21.11.2026 10:04

Að bjóða og borga

Íslensk stjórnvöld hafa einfaldlega ekki leyfi til að sér höndum á sama tíma og bandamenn auka viðbúnað sinn. Enn síður geta þau skert starfsemi landhelgisgæslunnar.

Á sama tíma og bandamenn Íslands endurskipuleggja varnir Norður-Atlantshafs og norðurslóða blasir við að landhelgisgæslan þurfi að skerða starfsemi sína vegna fjárskorts. Þetta er sú mótsögn sem lýst er í Morgunblaðinu laugardaginn 21. nóvember.

Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, forstöðumaður hugveitunnar Varðar, rifjar upp hvernig hugmynd um alþjóðlega björgunarmiðstöð á Íslandi rann út í sandinn fyrir um áratug. Bandamenn sýndu áhuga á samstarfi en vildu ekki leggja til búnað og mannafla og greiða jafnframt fyrir íslenska aðstöðu. Íslensk stjórnvöld voru ekki tilbúin að leggja fram nauðsynlegt fjármagn.

Kristinn nefnir grein sína Ég býð – þú borgar. Þar er lýst viðhorfi sem hefur alltof lengi einkennt íslenska umræðu um öryggismál. Við teljum að vegna legu landsins og mikilvægis þess fyrir varnir bandamanna eigi þeir að sjá um varnirnar, framkvæmdir og greiða reikninginn.

Þessi hugsunarháttur er úreltur.

1668125Starfsmenn landhelgisgæslu og sérsveitar lögreglunnar búa sig undir aðgerðir í þyrlu á hafi úti (mbl.is/Árni Sæberg).

Á árinu 2026 hefur NATO tekið mikilvæg skref til að efla varnir norðurvængsins. Norðurslóðavörslan, Arctic Sentry, hefur hafist undir stjórn Norfolk-herstjórnarinnar, ný ómönnuð eftirlitskerfi eru prófuð við Ísland, Bretar hafa tekið forystu um aukið flotasamstarf JEF-ríkjanna og Norðurlöndin undirbúa nýjan varnarsamning. Hernaðaruppbygging á Grænlandi eykur jafnframt mikilvægi íslenskra flugvalla og hafna.

Á sama tíma segir Georg Kr. Lárusson, forstjóri landhelgisgæslunnar, að stofnunin horfi fram á um 900 milljóna króna skerðingu fjárheimilda á næsta ári. Hún geri aðeins út eitt varðskip í senn og skorti fjórðu björgunarþyrluna. Með henni mætti auka þann tíma sem tvær þyrlur eru samtímis tilbúnar til útkalls úr 65% í 90%.

Þetta eru ekki óskir um óþarfa útgjöld. Hér er rætt um björgun mannslífa, öryggi sjófarenda og getu Íslands til að standa undir skyldum sínum gagnvart bandamönnum.

Georg bendir jafnframt á að hlutverk landhelgisgæslunnar í öryggis- og varnarmálum þurfi að vera skýrt í lögum. Nú ráðist það af eins árs þjónustusamningi við utanríkisráðuneytið. Slíkt fyrirkomulag er óviðunandi þegar stofnunin þarf að skipuleggja verkefni sín mörg ár fram í tímann.

Alþingi samþykkti í febrúar nýja stefnu í varnar- og öryggismálum þar sem boðuð var styrking stofnanaumgjarðar, ábyrgðar og samhæfingar. Hvernig samræmist það fyrirhuguðum niðurskurði hjá þeirri stofnun sem gegnir lykilhlutverki við framkvæmd varnartengdra verkefna?

Íslensk stjórnvöld hafa einfaldlega ekki leyfi til að sér höndum á sama tíma og bandamenn auka viðbúnað sinn. Enn síður geta þau skert starfsemi landhelgisgæslunnar og samt ætlast til þess að Ísland verði virkur og trúverðugur þátttakandi í nýju varnarsamstarfi.

Ríkisstjórnin verður að tryggja landhelgisgæslunni fjárveitingar og skýrt lögbundið hlutverk. Það er ekki boðlegt að samþykkja aukna ábyrgð Íslands á alþjóðavettvangi en neita að greiða fyrir framkvæmd hennar heima fyrir.