7.11.2026

Trump eftir ósigurinn

Morgunblaðið, laugardaginn 7. nóvember 2026.

Þingkosningarnar í Bandaríkjunum á þriðjudag urðu þungt áfall fyrir Donald Trump og repúblikana. Demókratar náðu meirihluta í báðum deildum þingsins. Þar með breyttust forsendur síðari hluta forsetatíðar Trumps. Kjósendur settu forsetanum skorður. Í úrslitunum felst ekki að hann verði valdalaus. Engu að síður taldi Steven Cheung, samskiptastjóri Hvíta hússins, ástæðu til að minna á það miðvikudaginn 4. nóvember að Trump væri enn forseti. Allur er varinn góður.

Við skýringu á úrslitunum staðnæmast bæði demókratar og repúblikanar við Trump og ákvarðanir hans. J.D. Vance varaforseti sagði að afhroð repúblikana mætti rekja til Íransstríðsins sem Trump hóf í febrúar. Trump andmælti honum ekki en taldi að úrslitin hefðu orðið önnur hefði nafn hans verið á kjörseðlinum.

Einfalda leiðin fyrir repúblikana er að skella skuldinni á Trump því að þeir vita að sú skýring fær víða hljómgrunn. Trump verður ekki oftar í kjöri. Það kemur líklega helst í hlut varaforsetans og Marcos Rubio utanríkisráðherra að stokka spilin upp fyrir stjórnina og flokkinn. Þrýstingur á að binda enda á Íransstríðið mun aukast. Þeir eiga ef til vill jafnframt eftir að keppa um að verða forsetaefni repúblikana árið 2028.

Images-2-ttttDonald Trump í Hvíta húsinu að kosningum loknum. Áletrunin á rauðu húfunni minnir á neitunarvald hans gagnvart þinginu.

Álitsgjafinn David Frum þekkir flokk repúblikana innan frá. Hann var ræðuhöfundur George W. Bush forseta en er nú eindreginn gagnrýnandi Trumps. Á kjördag birtist grein eftir Frum í tímaritinu The Atlantic undir fyrirsögninni Things Are Going to Get Ugly sem mætti þýða: Nú mun hitna í kolunum. Þar birtist harkaleg gagnrýni á Trump og varað er við því sem kunni að gerast tapi repúblikanar meirihluta sínum, eins og varð.

Frum lítur til þingkosninganna 2018. Þá misstu repúblikanar meirihluta í fulltrúadeildinni en bættu við sig tveimur sætum í öldungadeildinni. Trump gat því túlkað úrslitin sér í hag. Persónulegt fylgi hans hefði skilað árangri en frambjóðendur sem héldu honum í fjarlægð hefðu goldið þess. Von um endurkjör árið 2020 gaf honum auk þess pólitískt svigrúm.

Ósigurinn nú nær til beggja þingdeilda og ábyrgðin er skýr. Trump hafði áhrif á framboð repúblikana í lykilríkjum. Hann ýtti sumum frá en studdi aðra sem reyndust flokknum byrði. Trump dugar ekki lengur að eigna sér sigra en kenna öðrum um ósigra.

Efnahagsmálin vega þungt í greiningu Frums. Hann telur tolla Trumps hafa hækkað verðlag og skaðað bændur, hallarekstur hafa aukið verðbólguþrýsting og stríðið við Íran hafa grafið undan forsetanum. Loforð um styrk Bandaríkjanna og velmegun missa flugið þegar fólk finnur annað á eigin skinni. Persónuleg hollusta flokksmanna við forsetann dugar þá ekki til varnar þingmeirihluta. Kjósendur láta mat á eigin stöðu ráða atkvæði sínu.

Þá segir Frum að persónulega hafi meira verið í húfi fyrir Trump núna en árið 2018. Nú gefst meirihluta demókrata á þingi færi á að rannsaka stjórnarhætti hans, krefjast gagna og kalla menn fyrir þingnefndir. Það geti skapað forsetanum, fjölskyldu hans og nánustu samstarfsmönnum verulega pólitíska og lagalega áhættu vegna ásakana um spillingu. Slíkar rannsóknir verða að byggjast á gögnum. Forsetinn getur ekki krafist undanþágu frá þingeftirliti.

Frum verður harðorður í niðurlagi greinar sinnar. Orð hans bera vitni um djúpstæðan ágreining á bandaríska hægrivængnum.

Hann minnir á að Trump muni áfram ráða yfir hernum og öryggisstofnunum Bandaríkjanna þótt þingnefndir hefji rannsóknir. Hann geti látið ákæra fólk, ráðist inn í önnur ríki og beitt neyðarheimildum. Hann verði reiðari, háværari og ofsafengnari.

Trump sé sama um framtíð flokks síns og landsins. Hann muni vilja refsa þjóð sem hafi, að hans mati, sýnt honum vanþakklæti og hafnað honum. Þeim sem auðgist af spillingu finnist fengur sinn aldrei öruggur. Þess vegna hafi Trump, börn hans og nánustu vinir og jámenn ástæðu til að óttast eftir því sem dregur að lyktum forsetatíðar Trumps. Lokaorð Frums eru afdráttarlaus: „Það versta er enn ókomið.“

Viðvörun af þessu tagi fær aukið vægi þegar litið er til þess hvernig forsetinn hefur beitt valdi sínu. Ákvarðanir um stríðið við Íran, viðskiptastríðin og sértækar hernaðaraðgerðir í Venesúela og á Karíbahafi voru teknar án aðkomu þingsins. Þótt demókratar muni verja valdheimildir þingsins af festu er víðtækt forsetavald rótgróið. Ósigur í þingkosningunum sviptir Trump ekki svigrúmi til afdrifaríkra ákvarðana.

Þarna reynir á repúblikana. Þeir sem horfa til forsetakosninga 2028 þurfa að hugsa um framtíð flokksins og eigin stöðu. Hagsmunir þeirra og Trumps fara ekki endilega saman. Frum telur ógnarvaldið sem forsetinn hafi notað til að halda flokknum saman dvína. Átök um arftaka hans munu hefjast hvað sem líður vilja hans til að refsa þeim sem sýna sjálfstæði.

Fyrir bandamenn Bandaríkjanna, eins og okkur Íslendinga, skiptir þetta máli. Persónuleg afstaða til Trumps má ekki ráða mati á samstarfi um varnir og öryggi. Jafnframt verður að horfast í augu við óvissuna sem fylgir stjórnarháttum hans. Rækta þarf samskipti við Bandaríkjaþing jafnt sem framkvæmdarvaldið.

Trump hefur tapað þingmeirihlutanum en forsetatíð hans lýkur ekki fyrr en eftir næstu forsetakosningar. Viðvörun Frums er að særður forseti geti reynst hættulegri en sigurviss forseti. Ósigur í kosningum tryggir ekki einn aðhald. Það ræðst af stofnunum sem standast þrýsting og stjórnmálamönnum sem þora að axla ábyrgð.