Á ný fyrir leiðtogaráð ESB
Þjóðin vissi ekki þá um þetta leynimakk með þátttöku forseta Íslands til að afla umsókn Íslands fylgis í ESB-leiðtogaráðinu.
Athygli vekur hve hroðvirknislega er staðið að greinargerð tillögunnar sem utanríkisráðherra lagði fyrir alþingi um ESV-aðildarviðræðurnar. Á vegum utanríkisráðuneytisins er málið ekki lagt fyrir með ítarlegum rökum í vandaðri greinargerð. Því miður er ekkert slík í boði. Ráðuneytið sinnti ekki einu sinni þeirri lagaskyldu að eiga samráð við landskjörstjórn um orðalagið á spurningunni.
Í 4. kafla greinargerðarinnar er farið orðum um ferlið eftir þjóðaratkvæðagreiðslu verði samþykkt að fara í viðræður.
Þar er röksemdarfærslan reist á því að ESB-aðildarumsókn Íslands sé enn í gildi en þó er tekið fram að verði samþykkt að halda viðræðunum áfram myndi framhaldið verða „staðfest á formlegri ríkjaráðstefnu milli Íslands og aðildarríkja ESB“.
Höll leiðtogaráðs ESB í Brussel.
Þetta er ekki skýrt nánar í greinargerðinni en þýðir í raun að leiðtogaráð ESB yrði einróma að samþykkja Ísland sem kandidatsland. Fulltrúa ríkisstjórnar Íslands yrði boðið að hitta leiðtogaráðið eða fulltrúa þess og kynna umsóknina. Í aðdraganda ríkjaráðstefnunnar yrði utanríkisráðherra eða forsætisráðherra að hafa sett sig í beint samband við ríkisstjórnir allra aðildarríkjanna 27 og kynna málstað Íslands.
Í bókinni Þjóðin og valdið eftir Ólaf Ragnar Grímsson (ÓRG) sem kom út 2024 segir hann á bls. 262-3 frá áhyggjum Össurar Skarphéðinssonar þáv. utanríkisráðherra í júní 2010 yfir því að leiðtogaráð ESB myndi ekki þá samþykkja að hefja aðlögunarviðræður við Ísland. Leitaði Össur eftir því við ÓRG forseta Íslands að hann hefði samband við T. Halonen Finnlandsforseta og hermdi upp á hana loforð sem hún hefði gefið Össuri og ÓRG í New York í september 2008 um að styðja við ESB-aðild Íslands.
Í september 2008 var ESB-aðild Íslands ekki á stefnuskrá ríkisstjórnar Íslands. Samt sátu starfandi utanríkisráðherra og forseti Íslands þá á hljóðskrafi við forseta Finnlands í New York um hana! Engin skýring er gefin í dagbók ÓRG á tilefni þessa samtals en í júní 2010, eftir að alþingi hafði í júlí 2009 samþykkt ESB-aðildarumsókn, bað Össur vin sinn, forseta Íslands, um hjálp til að þoka aðildinni áfram.
ÓRG sagði við Össur að hann gæti bara sjálfur hringt í finnska forsetann. Össur gaf sig ekki gagnvart ÓRG sem sagði „hæpið“ að hann færi að blanda sér „beint í ESB-ferlið“. Hins vegar sagði hann í dagbókinni að mikilvægt væri að gera það til að „treysta á ný sambandið við Össur“. ÓRG sagðist geta sagt að ríkisstjórnin hefði beðið sig um að hringja ef málið kæmi „einhvern tímann til tals“. Hann hringdi því í finnska forsetann 4. júní 2010 til að hjálpa Össuri við að ýta ESB-aðildarviðræðunum af stað „og var það fínt samtal“.
Þjóðin vissi ekki þá um þetta leynimakk með þátttöku forseta Íslands til að afla umsókn Íslands fylgis í ESB-leiðtogaráðinu. Það samþykkti hins vegar 17. júní 2010 að Ísland yrði kandidatsland og aðlögunarviðurnar sigldu af stað.
Málið kom ekki til tals opinberlega árið 2010 enda farið með það af leynd fram að útkomu bókar ÓRG. Umsóknin var formlega afturkölluð gagnvart leiðtogaráðinu 12. mars 2015 og nú verður að endurtaka leikinn.
Framhald.