6.6.2025 10:34

No borders-stefna utanríkisráðuneytisins

Hér er vakin athygli á máli sem utanríkisráðherra lagði fram á alþingi 28. maí 2025, kom til umræðu í þingsalnum rétt fyrir hádegi miðvikudaginn 5. júní og var rætt í um það bil klukkustund og var þá vísað til utanríkismálanefndar.

Hér er vakin athygli á máli sem utanríkisráðherra lagði fram á alþingi 28. maí 2025, kom til umræðu í þingsalnum rétt fyrir hádegi miðvikudaginn 5. júní og var rætt í um það bil klukkustund og var þá vísað til utanríkismálanefndar. Bendir flest til þess að ætlunin sé að afgreiða málið fyrir þinglok. Meðferð málsins er sérstæð. Það var aldrei kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.

Um er að ræða flutning á útgáfu vegabréfsáritana til ferðamanna frá útlendingastofnun, sem starfar á vegum dómsmálaráðuneytisins, inn í sjálft utanríkisráðuneytið.

Í tíð minni sem dómsmálaráðherra var sérfræðingur sendur frá útlendingastofnun til Peking árið 2007 til að verða sendiráðsmönnum innan handar við að hefja útgáfu vegabréfsáritana í sendiráðinu en fram að þeim tíma hafði danska sendiráðið veitt þessa þjónustu fyrir Íslands hönd. Aukin ásókn ferðafólks til Íslands leiddi til þess að Dönum þótti eðlilegt að íslensk yfirvöld tækju þessar afgreiðslur í sínar hendur. Síðar gerðist það sama í Moskvu og víðar.

Á þessum tíma datt engum í hug að skera þennan hluta landamæravörslunnar og gæslustarfa Íslands sem útvarðar Schengen-landamæra frá öðrum stofnunum.

Í upphafi greinargerðar frumvarpsins segir:

„Frumvarp þetta var samið í utanríkisráðuneytinu og er liður í stefnu stjórnvalda um að efla afkastagetu við útgáfu vegabréfsáritana til að mæta mikilli eftirspurn... Frumvarpið er ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar en er lagt fram nú til að mæta þeirri öru þróun sem orðið hefur í áritanamálum á síðustu mánuðum.“

Þetta er furðulegur rökstuðningur. Höfundar frumvarpsins misskilja algjörlega tilgang vegabréfsáritana. Þeir nálgast þetta mál á allt annan veg en nágrannaþjóðir, austan hafs og vestan, sem vilja nú herða reglur við útgáfu vegabréfsáritana. Hér á að „efla afkastagetu“ til að fleiri komist inn á Schengen-svæðið á sama tíma og aðrar Schengen-þjóðir vilja þrengja nálaraugað.

Images-no-b

Í anda no borders segir einnig að færa eigi alla framkvæmd vegabréfsáritana til utanríkisráðuneytisins og tryggja þar með hraðari málsmeðferð, bætta þjónustu við umsækjendur og auka heildarafköst kerfisins! Meginforsenda þess að anna mikilli eftirspurn og efla útgáfu vegabréfsáritana sé „skilvirkni, afkastageta og afgreiðsluhraði utanríkisþjónustunnar sem mun leiða til aukinna ríkistekna“.

Enginn vafi er á að þessi orð verða þeim hvatning sem leita að glufum til að koma fólki löglega inn á Schengen-svæðið sem ferðamönnum þótt tilgangurinn reynist því miður oft annar en að dveljast þar um skamman tíma.

Þessi aðför að landamæravörslunni er mjög misráðin. Þurfi að auka afkastagetu á þessu sviði til að afla ríkinu tekna ætti að senda sérþjálfaða starfsmenn útlendingastofnunar til starfa í viðkomandi sendiráðum. Þau eru þjónustumiðstöðvar íslenska ríkisins erlendis og þær á að starfrækja án þess að utanríkisráðuneytið sjálft gleypi störf sem eiga heima í öðrum embættum.

Frumvarp utanríkisráðherra boðar auk þess þá stórgölluðu stjórnsýslu að ekki er lengur unnt að kæra höfnun áritunar á milli tveggja stjórnsýslustiga.