndinni, líklega í Landeyjunum í nágrenni Vestmannaeyja.

Screenshot-2026-08-12-at-09.52.05

Í óljósri minningu er að þarna hafi verið mannfjöldi en almenn bílaeign var ekki mikil á þessum árum og líklegt að um skipulagðar sætaferðir hafi verið að ræða.

Sólmyrkvinn 30. júní 1954 var einmitt sérstaklega minnisstæður í Landeyjunum en Suðurland var á besta stað á belti almyrkvans og ólíkt Reykjavík var veður þar með ágætum.

Þegar skýjahula skyggði á sólina í Reykjavík og á Suðvesturlandi var heiðskírt eða skýjalítið í Landeyjum og víðast hvar á Rangárvöllum og í Mýrdal. Íbúar í Landeyjum fengu því fullkomið, óhindrað útsýni yfir almyrkvann þegar tunglið huldi sólina alveg í tæpar tvær mínútur.

Síðar lýsti fólk því hvernig bjartur sumarmiðdagur breyttist í rökkur, hitastig féll snögglega og skepnur á túnum og í haga urðu órólegar og leituðu heim eða til hvíldar eins og nótt væri komin.

Í fréttum sagði að bændur og búalið hefðu fylgt leiðbeiningum um öryggi og fylgst með sólinni í gegnum reykta glerbúta eða sérstök hlífðargleraugu sem höfðu verið seld og send um sveitirnar.

Varla hefur mig órað fyrir því þennan dag fyrir 72 árum að ég myndi upplifa almyrkva á sólu öðru sinni á ævi minni en árið 1954 hafði hann ekki orðið hér síðan 1727 og árið 2026 var í órafjarlægð.

Enginn veit sína ævina fyrr en öll er og nú er bara að vona að það sjáist til sólar þegar byrjar að draga fyrir hana klukkan 16.45 en 17.48 verður almyrkvinn á Seltjarnarnesi þar sem okkur hefur verið boðið að fylgjast með honum.