Sundruð saman í landhelgisstríði
Morgunblaðið, fimmtudagur 24. september 2026.
Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins, 1971-1974 ★★★★★ Eftir Guðna Th. Jóhannesson. Sögufélag, 2026. Innb., 594 bls. með myndum og skrám.
Vald hinna veiku nefnir Guðni Th. Jóhannesson nýja bók sína um sögu landhelgismálsins árin 1971 til 1974. Titillinn vísar til orða Henrys Kissinger eftir fund Richards Nixon Bandaríkjaforseta með Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra og öðrum íslenskum ráðamönnum í Reykjavík í lok maí 1973. Kissinger undraðist hve djarflega fulltrúar fámennrar eyþjóðar töluðu við leiðtoga stórveldisins. Þar birtist vald hins veika: Smáríki getur stundum skapað sér meira svigrúm en stærð þess og styrkur gefa til kynna, ekki síst þegar stærri ríki telja sig hafa meira að tapa á átökum en það sjálft (310).
Titillinn gefur þó einnig tilefni til annarrar spurningar sem fylgir lesandanum í gegnum þessa miklu bók. Hvar liggja mörkin milli þess að smáríki beiti veikleika sínum af dirfsku og þess að það virði þær reglur sem það hefur sjálft gengist undir?
Svörin eru flókin
Þegar ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar færði fiskveiðilögsöguna einhliða út í 50 mílur 1. september 1972 hófust ekki aðeins erfiðar deilur við Breta og Vestur-Þjóðverja um fiskimiðin. Íslensk stjórnvöld ákváðu jafnframt vegna ágreinings á heimavelli að hlíta ekki þeirri málsmeðferð sem samið hafði verið um við Breta 1961. Þá hafði Ísland fallist á að deilu um frekari útfærslu yrði skotið til Alþjóðadómstólsins í Haag. Þegar Bretar og síðar Vestur-Þjóðverjar leituðu þangað vegna 50 mílnanna neitaði Ísland að taka til varna.
Alþjóðadómstóllinn lét fjarveru Íslands ekki stöðva málsmeðferðina. Hann taldi sig hafa lögsögu og komst 1974 að þeirri niðurstöðu að Ísland gæti ekki einhliða útilokað Breta og Vestur-Þjóðverja frá veiðum á svæðinu milli 12 og 50 mílna. En dómurinn var ekki jafn óhagstæður fyrir Ísland og sú niðurstaða kann að gefa til kynna. Dómstóllinn viðurkenndi sérstaka hagsmuni Íslands sem strandríkis, að þjóðin ætti einstaklega mikið undir fiskveiðum efnahagslega og nauðsyn þess að vernda fiskistofnana. Þróun hafréttarins var auk þess þegar komin á þá braut sem leiddi skömmu síðar til almennrar viðurkenningar á 200 mílna efnahagslögsögu.
Þetta vekur spurningu sem vert er að hafa í huga við lestur bókarinnar: Hefðu Íslendingar átt að taka til varna við Alþjóðadómstólinn og flytja mál sitt þar af sömu festu og þeir vörðu það á miðunum eða á vettvangi stjórnmálanna? Þeir hefðu þess vegna ekki þurft að falla frá kröfunni um 50 mílur. Þeir hefðu getað kynnt eigin rök um þróun þjóðaréttar, vernd fiskistofna og sérstöðuna vegna afkomu heillar þjóðar.
Fimmtíu mílurnar voru ekki staðfestar í Haag en Bretar urðu að semja um stórlega takmarkaðar veiðar innan þeirra haustið 1973. Tveimur árum síðar færðu Íslendingar lögsöguna í 200 mílur og eftir enn eitt þorskastríðið hurfu bresku togararnir þaðan.
Vald hinna veiku er meira en snjall bókartitill. Hann vekur grundvallarspurningu um stöðu smáríkis í alþjóðakerfinu: Felst vald hins veika í því að geta vikið til hliðar reglum þegar lífshagsmunir eru taldir í húfi – eða eru alþjóðlegar reglur og virðing fyrir þeim forsenda þess að vald smáríkisins sé virt?
Guðni Th. Jóhannesson sýnir að svör við slíkum spurningum eru flókin. Það er líka helsti styrkur þessarar 594 blaðsíðna bókar að saga 50 mílnanna birtist ekki sem einföld frásögn af samhentri þjóð sem háði réttláta baráttu og vann fullnaðarsigur. Hún var miklu margbrotnari.
Dr. Guðni Th. Jóhannesson var forseti Íslands árin 2016 til 2024. Hann gegnir nú stöðu prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands sem kennd er við Jón Sigurðsson. Í bókarlok segir að ritun bókarinnar hafi lokið á afmælisdegi Jóns, 17. júní 2026, á fæðingarstað hans, Hrafnseyri við Arnarfjörð.
Fyrir fjórum árum sendi Guðni frá sér bókina Stund milli stríða. Saga landhelgismálsins 1961-1971.
