Ekki flokkur unga fólksins
Skólasálfræðingurinn sér enga ástæðu til að milda sár ungmennanna. Þetta sýnir að hún missti ekkert út úr sér í ræðustól alþingis heldur talaði af sannfæringu.
Einar Þorsteinsson, þáv. borgarstjóri, lét orð falla um fráveru kennara frá kennslu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í október 2024. Þá var haft eftir Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur, sálfræðingi og borgarfulltrúa Flokks fólksins, á mbl.is (13. okt. 2024): „Ég trúði bara ekki mínum eigin eyrum. Í alvöru talað.“
Kolbrún sat ráðstefnuna og sagði ótrúlegt að borgarstjórinn hefði látið ummælin falla fyrir framan allan þann fjölda sem var á staðnum.
„Ég bara á ekki orð... og auðvitað sem sálfræðingur og skólasálfræðingur líka til tíu ára þá hef ég alveg ágætis tengsl við þennan geira.“ Sagði hún kennurum brugðið vegna orða borgarstjórans.
Blaðamaður spyr: Finnst þér að hann ætti að stíga fram og biðjast afsökunar á ummælunum? Kolbrún svarar:
„Ef þetta væri ég þá myndi ég gera það. Ef að ég hefði verið svona illa stemmd þennan dag og misst eitthvað svona út úr mér. Ekki nema að þetta sé bara hans sannfæring. Ég veit það ekki.“
Skjáskot af Vísi.
Laugardaginn 7. júní birti Pétur Orri Pétursson, nýstúdent frá Verzlunarskóla Íslands, grein á vefsíðuna Vísi og vék þar að Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur sem nú situr á þingi fyrir Flokk fólksins og í allsherjar- og menntamálanefnd sem fjallaði um frumvarp frá menntamálaráðherra sem snerti hag grunn- og framhaldsskólanema.
Pétur Orri segir að Kolbrún hafi tvisvar sagt í ræðustól alþingis „að þeir framhaldsskólanemendur sem skiluðu inn umsögnum um stjórnarfrumvarp um námsmat grunnskólanna væru ómarktækir. Í þeim hópi voru fjögur ungmenni, tvær stúlkur úr Menntaskólanum í Reykjavík og síðan við Eva Sóley úr Verzlunarskólanum. Kolbrún lét þau undarlegu ummæli falla að við værum að einhverju leyti „sérvalin“ og að við hefðum „jafnvel fengið að vita hvað við áttum að segja“ eins og hún orðaði það“.
Pétur Orri segir að ummæli Kolbrúnar séu „niðrandi, ekki bara fyrir okkur fjórmenningana, heldur [séu] þau blaut tuska í andlit ungs fólks sem vill taka þátt í lýðræðislegri umræðu og beita sér gagnvart löggjafanum. Orð Kolbrúnar [séu] til vitnis um skort hennar á virðingu gagnvart því unga fólki sem reynir að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni á einn eða annan hátt“.
Undir lok greinar sinnar segir Pétur Orri: „Ég vona að Kolbrún Baldursdóttir sjái sóma sinn í að biðja okkur afsökunar á þeim meiðandi ummælum sem hún lét falla í okkar garð í ræðustól Alþingis í gær.“
Nokkrum dögum eftir að Einar Þorsteinsson lét orðin falla um kennarana sem gerðu Kolbrúnu orðlausa í október 2024 baðst hann afsökunar á þeim. Hann vildi að kennurum liði vel sagði hann á fundi með þeim í ráðhúsinu 17. október 2024. Hann hefði verið óundirbúinn í pallborðsumræðum á ráðstefnunni.
Á Vísi birtist miðvikudaginn 11. júní frétt um að Kolbrún hefði í engu svarað kröfu um að hún bæði nemendurna afsökunar. Hún hafði síðan kjörið tækifæri til þess í eldhúsdagsumræðunum á þingi að kvöldi 11. júní en lét það ógert. Skólasálfræðingurinn sér enga ástæðu til að milda sár ungmennanna. Þetta sýnir að hún missti ekkert út úr sér í ræðustól alþingis heldur talaði af sannfæringu.