Tímamót með þjóðaratkvæðagreiðslu
SES-ræða miðvikudaginn 18. nóvember 2026
Bessí Jóhannsdóttir, formaður SES, stjórnaði fundinum frá 12.00 til 13.00. Fundurinn var vel sóttur. Að lokinni ræðunni sem tók um 20 mínútur svaraði ég fyrirspurnum og áritaði síðan bækur.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst markaði tímamót. Þá mistókst tilraun ríkisstjórnarinnar til að setja Ísland á ný inn á aðildarbraut Evrópusambandsins. Af gildum atkvæðum voru 52,8 prósent á móti og 47,2 prósent með. Niðurstaðan var skýr. Þjóðin hafnaði því skrefi sem stjórnin vildi að yrði stigið.
Að mínu mati brást þarna forsenda sem hafði ráðið miklu um myndun ríkisstjórnarinnar, stefnu hennar og hugmyndir um störf hennar allt kjörtímabilið. Þjóðaratkvæðagreiðslan átti meira að segja að opna samstarfsleið inn í næsta kjörtímabil. Úrslit atkvæðagreiðslunnar lokuðu henni.
Það er óhjákvæmilegt að velta fyrir sér til hvers þessi tímamót í stjórnmálunum leiða. Hvað hefur breyst varðandi aðild að ESB? Og hvað verður um ríkisstjórn sem var hrakin af þeirri leið sem hún hafði ætlað að fara?
Vilji einhver reyna við ESB-aðild að nýju verður að endurskoða allan málatilbúnaðinn. Að mínu mati dugar hvorki að endurtaka aðferðina frá 2009 né þá sem beitt var árið 2026.

Í ræðustól á SES-fundinum 18. nóvember 2026. (Mynd: Ísleifur Jónsson).
Þeir sem ætla að leiða þjóðina inn í Evrópusambandið verða sjálfir að taka afstöðu til þess hvort þeir vilja ganga þar inn. Þeir geta ekki varpað ákvörðun um það á aðra í skjóli þess að fyrst þurfi að athuga hvað sé í boði.
Við vitum hvað er í boði. Grunnumgjörð Evrópusambandsins verður ekki raskað vegna eins umsóknarríkis þótt stækkunarstjóri þess tali um „skapandi lausnir“ í viðræðum.
Það er ekki trúverðug stjórnmálastefna að hefja umfangsmikið ferli til inngöngu í ríkjasamband án vilja alþingis og ríkisstjórnar til aðildar.
Þess vegna tel ég að þjóðaratkvæðagreiðslan sanni afdráttarlaust að ekki eigi að reyna aftur við ESB-aðild nema fyrir henni sé meirihluti á alþingi. Sá meirihluti þarf að hafa umboð sitt frá kjósendum. Aðildin sjálf verður að hafa verið á dagskrá fyrir þingkosningar, ásamt skýrum hugmyndum um þau skilyrði sem menn telja nauðsynleg.
Kjósendur eiga að vita að með atkvæði sínu geti þeir veitt flokki eða flokkum umboð til að mynda ríkisstjórn sem hafi stuðning alþingis til að semja um aðild að ESB.
Kjósendur eiga að geta metið stefnu flokkanna um þetta stórmál áður en stjórn er mynduð og áður en hafist er handa við að færa landið í áttina að ESB.
Sama á við um stjórnarskrána.
Í álitsgerð Lagastofnunar Háskóla Íslands, sem aflað var við þinglega meðferð ESB-málsins núna, kemur fram að breyta verði stjórnarskránni fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Stjórnarskráin mælir fyrir um það hver fer með vald í landinu. Þeir sem vilja breyta þeirri skipan verða að skýra nauðsyn þess og efni breytinganna. Þeir verða að verja skoðun sína með rökum og bera hana undir kjósendur með þeim hætti sem stjórnarskipunin krefst.
Þetta er krafa um pólitískan heiðarleika og skýra ábyrgð.
Aðildarsinnar verða því að standa allt öðruvísi að málatilbúnaði sínum en þeir hafa gert til þessa. Þeir þurfa að afla meirihluta fyrir stefnu sinni, útskýra eðli stjórnarskrárbreytingarinnar og leggja fram trúverðuga heildarstefnu.
Þeir geta ekki gengið að því sem vísu að næsta tilraun hefjist einfaldlega þar sem þessari lauk. Fyrsta skref þeirra til að styrkja eigin trúverðugleika væri að beita sér fyrir samþykkt alþingis sem tæki af allan vafa um að umsóknin frá 2009 væri afturkölluð. Ný tilraun yrði þá ótvírætt að ráðast af nýju umboði.
