Úkraínustríðið til norðurslóða
Það tók meira en 18 mánuði að undirbúa aðgerðina og Volodymyr Zelenskjí Úkraínuforseti sagði hana hafa skilað „algjörlega frábærum árangri“.
Rússneskur bloggari sagði sunnudaginn 1. júní þegar fréttir bárust af drónaárásum sérsveita Úkraínu á rússneska herflugvelli þann sama dag að jafna mætti árásinni við það þegar Japanir réðust á bandaríska Kyrrahafsflotann í Pearl Harbor 7. desember 1941. Aðrir töldu þetta orðum aukið.
Hvað sem líður slíkum sögulegum samanburði er talið að um þriðjungur af langdrægum sprengjuflugflota Rússa (41 flugvél) hafi eyðilagst eða orðið fyrir tjóni í árásunum á fjóra flugvelli.
Hér birtist kort sem fréttamiðillinn RFE/RL gerði til að auðvelda lesendum að sjá hve víða í Rússlandi kom til árása á flugvelli en rauðu punktarnir sýna þá velli þar sem tjón var unnið á flugvöllum.
Kort frá RFE/RL - þarna sjást fjórir flughervellir sem urðu fyrir árás (rauðir punktar). Áreiti var gagnvart austasta vellinum.
Eitt er að eyðileggja flugvélar í vel heppnaðri árás og annað að raska ró rússnesks almennings sem að stærstum hluta hefur litið svo á að stríðið sem Vladimir Pútin hóf fyrir rúmum þremur árum sé svo fjarlægt að það snerti þá ekki nema óbeint. Auk þess hefur áróðursvél Kremlverja malað dag og nótt við að telja Rússum trú um að Pútin hafi fulla stjórn á gangi mála og í hans skjóli njóti allir öryggis.
Nú verða raddir um annað háværar í Rússlandi þegar meira að segja fólki í Síberíu, í um 4.000 km fjarlægð frá Úkraínu, finnst stríðið komið í hverfið sitt.
Leyniþjónusta Úkraínu (SBU) smyglaði litlum drónum í trékössum á pöllum flutningabíla inn í Rússland og að flugherstöðvunum þar sem drónarnir voru sendir á loft.
Það tók meira en 18 mánuði að undirbúa aðgerðina og Volodymyr Zelenskjí Úkraínuforseti sagði hana hafa skilað „algjörlega frábærum árangri“.
Sjónarvottar segja að flutningabíll hafi numið staðar á R-255 Síberíu-þjóðveginum og frá honum hafi flogið drónar. Igor Kobzev héraðsstjóri staðfesti þessa frásögn og sagði þetta fyrstu drónaárásina í Síberíu.
Á norska vefmiðlinum Barent Observer var sunnudaginn 1. júní vitnað til sjónarvotta sem sáu þegar árás var gerð á Olenja-flugvöll á Kólaskaga um 60 km frá hafnarborginni Múrmansk. Líklegt er að frá þessum flugvelli komi langdrægu rússnesku sprengjuvélarnar sem sjást stundum hér í nágrenni Íslands.
Flugvöllurinn er um 200 km frá landamærum Noregs en í um 2.000 km fjarlægð frá Úkraínu. Óstaðfestar heimildir eru fyrir því að 20% af langdrægum sprengjuvélum Rússa hafi verið valinn staður á Olenja-flugvelli í öryggisskyni. Segja sérfræðingar það ótrúlega hátt hlutfall. Það gefur hins vegar til kynna hve Rússar voru öruggir með sig þarna og hve völlurinn nýttist vel til árásarferða vélanna til Úkraínu.
Héraðsstjórinn staðfesti að ráðist hefði verið á flugvöllinn frá nálægum flutningabíl. Sjónarvottar segjast hafa séð að minnsta kosti 10 sprengingar í flugherstöðinni.
Þá eru á sveimi óstaðfestar fréttir um sérstaka árás í bænum Severomorsk, fyrir norðaustan Múrmansk, höfuðstöðvabæ rússneska Norðurflotans. Rússar segja allar fréttir um þetta tilhæfulausar en úkraínska fréttastofan RBC Ukraine sagði án frekari skýringa að sprenging hefði orðið í Severomorsk.
Úkraínustríðið er einnig háð á norðurslóðum!
.