23.11.2026 14:05

Almannahagsmunir og 14 m.kr. í óljósa ráðgjöf

Þorgerður Katrín hefur sjálf gert greinarmun á almannahagsmunum og sérhagsmunum að pólitísku baráttumáli. Hún á að gera ítarlega grein fyrir greiðslunum til ráðgjafans.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Viðreisn nú berjast undir nýju merki almannahagsmuna í stað sérhagsmuna. Í því ljósi má skoða hvernig hún stóð að ráðningu pólitísks ráðgjafa vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Páll Vilhjálmsson lýsir því á bloggsíðu sinni í dag (23. nóvember) hvernig utanríkisráðuneytið samdi við Heiðu Kristínu Helgadóttur um ráðgjöf fyrir ráðherrann. Samningurinn var undirritaður 4. mars 2026 og tók gildi við undirritun. Fyrsti reikningur Heiðu Kristínar var hins vegar dagsettur 1. mars, þremur dögum áður.

Föstudaginn 6. mars, tveimur dögum eftir undirritun samningsins, var tilkynnt að ríkisstjórnin hefði ákveðið að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni til 29. ágúst 2026. Í stjórnarsáttmálanum var árið 2027 nefnt. Þingsályktunartillaga um atkvæðagreiðsluna var lögð fram 9. mars en samþykkt í lok maí.

Samkvæmt frásögn Páls sýna tölvupóstar frá febrúar samskipti Heiðu Kristínar við Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóra um orðalag verksamningsins. Gögnin sem Páll lýsir bera ekki með sér vinnu við verkefni í febrúar sem skýrðu reikning dagsettan 1. mars. Ráðuneytið þarf að skýra þetta misræmi.

Á heimasíðu ráðuneytisins var ráðningin sögð vegna undirbúnings þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Reikningar ráðgjafans sýna hins vegar að verkefnin hafi meðal annars falist í ráðgjöf, ritstörfum og ræðuskrifum fyrir utanríkisráðherra.

Screenshot-2026-11-23-at-14.02.21Heiða Krstín og Þorgerður Katrín (samsett mynd, frettin.is).

Á Alþingi hefur verið bent á að Heiða Kristín hafi einnig lýst aðstoð við þingflokk Viðreisnar og pólitískum samtölum sem hluta starfa sinna. Hvaða verkefni voru unnin fyrir ráðuneytið og hver, ef einhver, fyrir stjórnmálaflokkinn?

Eftir ósigur Viðreisnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefur Jón Gnarr yfirgefið þingflokk flokksins. Hann hefur meðal annars gagnrýnt að hafa ekki verið hafður með í ráðum þegar dagsetning atkvæðagreiðslunnar var ákveðin og lýst því að fámennur hópur stjórni flokknum. Heiða Kristín var kosningastjóri Besta flokksins þegar Jón Gnarr leiddi hann til sigurs í Reykjavík árið 2010.

Fyrir ráðgjöf Heiðu Kristínar var upphaflega samið um 10,5 milljónir króna. Greiðslurnar urðu hins vegar 14 milljónir eftir að ráðherra samþykkti munnlega viðbótarþóknun að fjárhæð 3,5 milljónir. Samningurinn var við félag í eigu Heiðu Kristínar og eiginmanns hennar, sem áður hafði verið aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar.

Ráðherra hefur bent á að ekki hafi verið ráðinn annar aðstoðarmaður meðan á þessu stóð og því hafi útgjöld ríkissjóðs ekki aukist. Þetta skýrir ekki hvers vegna viðbótargreiðslan var samþykkt munnlega eða hvernig tryggt var að opinbert fé væri eingöngu notað til verkefna ráðuneytisins.

Þorgerður Katrín hefur sjálf gert greinarmun á almannahagsmunum og sérhagsmunum að pólitísku baráttumáli. Þá er eðlilegt að hún geri ítarlega grein fyrir verkefnum ráðgjafans, greiðslunum og því hvernig skil voru gerð milli ráðuneytisstarfa og flokkspólitískra hagsmuna.

Almannahagsmunir verða ekki tryggðir með yfirlýsingum einum saman. Þeir krefjast gagnsæis við ráðstöfun opinbers fjár, ekki síst þegar ráðherra kaupir ráðgjöf af nánum pólitískum samherja.