20.8.2017 10:00

Katrín Jakobsdóttir vill nýtt efnahagskerfi

Hvað felst í þessum orðum? Hvaða efnahagskerfi vill flokksformaðurinn?  Kerfið í Venezúela?

Talið er að kostnaður vegna komu hælisleitenda og þróunar útlendingamála geti orðið allt að sex milljörðum króna í ár og helmingur þess fjár sé umfram fjárlög enda hefur málaflokkurinn farið úr böndunum.

Að sögn vefsíðunnar Kjarnans hneykslaðist Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, á því í setningarræðu á flokksráðsfundi VG laugardaginn 19. ágúst að sumir stjórnmálamenn kysu að gera mikið úr kostnaði við að taka á móti hælisleitendum og flóttamönnum í stað þess að ræða um ójöfnuðinn í samfélaginu þar sem ríkustu tíu prósentin eigi þrjá fjórðu alls auðs og ríkasta eina prósentið eigi um fjórðung.

Hvernig á að skilja þessi orð? Að það dragi úr ójöfnuði í samfélaginu að taka á móti fleiri hælisleitendum frá öruggum löndum og hafa þá sem lengst á framfæri skattgreiðenda?

Ábyrgðarlaust tal stjórnmálamanna á þennan veg er meðal annars ástæða fyrir fjölgun hælisleitenda sem aldrei fá hælisumsókn samþykkta hér vegna stöðunnar í heimalandi þeirra. Fjölgun hælisleitenda hér verður ekki til að minnka ójöfnuð í samfélaginu.

Líklegt að aðstreymi fólks frá öruggum löndum hingað sé að undirlagi einhverra sem hagnast á ferðum fólksins og fá jafnvel hlutdeild í félagslegri fjárhagsaðstoð þeirra hér eða „svörtum“ launatekjum.  Að telja undanlátssemi gagnvart þessum hópum stuðla að jöfnuði hér á landi er eins og hver önnur bábilja.

Katrín Jakobsdóttir sagði í ræðu sinni:

„Vaxandi misskipting gæðanna sprettur beinlínis af því efnahagskerfi og þeim pólitísku stefnum sem hafa verið ráðandi undanfarna áratugi og nú er svo komið að sífellt fleira fólk er farið að finna fyrir því.“

Hvað felst í þessum orðum? Hvaða efnahagskerfi vill flokksformaðurinn?  Kerfið í Venezúela? Þar er skýrasta dæmið um örlög þjóðar sem lýtur stjórn manna sem risu gegn „því efnahagskerfi og þeim pólitísku stefnum sem hafa verið ráðandi undanfarna áratugi“.

Í Venezúela hefur Sameinaði sósíalistaflokkurinn (Sameiningarflokkur alþýðu, sósíalistaflokkurinn?) verið við völd í 18 ár með hörmulegum afleiðingum. Flokkurinn komst til valda með þau orð á vörunum að hann mundi vinna gegn misskiptingu og ójöfnuði.

Nú hefur Nicolãs Maduro, einræðisherra Venezúela, svipt þjóðþing landsins völdum í krafti þess að komið hafi verið á fót stjórnlagaþingi. Minnast má þess að meðal fyrstu verka ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms J. eftir að Norðmaður hafði verið gerður að seðlabankastjóra var að reyna að koma hér á fót stjórnlagaþingi til að svipta alþingi völdum. Steingrímur J. notaði bankahrunið sem skálkaskjól til að innleiða sósíalískt skattakerfi. Festa átti þjóðina í skuldafjötra með ICESAVE-samkomulaginu og framselja fullveldið með aðild að ESB.

Aðförin gegn alþingi misheppnaðist. Már Guðmundsson tók við af Norðmanninum í seðlabankanum og situr enn og ekki hefur verið gert róttækt uppgjör á skattaæði Steingríms J. Samt kvartar Katrín Jakobsdóttir yfir misskiptingunni.