Skólinn er meira en próf
Morgunblaðið, föstudagur, 20. nóvember 2026
Skólabók – er leikur að læra? ★★★★· Eftir Sölva Sveinsson. Ugla, 2026. Kilja, 368 bls., myndir, skrá yfir rit og mannanöfn.
Á næsta ári verða 120 ár frá því að fræðslulög voru sett á Íslandi. Í Skólabók – er leikur að læra? lýsir skólamaðurinn Sölvi Sveinsson (f. 1950) kynnum sínum af framkvæmd síðari tíma fræðslulaga sem nemandi, kennari og skólastjórnandi. Lesandinn fær leiðsögn um íslenska skólakerfið undir forystu athuguls greinanda sem miðlar af eigin reynslu á meiri en helmingi þess tíma sem fræðslulöggjöf hefur gilt hér.
Skólaganga Sölva hófst í fæðingarbæ hans Sauðárkróki þar sem hann gekk í barnaskóla og gagnfræðaskóla og tók landspróf áður en hann fór í Menntaskólann á Akureyri. Þaðan fór hann í Háskóla Íslands og bjó á Garði. Lauk hann BA-prófi í íslensku og sagnfræði í skólanum og síðan cand. mag.-prófi í sögu árið 1980. Við HÍ las hann einnig uppeldis- og kennslufræði auk þess að stunda kennslu við Hagaskóla og Laugalækjarskóla. Um tíma starfaði hann hjá alþingi. Hann var skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla 1997 til 2005 og síðan skólastjóri Verzlunarskóla Íslands 2005 til 2008. Þá tók við starf í menntamálaráðuneytinu og loks stjórnaði hann Landakotsskóla á árunum 2010 til 2014.
Þá skal þess getið að um árabil hefur Sölvi skrifað um bækur hér í blaðið auk þess að gefa sjálfur út fjölda bóka. Má þar nefna bækurnar Íslensk orðtök (1993) og Íslenskir málshættir (1995) með skýringum og dæmum. Þær hafa oftar en einu sinni verið endurútgefnar en þar skýrir Sölvi inntak orðtaka og málshátta á meitlaðan hátt. Vald hans á knöppum en greinargóðum stíl er mikið eins og birtist í lýsingum hans á fjölmörgum samstarfsmönnum og nemendum í Skólabók sinni.

Persónu- og þjóðlífslýsing
Nýja bók Sölva er náms- og starfsævisaga, þjóðlífslýsing, persónugallerí (mannanafnaskráin er rúmar 12 bls.), ágrip af sögu skólakerfisins, lýsing á innra starfi skólans og raunhæf ráðgjöf um fjölmargt sem betur má fara allt til dagsins í dag.
Ég hef haft kynni af ýmsu og ýmsum sem Sölvi kynnir til sögunnar.
Stefán Magnússon (d. 1981) bókbindari á Sauðárkróki var sumarmaður á Reynistað í Skagafirði árin sem ég var þar í sveit. Hann sat á sláttuvél sem dregin var af tveimur hrossum og sló engi fyrir neðan Staðará eins og Sæmundará var nefnd eftir beygju við Reynistað. Sé ég hann fyrir mér þegar Sölvi segir: „Góður karl, Stebbi, jafnan í svörtum jakka og skyrtan ekki nýþvegin; hneppingar tilviljunarkenndar og gleraugun höll á nefi, margviðgerð“ (18).
Prófessor Ólafur Hansson (d. 1981) kenndi mér sögu í Menntaskólanum í Reykjavík en Sölva nokkrum árum síðar í háskólanum á mánudögum klukkan 5-7 síðdegis. Sölvi segir: „Líklega hefur prófessorinn verið að kenna í M.R. á daginn. Þetta voru skemmtilegir tímar. Ólafur kom aldrei með bók, hann gekk um gólf og talaði hins vegar allan tímann sjálfur, varpaði stöku spurningum út í stofuna og allir glósuðu af kappi. Það kom fyrir að hann skrifaði eitthvað á töfluna, en sjaldan nema eitt og eitt orð ...“ (130).
Lýsingin kemur heim og saman við minningu mína þar sem Ólafur stóð við upphækkað kennarapúltið í MR bókarlaus en með bekkjarkladdann í hægri hendi og opnaði okkur sýn á mannkynssöguna.
