31.10.2026 10:43

Áhrif tímarita lifa

Fyrsta tölublaði endurvakins Stefnis hefur verið dreift víða. Fjölmargir leggja efni til blaðsins og umbrot þess er líflegt með ljósmyndum af mörgu fólki auk auglýsinga.

Gildi tímarita verður ekki mælt í eintakafjölda einum. Þýski heimspekingurinn og kenningasmiðurinn Jürgen Habermas, sem hafði víðtæk áhrif á rannsóknir á lýðræði, fjölmiðlum og opinberri umræðu, lýsti í bók sinni Strukturwandel der Öffentlichkeit (1962) hvernig tímarit áttu þátt í að skapa vettvang þar sem borgarar ræddu sameiginleg málefni og veittu valdhöfum gagnrýnið aðhald.

Í greiningu hans tengdust skrif í tímaritum samræðum á kaffihúsum og í lestrarfélögum; gagnrýnin umræða um bókmenntir varð jafnframt undirbúningur að pólitískri umræðu.

Sé þessi hugsun heimfærð á gildi tímarita felst það ekki aðeins í fjölda þeirra sem lesa heldur einnig í umræðunni sem lesturinn kveikir, hugmyndunum sem aðrir taka upp og áhrifunum sem þær hafa utan upphaflegs lesendahóps. Fá eintök geta þannig orðið upphaf að víðtækri umræðu.

IMG_4278Reykjavík að morgni 31. október 2026.

Sögu tímaritsins Stefnis má rekja til ársins 1929, þegar Magnús Jónsson guðfræðiprófessor hóf útgáfu samnefnds rits um þjóðmál frá sjónarhóli einstaklingsframtaks og athafnafrelsis. Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður þetta sama ár með sömu hugsjónir að leiðarljósi. Stefnir kom út í upprunalegri mynd til ársins 1934.

Samband ungra sjálfstæðismanna hóf síðan útgáfu Stefnis árið 1950. Á næstu áratugum var ritið vettvangur umræðu um stjórnmál, bókmenntir og menningu, þar sem pólitísk skrif stóðu samhliða sögulegu og menningarlegu efni. Eftir aldamótin dró úr útgáfunni og hún lagðist að lokum af. Nú í október 2026 endurvakti Samband ungra sjálfstæðismanna Stefni – tímarit um þjóðmál og menningarmál undir ritstjórn Kjartans Leifs Sigurðssonar.

Fyrsta tölublaði endurvakins Stefnis hefur verið dreift víða. Fjölmargir leggja efni til blaðsins og umbrot þess er líflegt með ljósmyndum af mörgu fólki auk auglýsinga. Við sem höfum í áranna rás komið að útgáfu tímarita vitum að það kostar mikla vinnu og tíma auk hugmyndaflugs að halda útgáfunni á floti.

Í kringum tímarit myndast gjarnan hópur manna sem verður eftirminnilegur fyrir áhrif sín á samtímann. Nægir þar að nefna Fjölnismenn frá 19. öld, þá sem stóðu að Birtingi um miðja síðustu öld og hópinn sem endurreisti Eimreiðina á síðari helmingi aldarinnar. Dregin hefur verið upp með öllu óréttmæt ógnarmynd af Eimreiðarhópnum af andstæðingum hans. Sú athygli sem hópurinn vekur enn sýnir hve lengi áhrifa tímarits og aðstandenda þess gætir.

Tímaritið Þjóðmál hóf göngu sína haustið 2005 á vegum Bókafélagsins Uglu undir ritstjórn Jakobs F. Ásgeirssonar sem lýsti ritstjórnarstefnunni með orðunum „frelsi og hæfilegt íhald“. Þar komu saman höfundar úr stjórnmálum, fræðasamfélagi og menningarlífi. Óli Björn Kárason tók síðar við ritstjórninni og Gísli Freyr Valdórsson árið 2017. Undir hans forystu þróaðist fjölmiðlun undir heitinu Þjóðmál frá útgáfu tímarits yfir í hlaðvarp sem hlotið hefur miklar vinsældir auk þess að standa fyrir mannamótum af ýmsum toga.

Talað orð og prentað gegna hvort sínu hlutverki. Tímarit gefur svigrúm til að þróa hugsun, setja fram rök og varðveita hvort tveggja til síðari lestrar og umræðu. Þar á lýsing Habermas enn við. Endurvakning Stefnis er því fagnaðarefni. Gildi þess ræðst ekki af því hve mörgum eintökum er dreift heldur af hugmyndunum sem þar birtast og umræðunni sem þær vekja.