17.11.2019 10:32

Verðlaun Jónasar til Jóns G. Friðjónssonar

Þeir sem hafa kynnt sér bækur Jóns um íslenska tungu vita að hann er mjög vel að þessum verðlaunum kominn og eru honum fluttar innilegar hamingjuóskir.

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í 23. sinn í gær, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Allt frá upphafi hafa verðlaun kennd við Jónas verið „veitt þeim einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar,“ eins og segir í frétt mennta- og menningarmálaráðuneytisins í tilefni af því að þau voru að þessu sinni veitt Jóni G. Friðjónssyni prófessor.

Í greinargerð ráðgjafanefndar segir:

„Prófessor Jón G. Friðjónsson er málvísindamaður og rannsakandi íslenskrar tungu af ástríðu og hugsjón. Prófessor Jón hefur kennt málvísindi og íslenska málfræði í Háskóla Íslands og samið kennsluefni um áratuga skeið, svo segja má að allflestir íslenskufræðingar og aðrir sem láta sig íslenska tungu einhverju varða þekki verk hans og hafi notið leiðsagnar hans á einn eða annan hátt.

Auk kennslu íslensku fyrir Íslendinga hefur Jón einnig verið meðal brautryðjenda í kennslu íslensku sem annars máls við Háskóla Íslands.

Hin miklu rit Jóns um íslenska orðfræði, Mergur málsins. Íslensk orðatiltæki, uppruni, saga og notkun sem fyrst kom út 1993 og síðan aukin og endurbætt 2006, Rætur málsins sem út kom 1997 og Orð að sönnu. Íslenskir málshættir og orðskviðir sem út kom 2014 , auk fjölda greina um málvísindaleg efni bera vitni um óbilandi áhuga hans og þekkingu á efninu. Í ritum þessum er fjallað um orðtök, orðasambönd, orðatiltæki, málshætti og orðskviði í íslensku máli allt frá fyrstu tíð til nútímamáls. Nú þegar við liggur að hætta steðji að þessu undarlega gamla tungumáli sem fáir tala og fram undir þetta hefur breyst tiltölulega hægt, eru þessi verk Jóns ómetanlegur sjóður fyrir þjóðina að ganga í, til að viðhalda og varðveita íslenskt tungumál og hugsun.“

290585.width-1220Jón G. Friðjónsson og Lilja D. Alfreðsdóttir á degi íslenskrar tngu. (Mynd: mennta- og menningarmálaráðuneytið.)

Lilja D, Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði við afhendinguna í Gamla bíói:

„Hann [Jón] hefur með ástríðu og hugsjón unnið íslenskunni ómælt gagn og með miðlun sinni tendrað áhuga annarra á tungumálinu, ekki síst í gegnum stórfróðlegar bækur sínar og kennsluefni.”

Þeir sem hafa kynnt sér bækur Jóns vita að hann er mjög vel að þessum verðlaunum kominn og eru honum fluttar innilegar hamingjuóskir. Auk verðlaunanna var hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum veitt sérstök viðurkenning í tilefni af degi íslenskrar tungu árið 2019.

Í upphafi greinargerðar ráðgjafanefndar segir:

„Reykjavíkurdætur komu af miklum krafti fram á sjónarsviðið fyrir um sex árum og skoruðu feðraveldið í heimi íslenskrar rapptónlistar á hólm. Þær fjölluðu strax frá byrjun um reynsluheim ungra kvenna á íslensku nútímamáli sem þær beita á skapandi og oft og tíðum ögrandi hátt. Þær urðu fyrirmyndir annarra ungra kvenna sem síðan hafa stigið á stokk og orðið áberandi í tónlistarlífinu; Reykjavíkurdætur hafa verið valdeflandi fyrirmyndir sem hafa sýnt að hægt er að fella margbrotinn reynsluheim ungra Íslendinga í orð.“

Ráðgjafanefnd vegna Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar skipuðu að þessu sinni Ingunn Ásdísardóttir, formaður, Haukur Ingvarsson og Einar Falur Ingólfsson.