5.6.2025 11:02

Aflinn hverfur - qi gong lifir

Í gær (4. júní) urðu þau þáttaskil í sögu qi gong-iðkunar á Íslandi að við sem höfum staðið að Aflinum, félagi qi gong iðkenda á Íslandi, ákváðum á 19. aðalfundi félagsins að afskrá það og breyta þannig formlegri umgjörð starfs okkar.

Í gær (4. júní) urðu þau þáttaskil í sögu qi gong-iðkunar á Íslandi að við sem höfum staðið að Aflinum, félagi qi gong iðkenda á Íslandi, ákváðum á 19. aðalfundi félagsins að afskrá það og breyta þannig formlegri umgjörð starfs okkar.

Félagið var stofnað 1. júní 2002. Að morgni þess dags hittust 47 iðkendur qi gong undir forystu Gunnars Eyjólfssonar leikara í Skautahöllinni í Laugardal. Þar æfðum við í tæpa klukkustund en fórum síðan í Café Flóru í Grasagarðinum og stofnuðum Aflinn til að sinna hag þeirra sem hefðu hug á að stunda qi gong hér á landi.

Með félagsheitinu Aflinn var vísað til eldstæðis og þess að járnsmiður gætti þess að neistinn í aflinum slokknaði aldrei og að tilgangur félagsins væri að stuðla að kynningu á qi gong og efla samstöðu iðkenda á Íslandi.

13.06.2005Fyrsta aðalstjórn Aflsins í Café Floru í Grasagarðinum í Laugardal, 1. júní 2002: Guðni Hannesson gjaldkeri, Gunnar Eyjólfsson heiðursforseti, Viðar H. Eiríksson ritari og Björn Bjarnason formaður.

Stofnfundinn sátu 47 stofnfélagar og var stjórn félagsins kjörin og hana skipuðu: Björn Bjarnason formaður, Viðar H. Eiríksson ritari, Guðni Hannesson gjaldkeri. Varastjórn: Kristbjörg Þ. Kjeld varaformaður, Ragnheiður Steindórsdóttir meðstjórnandi og Þórður Þorkelsson meðstjórnandi. Skoðunarmenn reikninga: Gunnar Zoega og Þórður Þorkelsson. Heiðursforseti: Gunnar Eyjólfsson.

Við Viðar höfum setið í stjórn félagsins frá upphafi en undanfarin ár hefur Sigurður Örn Sigurðarson verið gjaldkeri. Af þeim sem voru í upphaflegu stjórninni sat Kristbjörn Þ. Kjeld leikkona aðalfundinn í gær.

Adalfundur-04.06.2025-Frá slitafundi Aflsins 4. júní 2025: Viðar H. Eiríksson ritari og Björn Bjarnason formaður. Fundurinn var í kaffistofunni í Mörkinni, Suðurlandsbraut 66. 

Í 23 ár sátum við Viðar H. Eiríksson ritari saman í stjórn félagsins. Hefur Viðar haldið skipulagi og öllum þráðum félagsins saman. Nokkrir hafa verið gjaldkerar og nú síðast Sigurður Örn Sigurðarson. Félagið var skuldlaust.

Við í stjórninni töldum að félagið þjónaði ekki sama tilgangi og í upphafi. Það hefði getið af sér þrjá meginhópa sem æfðu Gunnarsæfingarnar svonefndu, í Mörkinni í Reykjavík, Sjálandsskóla í Garðabæ og húsnæði eldri borgara í Hafnarfirði. Hóparnir eru sjálfsprottnir og ráða sér sjálfir.

Frá upphafi hefur þeirri reglu verið fylgt að auglýsa ekki félagið eða qi gong æfingar á þess vegum opinberlega og ekki hefur heldur verið innheimt þátttökugjald af þeim sem æfingarnar stunda undir þess merkjum.

Nú hefur qi gong skotið rótum utan vébanda félagsins og með annars konar æfingakerfum. Sú þróun fellur vel að því sem rætt var við stofnun félagsins og að það myndi helga sig Gunnarsæfingunum. Þær eru 40 mínútna æfingakerfi sem Gunnar Eyjólfsson þróaði og erum við mörg sem höfum lagt stund á æfingarnar nokkrum sinnum í viku í meira en 30 ár eða frá því að við Gunnar tókum höndum saman um þróun kerfisins og kynningu á því.

Nú töldum við Viðar auðveldara að leggja félagið niður af virkri stjórn en láta það lenda í undandrætti og verða að lokum til vandræða og leiðinda ef formfestu í kringum félagið yrði ekki gætt. Vildum við skilja við félagið af fullri sæmd og meðan heilsa okkar og kraftar leyfðu. Tillagan var samþykkt einróma á aðalfundinum.

Qi gong lifir áfram góðu lífi á Íslandi þótt Aflinn hverfi.