Við sem viljum standa utan Evrópusambandsins verðum að standa undir því trausti sem okkur var sýnt 29. ágúst 2026. Við vildum festu um fullveldið í stað óvissu.
Þar vegur EES-samstarfið þungt. Við eigum að sinna því af meiri alúð, undirbúa mál fyrr og nýta betur tækifæri íslenskra sérfræðinga til áhrifa. Við eigum að efla viðskipti, vísindi, menningu og samstarf við nágranna okkar. Sjálfstæði krefst vinnu og árvekni.
Þá kem ég að stjórnmálum líðandi stundar.
Ég tel að tvennt hafi ráðið mestu um ákvörðun ríkisstjórnarinnar að flýta þjóðaratkvæðagreiðslunni í ársbyrjun.
Í fyrsta lagi þrýstingur frá stækkunardeild ESB og pólitískum samherjum Viðreisnar innan ESB. Liklegt er að í Brussel hafi menn sannfærst um að Íslendingar myndu segja já eftir samtöl við utanríkisráðherra og íslenska embættismenn.
Utanríkisráðherra hafi síðan sannfært meðráðherra sína um flýtinguna en án samráðs við eigin þingflokk.
Í öðru lagi tel ég að flýtingin hafi átt að tryggja að tvö ár gæfust til að vinna úr niðurstöðunni með viðræðum við ESB. Viðræðurnar myndu móta pólitíska andrúmsloftið og halda stjórnarþingmönnum við efnið.
Planið hafi verið sá að við kosningar haustið 2028 stæðu mál þannig að tryggja yrði meirihluta ESB-aðildarsinna á nýju þingi og þar með yrði boðað framhald stjórnarsamstarfsins.
Þetta plan raskaðist eins og önnur hjá Kristrúnu. Stjórnin tapaði og síðan hefur hallað undan fæti.
Að mínu mati kippti þjóðaratkvæðagreiðslan grundvellinum undan því pólitísku hlutverki Viðreisnar að koma Íslandi inn á aðildarbraut Evrópusambandsins með samstarfi við aðra flokka.
Það þýðir ekki að flokkurinn hverfi. Stjórnmálaflokkar geta starfað lengi eftir að upphaflegt erindi þeirra hefur glatast. Þeir geta breytt áherslum, fundið nýja kjósendur eða látið stjórnarþátttöku eina halda í sér lífi.
Viðreisn þarf hins vegar að svara þessari spurningu: Til hvers er flokkurinn eftir þessa niðurstöðu?
Hann getur haldið áfram að berjast fyrir aðild. Þá þarf hann að viðurkenna að næsta tilraun krefst annars umboðs og annars undirbúnings. Hann getur líka fært þungann yfir á önnur mál. Þá verður að koma í ljós hvaða mál það eru og hvað greinir hann frá öðrum.
Flokkur finnur sér ekki varanlegt hlutverk með því einu að lýsa óánægju með þá kjósendur sem höfnuðu helsta baráttumáli hans.
Þau tíðindi gerðust á mánudaginn að Ingvar Þóroddsson, sem hefur verið þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, sagði skilið við flokkinn og gekk til liðs við þingflokk okkar sjálfstæðismanna.
Ingvar segir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og samtöl við kjósendur hafa sannfært sig um að leiðir hans og Viðreisnar hafi skilið. Hann gagnrýnir áherslu á skattahækkanir í stað aðhalds, hagræðingar og verðmætasköpunar og telur þá stefnu ganga gegn kosningaloforðum Viðreisnar. Öflugt atvinnulíf sé forsenda velferðar; ekki sé unnt að skattleggja þjóðina til velsældar. Hann skilji því vonbrigði þeirra í atvinnulífinu sem kusu Viðreisn en telji sig nú svikna.
Er þetta það hlutverk sem Viðreisn ætlar nú að sinna: að standa að auknum álögum í stað þess að knýja fram aðhald og verðmætasköpun?
Meira að segja Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra er nóg boðið. Hann sagði á Facebook í gær: „Hver hefði trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í þessu stjórnarsamstarfi? Þar eru brotin öll lögmál um tengsl forystu og almennra þingmanna ... Heimatilbúið klúður, en gæti reynst örlagaríkt.“
Á meðan ESB-aðildarmálið lifði sameinaði það ólík öfl. Nú reynir á hvað stendur eftir þegar því er ýtt til hliðar.
Sú spurning nær til ríkisstjórnarinnar allrar.