Þessi hluti af sögu landhelgismálsins hefst 14. júlí 1971 og honum lýkur 25. júlí 1974. Frásögnin er margþætt en lipurlega skrifuð í tímaröð og er höfuðáhersla lögð á að auðvelda lesandanum sem mest lesturinn án þess að slegið sé af fræðilegum kröfum. Það tengir lesandann við atburði að þeim er lýst í nútíð.
Umbrotið er líflegt, margir smákaflar, myndir og kort. Gunnar Þór Bjarnason er ritstjóri. Margrét Tryggvadóttir er myndaritstjóri. Málfar og prófarkalestur eru með ágætum. Tilvísanir spanna 51 bls. Þá er útdráttur á ensku; heimildaskrá, myndaskrá og skrá yfir nöfn og efnisorð (nafnaskráin er ekki alveg skotheld).
Guðni segist hafa ákveðið fyrir tæpum 30 árum að skrifa sögu landhelgismálsins. Í næsta bindi verði greint frá þeim átökum sem urðu eftir að 200 mílna lögsaga var boðuð árið 1974 en kom til framkvæmda ári síðar. Þá hafi aftur orðið þorskastríð, enn hatrammara en það sem hann rekur í þessari bók (498).
Reist á víðtækri efnisöflun
Bókin snýst í raun um miklu meira en landhelgismálið og það hlýtur oft að hafa verið freistandi fyrir Guðna að fara út um víðan völl til að setja menn og málefni í miklu stærra samhengi í frásögn sinni. Hann er hins vegar efni sínu trúr og aðferðin sem hann velur til þess setur honum ramma sem verður þó aldrei of þröngur, að minnsta kosti ekki í augum þess sem man vel þessi átök og þekkti persónulega marga sem gegndu þarna lykilhlutverkum.
Í upphafi bókarinnar eru birtar „helstu stiklur“, eins konar leiðarvísir um það sem er í vændum með tilvitnunum á víð og dreif í texta bókarinnar. Þá eru einnig myndir og örstuttir palladómar um „helstu leikendur“, Íslendinga og Breta auk fáeinna annarra.
Þar segir meðal annars um Lúðvík Jósepsson, sjávarútvegsráðherra og forystumann Alþýðubandalagsins í landhelgismálinu: „Ýmsa útlendinga grunar að hann gangi erinda Moskvuvaldsins en hann hefur ætíð hagsmuni Íslands í fyrirrúmi eins og hann metur þá. Vill því aldrei gefa eftir í viðræðum við Breta og Þjóðverja“ (12).
Það voru vissulega fleiri en útlendingar sem höfðu þessar grunsemdir um Lúðvík eins og bókin ber með sér. Þeir sem voru handgengnir Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra í hægri armi Framsóknarflokksins kölluðu Lúðvík og liðsmenn hans jafnan kommúnista sín á milli. Þeir treystu þeim ekki í þessu máli og því síður í varnarmálunum en ríkisstjórnin fylgdi þeirri stefnu að varnarliðið skyldi hverfa á brott í áföngum.
Guðni dregur annars vegar stórar pólitískar línur og hins vegar lýsir hann af eins mikilli nákvæmni og verða má átökum á miðunum og framvindu þeirra. Þar gerðist það sem hafði mest áhrif á almenningsálitið og þar með stjórnmálamenn og áhrifamenn eins og Joseph Luns, framkvæmdastjóra NATO.
Um Luns segir: „Finnur að því að Bretar láti veigalitla hagsmuni í nokkrum hafnarborgum stefna vestrænu varnarsamstarfi í voða og nýtur því ekki fulls trausts í Lundúnum.“
Frásögn Guðna er reist á víðtækri efnisöflun hans. Hann hefur farið höndum um mikið magn heimilda og rætt við menn hér heima og erlendis sem þekktu gang mála frá fyrstu hendi. Hann sest ekki í dómarasæti fyrr en kemur að bókarlokum í kaflanum: Niðurstöður.

Sjaldan farið eins óskaplega á bak við aðra ráðherra
Hér skal nefnt tvennt af fjölmörgu sem er hugstætt eftir lestur bókarinnar.
Fyrra atvikið er sú sögulega ákvörðun að halda hér leiðtogafund Richards Nixon og Georges Pompidou Frakklandsforseta dagana 31. maí til 1. júní 1973. Samband Bandaríkjanna og Frakklands var spennuþrungið innan Atlantshafsbandalagsins. Frakkland hafði dregið sig úr hernaðarsamstarfi NATO árið 1966 og Pompidou vildi ekki ræða við Nixon í Washington eða í höfuðstöðvum NATO í Brussel úr því að Nixon vildi ekki hitta hann í París. Ísland var landfræðileg málamiðlun. Það hefur oftar en nú andað köldu milli ráðamanna í Evrópu og Washington.
