Ábyrgir sjálfstæðismenn
Það sem einkennir allar ákvarðanir sjálfstæðismanna sem hér hafa verið nefndar er ábyrgð, frjálslynt raunsæi og fordómalaus virðing fyrir lýðræðislegum leikreglum.
Spennandi hefur verið að fylgjast með fréttum af myndun meirihluta á höfuðborgarsvæðinu frá Reykjanesbæ til Mosfellsbæjar.
Í Reykjanesbæ myndaði ritari Sjálfstæðisflokksins og þingmaður meirihluta með Miðflokknum. Oddviti Sjálfstæðisflokksins verður bæjarstjóri.
Í Hafnarfirði myndaði Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta með Viðreisn og Samfylkingu og hefur fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins verið ráðinn bæjarstjóri.
Í Reykjavík myndaði Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokki. Oddviti Sjálfstæðisflokksins verður borgarstjóri.
Í Mosfellsbæ hafa verið meirihlutaviðræður á milli Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar.
Í Garðabæ, Kópavogi og á Seltjarnarnesi hefur Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta.
Af þessu yfirliti verður ekki dregin sú ályktun að sjálfstæðismenn beiti útilokunaraðferð við val á samstarfsflokkum. Þeim ber sem stærsta flokknum að hafa forystu um að bæjarfélögum sé stjórnað af ábyrgð. Það ræðst einfaldlega af raunsæju mati oddvita og fulltrúa flokksins á hverjum stað hvaða leið er valin við myndun meirihluta.
Fengið af Facebook - oddvitar nýs meirihluta í Reykjavík.
Listinn sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn verður með æðsta stjórnanda í öllum þessum bæjarfélögum. Í Reykjavík hefur oddviti sjálfstæðismanna og verðandi borgarstjóri boðið oddvita Miðflokksins í borginni formennsku í stjórn öflugasta orkufyrirtækisins í þessum langfjölmennasta hluta landsins. Formannsstaða í Orkuveitu Reykjavíkur í höndum borgarfulltrúa er mikil áhrifastaða.
Það stenst einfaldlega ekki að lýsa stöðu Miðflokksins í þessari mynd á þann veg að hann sé eitthvert fórnarlamb eða að níðst sé á flokknum. Öllum er ljóst að hann náði góðum árangri í Reykjavík en að flokkurinn eigi einhverja hönk upp í bakið á Sjálfstæðisflokknum eða Hildi Björnsdóttur verðandi borgarstjóra er af og frá.
Með tilboði sínu til Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, sýnir Hildur að hún vill forðast það sem hún kallar „menningarstríðið í borginni“ og að áfram verði djúpstæðar deilur um framtíð borgarinnar. Hún segir í Morgunblaðinu í dag (28. maí):
„Það hefur ríkt hér [í Reykjavík] mjög mikið stjórnlyndi. Margir upplifa að hér hafi jafnvel verið rekin öfgastefna í skipulags- og samgöngumálum, en ég held að svarið við því sé ekki að fara alveg í hina áttina og hinn pólinn. Ég tel að hér sé hægt að reka Reykjavíkurborg af skynsemi og festu með þeim hætti að stærstur hluti borgarbúa sé sáttur. Það er mitt markmið og ég held að við náum því best í þessu samstarfi.“
Á þessu mati er nýr meirihluti í Reykjavík reistur og sama gildir örugglega um ákvarðanir sem sjálfstæðismenn hafa tekið í sveitarstjórnum í öðrum landshlutum.
Það sem einkennir allar ákvarðanir sjálfstæðismanna sem hér hafa verið nefndar er ábyrgð, frjálslynt raunsæi og fordómalaus virðing fyrir lýðræðislegum leikreglum.