Ég tel að vonin um að opna leiðina inn í Evrópusambandið hafi verið miklu stærri þáttur í þessu stjórnarsamstarfi en stjórnarflokkarnir viðurkenna núna. Hún gaf þeim sameiginlega framtíðarsýn og fyrirheit um stórt verkefni á síðari hluta kjörtímabilsins.
Þjóðaratkvæðagreiðslan átti að færa stjórninni nýjan kraft. Í stað þess tók hún vind úr seglum hennar.
Ríkisstjórn getur haldið þingmeirihluta sínum þótt sameiginlegt pólitískt markmið bresti. Þá verður hins vegar að koma í ljós hvað heldur henni saman og til hvers hún ætlar að nota meirihlutann.
Á seinni hluta kjörtímabilsins reynir á hvort stjórnarflokkarnir geti mótað sameiginlega stefnu eða hvort hver þeirra taki að berjast fyrir eigin lífi. Þjóðin á rétt á að vita hvaða verkefni taki við eftir að aðildarleiðinni var lokað.
Þessi pólitísku tímamót kalla á að við mótum stefnu út frá raunverulegri stöðu Íslands. Verkefnin í utanríkis- og öryggismálum bíða ekki eftir því að stjórnarflokkarnir geri upp sín mál.
Þjóðaratkvæðagreiðslan breytti ekki hnattstöðu Íslands. Hún breytti ekki heldur mikilvægi Norður-Atlantshafsins og hún dró ekki úr nauðsyn þess að tryggja varnir landsins.
Í lok máls míns nefni ég þrjú atriði sem ætti að bera hátt í umræðu um stöðu Íslands á alþjóðavettvangi:
1. Tímamót í varnarsamstarfi Norðurlandanna. Fyrirhugaður nýr samningur í stað núverandi NORDEFCO-samstarfs á að skapa skýrari verkaskiptingu Norðurlandanna innan NATO. Jafnframt hafa JEF-ríkin tíu, undir forystu Breta, ákveðið að efla samstarf flota sinna á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Hvernig ætla íslensk stjórbnvöld að taka á þessum málum?
2. Aukin hernaðarumsvif kalla á skýrara hlutverk Íslands. Nýtt varnarsvæði við Meistaravík á Austur-Grænlandi, aukin skiptiviðvera NATO-herafla og þróun ómannaðra eftirlitskerfa auka mikilvægi íslenskra flugvalla, hafna og annarra innviða. Ísland verður að taka þátt í mótun áætlana en ekki aðeins leggja til aðstöðu fyrir herafla annarra ríkja.
3. Íslensk ábyrgð verður að birtast í athöfnum og fjárveitingum. Efla þarf landhelgisgæsluna, lögregluna, ógnargreiningu og vernd mikilvægra innviða. Íslenskar stofnanir verða að geta nýtt upplýsingar úr nýjum eftirlitskerfum og tekið ábyrgð á skilgreindum verkefnum. Meginspurningin er hvort stjórnvöld ætli að tryggja nauðsynlega getu og fjárveitingar áður en aðrir ákveða verkaskiptinguna fyrir okkur.
Góðir fundarmenn.
Þjóðaratkvæðagreiðslan markaði tímamót vegna þess að hún batt enda á áformin um að leiða Ísland inn á aðildarbraut Evrópusambandsins. Þeir sem vilja reyna aftur verða að leggja stefnu sína skýrt fyrir kjósendur, afla henni meirihluta og gera grein fyrir nauðsynlegum stjórnarskrárbreytingum. Gamla umsóknin jafngildir ekki nýju umboði.
Ríkisstjórnin verður jafnframt að svara því hvert hún ætlar eftir að þjóðin lokaði leiðinni sem hún hafði valið. Viðreisn þarf að skýra hlutverk sitt. Stjórnarflokkarnir þurfa saman að sýna að þeir hafi annað sameiginlegt erindi en að sitja áfram.
Við sem viljum standa utan Evrópusambandsins höfum líka skyldum að gegna. Við þurfum að nýta EES-samstarfið af festu, treysta tengslin við bandamenn okkar og tryggja að Ísland geti axlað sinn hluta ábyrgðarinnar á öryggi Norður-Atlantshafsins.
Sjálfstæði krefst þess að við tökum ákvarðanir, aukum þekkingu og getu og berum kostnað af því sem við teljum nauðsynlegt.
Þjóðin sagði nei við aðildarbrautinni. Nú reynir á forystu til að móta framtíð Íslands á okkar grunni.
Ábyrgðin verður áfram íslensk.