Leiðtogafundurinn kallaði á enn meiri athygli á deilur okkar við Breta og Þjóðverja en áður og var hann óspart nýttur í áróðursskyni, sérstaklega vegna alvarlegs atviks sem varð á miðunum og leiddi til upplýsingaóreiðu okkur í vil.
Áður er vitnað til orða og undrunar Kissingers yfir því hve íslenskir ráðherrar voru höfðingjadjarfir. Forsetahjónin frú Halldóra og Kristján Eldjárn buðu forsetunum til kvöldverðar á Bessastöðum. Þegar staðið var upp frá borðum sneri Lúðvík Jósepsson sér að Nixon til að sannfæra hann um góðan málstað Íslands: „Greina má að gesturinn tigni gerist þegar órólegur, jafnvel önugur. Um það vitnar síðar sjónarvottur, veitingamaðurinn Wilhelm Wessman sem hefur yfirumsjón með kvöldverðinum. Hann stendur álengdar og sér hið ótrúlega gerast: Laumulega lætur Nixon kaffibolla sinn falla í gólfið þar sem hann mölbrotnar! Forsetinn biðst forláts og hverfur strax á braut“ (313).
Guðni færir fyrir því rök að atvikið sýni að Nixon hafi ekki haft neinn áhuga á að blanda sér í þessa fiskveiðideilu. Opinber afstaða Bandaríkjastjórnar ber þess skýr merki.
Síðara atvikið gerðist 1. október 1973 þegar Tómas Karlsson, annar ritstjóri Tímans, hittir Anthony Royle, aðstoðarutanríkisráðherra Breta, og segist vera „sérlegur og leynilegur fulltrúi“ Ólafs Jóhannessonar forsætisráðherra sem hafi sent sig „án vitneskju og vilja annarra ráðherra“ og enginn í sendiráði Íslands í London megi vita af þessum fundi (417).
Í bókinni er fundinum lýst sem upphafi að því að þeir hittust síðan í London Ólafur Jóhannesson og Edward Heath forsætisráðherra 15. október 1973 og sömdu um lausn deilunnar. Ólafur lagði sérstaka áherslu á að hann yrði „ráðherralaus“ á fundinum, það er án Lúðvíks sjávarútvegsráðherra eða flokksbróður síns, Einars Ágústssonar utanríkisráðherra.
Guðni segir: „Vissulega leika ráðherrar stundum hver annan grátt á Íslandi eins og annars staðar. Þeir reyna að fara sínu fram og grafa jafnvel undan félögum sínum þótt þeir lofi að sjálfsögðu samráði og samvinnu. Þetta veit ég sem forseti en líka sem sagnfræðingur: Forsætisráðherra hefur sjaldan farið eins óskaplega á bak við aðra ráðherra og Ólafur Jóhannesson gerði haustið 1973“ (417).
Ólafur kom með pálmann í höndunum frá þessum samskiptum við Heath og samráðherra sína. Lúðvík og flokksmönnum hans tókst ekki að espa til neinnar andstöðu við samkomulagið sem gert var í London. Ríkisstjórnin lifði fram á vor 1974 þegar hún liðaðist í sundur vegna ágreinings um efnahagsmál. Áformin um að loka Keflavíkurstöðinni urðu að engu.
Oft skall hurð nærri hælum
Að loknum lestri Valds hinna veiku blasir ekki við einföld saga um sameiginlegt átak smáþjóðar. Þvert á móti sýnir Guðni að innan ríkisstjórnarinnar var djúpur ágreiningur, menn fóru á bak við hver annan og deilt var um alþjóðlegar skuldbindingar.
Forsætisráðherrann var jafnframt dómsmálaráðherra og bar því ótvírætt pólitíska ábyrgð á því sem gerðist á miðunum. Þar skapaðist hvað eftir annað ástand sem kom ríkisstjórninni illa. Samskipti yfirstjórnar og skipherra voru stirð og stundum engin. Samt náðist það markmið sem mestu skipti: Yfirráð Íslendinga yfir fiskimiðunum færðust stig af stigi í þeirra hendur án þess að átökin leiddu til mannskæðra árekstra. Oft skall þó hurð nærri hælum og slys urðu.
Guðni skrifar þessa sögu ekki aðeins með augum sagnfræðingsins. Það gefur bókinni sérstakt gildi að á stöku stað vísar hann beint til þess að hann hafi sjálfur setið í æðsta embætti lýðveldisins og séð stjórnmálin af meiri nálægð en áður. Hann veit nú af eigin raun að ákvarðanir á æðstu stöðum eru sjaldan eins einfaldar og þær kunna að sýnast í þjóðarsögunni.
Vald hinna veiku mildar ljóma landhelgisbaráttunnar án þess að gera lítið úr árangrinum. Það er styrkur bókarinnar. Menn lögðu ekki allt annað til hliðar í blindni heldur tókust á væru þeir ósammála. „Gleymum hvorki einingunni né ágreiningnum. Við stóðum sundruð saman,“ segir Guðni Th. Jóhannesson í bókarlok. Það eru orð að sönnu.