12.3.2018 10:48

Misheppnuð réttlæting á pólitísku feilspori

Viðreisn neitar að birta atkvæðatölur eða fjölda fundarmanna á landsþingi sínu.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi skrifar á FB-síðu sína sunnudaginn 11. mars, sama dag og landsþingi Viðreisnar lauk. Þar var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kjörin formaður flokksins:

„Í meira tíu ár störfuðum við Þorgerður Katrín saman í Sjálfstæðisflokknum. Tókumst á í prófkjörum, stóðum saman í kosningabaráttu þar sem við fórum m.a. mjög oft saman í vinnustaðarheimsóknir. Ég studdi hana til áhrifa í flokknum eins og svo margir aðrir. Það var hennar ákvörðun á sínum tíma að stíga til hliðar við erfiðar aðstæður en hún hafði alla möguleika á að stíga aftur inn á vettvangi flokksins. Fram á síðustu stundu leitaði hún eftir stuðningi við fólk í sínu sveitarfélagi [Hafnarfirði] vegna prófkjörs flokksins árið 2016 en kaus að stíga ekki dansinn með okkur fyrri félögum sínum og taka þátt í þeirri baráttu. Mér finnst framkoma hennar í ræðu og riti undanfarið vera fyrst og fremst henni til minnkunar og um leið köld skilaboð til þeirra fjölmörgu sem studdu hana til starfa og áhrifa á vettvangi flokksins.“

Í grunnstefnu Viðreisnar segir:

„Opin, upplýst og málefnaleg umræða er nauðsynleg til að unnt sé að taka réttar ákvarðanir. Greiður aðgangur að upplýsingum er forsenda þekkingar.“ Á forsíðu Morgunblaðsins í dag (12. mars) segir að Þorgerður Katrín hafi fengið 95,3% í formannskjöri og Þorsteinn Víglundsson alþingismaður 98,5% í varaformannskjöri á landsþinginu. Ásdís Rafnar, formaður kjörstjórnar, sagði við blaðamann „að ákveðið hefði verið að gefa ekki upp hversu mörg atkvæði voru greidd á fundinum eða hversu margir sóttu hann“. Þegar Viðreisn ályktar um greiðan aðgang að upplýsingum á það augljóslega við aðra en flokkinn sjálfan.

Myndin er frá landsþingi Viðreisnar 11. og 12, mars og sýnir fundarstjóra hylla Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur flokksformann.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri vefsíðunnar Kjarnans, sem styður vinstrisinnaðan boðskap gegn Sjálfstæðisflokknum, fagnar setningarrræðu Þorgerðar Katrínar í fréttaskýringu á vefsíðunni og segir hana hafa skotið „föstum skotum á Morgunblaðið og stærstu eigendur þess“. Tekur ritstjórinn sér síðan fyrir hendur að skýra orð flokksformannsins til að auðvelda lesendum Kjarnans að átta sig því hvert Þorgerður Katrín var að fara með skáldlegum líkingum eins og þeim að „álfar úr hól grárrar forneskju“, andvígir aðild að ESB, „minni helst á staka steina út í einhverjum hádegismóanum“.

Þá fann Þorgerður Katrín að uppbyggingu á Korputorgi þar sem verslunarrekstur hefur átt undir högg að sækja og túlkar Þórður Snæ það sem árás á eigendur Morgunblaðsins. Loks vitnar ritstjóri Kjarnans með velþóknun í þau orð Þorgerðar Katrínar að sjálfstæðismenn megi ekki komast til valda í Reykjavík „á grunni orðræðu oddvitans [Eyþórs Arnalds] sem endurspeglar gömlu valdablokkirnar í Sjálfstæðisflokknum. Og alltaf þegar vonir eru bundnar við að gamalkunnar risaeðlur séu að slaka á klónni, birtast þær skyndilega eins og grameðlurnar í Júragarðinum.“  Um þessi orð segir Þórður Snær: „Þær gömlu valdablokkir sem hún vísar til eru þeir hópar innan Sjálfstæðisflokksins sem fylgja Davíð Oddssyni, fyrrverandi formanni flokksins og núverandi ritstjóra Morgunblaðsins, að málum.“

Ekki skal dregið í efa Þorgerður Katrín líti á ræðu sína sem framlag til „opinnar, upplýstrar og málefnalegrar umræðu“ þótt ritstjóri Kjarnans telji sig þurfa að bæta um betur með skýringum sínum.

Fyrir þá sem þekkja til sögunnar sem Jón Gunnarsson nefndi á FB-síðu sinni er ræðan fyrst og síðast misheppnuð réttlæting á pólitísku feilspori sem átti að vera inn í Evrópusambandið en endaði úti í móa.

Uppfærsla:

Eftir að pistillinn hér fyrir ofan birtist voru þessar upplýsingar settar inn á vefsíðu Viðreisnar:

„Á landsþinginu var kjörin ný stjórn flokksins. Þorgerður Katrín var kosin formaður með 95,3% atkvæða eða 61 atkvæði af 64 greiddum og Þorsteinn Víglundsson var kjörinn nýr varaformaður með 98,5% atkvæða eða 65 atkvæðum af 66 greiddum. Í stjórnarkjöri voru 66 atkvæði greidd. Þar var Benedikt Jóhannesson hlutskarpastur með 58 atkvæði og aðrir sem hlutu kjör voru Hildur Betty Kristjánsdóttir með 54 atkvæði, Sara Dögg Svanhildardóttir með 47 atkvæði og Karl Pétur Jónsson og Sveinbjörn Finnsson sem hlutu 44 atkvæði hvor. Varamenn í stjórn voru kjörin Ingunn Guðmundsdóttir með 36 atkvæði og Friðrik Sigurðsson með 23 atkvæði.“