Þjóðlífsmyndir Sölva eru af ýmsum toga. Hann segir til dæmis frá því að það var ekki fyrr en hann var orðinn 20 ára, haustið 1970, sem þeir tveir skólafélagar frá Króknum, en nú búsettir á Garði, borðuðu kjúkling með frönskum kartöflum og kokkteilsósu í fyrsta skipti á ævinni þegar þeir fóru á Sælkerann í Hafnarstræti: „Hænur voru sem sé ekki mannamatur í Skagafirði þar sem feðrum okkar hugnaðist betur að borða feitt kjöt af sauði eða hrossi. Kokkteilsósa var ekki til í orðaforðanum, bara kokkteilávextir og kokkteilber“ (126).
Fortíð og framtíð
Eins og nafn bókarinnar ber með sér snýst hún að mestu um skólastarf þar sem Sölvi lítur yfir farinn veg en spáir einnig í framtíðina. Skoðanir hans sameina heilsteypta virðingu fyrir því sem vel hefur reynst en jafnframt áhuga á nýjungum, þar á meðal tæknilegum, og má þar nefna nýtingu á upplýsingatækni til fjarnáms.
Sölvi rifjar upp að frumkvæði varðandi fjarkennslu hafi smátt og smátt þróast frá menntamálaráðuneytinu út í skólana og árið 1994 hafi Verkmenntaskólinn á Akureyri riðið á vaðið með fjarkennslu (241). Eftir að Sölvi varð skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla beitti hann sér fyrir fjarnámi á hans vegum og árið 1999 varð hann einn af þremur þróunarskólum í upplýsingatækni. Mótuð var aðferðafræði sem kristallaðist í slagorðunum: Þitt nám þegar þér hentar. Þitt nám á þínum hraða (244).
Tæknin dugar skammt sé ekki lögð rækt við hana og þjálfun fólks við að nýta hana. „Síðustu ár hafa engin samræmd próf verið í grunnskólum. Þau voru lögð niður m.a. vegna sleifarlags við framkvæmdina. Tölvukerfi virkuðu ekki og prófin fóru meira og minna í handaskolum,“ segir Sölvi á bls. 234 og hefur mikið til síns máls.
Hann óttast hins vegar ekki tæknina þegar hann segir að gervigreindin veki mörgum ugg, en hvað sem hver segi muni hún gjörbylta skólastarfi og atvinnulífi.
Íslendingar reka dýrasta grunnskóla í Evrópu og hér eru fæstir nemendur á hvert stöðugildi, um 5,5 nemendur á hvern starfsmann grunnskóla í fullu starfi. Sölvi segir það skjóta skökku við að hér sé mun minna fé varið í námsgögn en tíðkist til dæmis annars staðar á Norðurlöndunum. Það hafi mátt færa fyrir því rök á fátæktartíma þjóðarinnar að stofna Ríkisútgáfu námsbóka árið 1936, en nú 90 árum síðar sé þessi ríkisútgáfa óþörf. Skilgreina eigi þörf fyrir námsbækur og bjóða síðan verkið út (333).
Lætur skoðanir sínar í ljós
Sölva finnst orðið lífsleikni fallegt en samt vandræðalegt heiti á námsgrein sem tekur bæði til grunn- og framhaldsskóla og telur að það hafi skotist inn í námskrá grunnskóla árið 1989. Það kann að vera. Lífsleikni sem sjálfstæð námsgrein var hins vegar nýjung í aðalnámskránni frá 1999. Greinin náði þá einnig til leikskóla. Markmiðið er að börn og ungmenni rækti með sér andleg verðmæti, líkamlegt heilbrigði og sálrænan styrk auk þess að efla félagsþroska sinn, siðvit og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. Aldur og þroski nemenda skipta meginmáli. Sölvi telur kennsluna gagnlega en tilviljanakennda og að hún ráðist mest af því sem viðkomandi kennari getur og metur nauðsynlegt. Sjálfur telur hann brýnt að veita öfluga fjármálafræðslu (347).
Sölvi minnist oftar en einu sinni á það sem hann kallar „duldu námskrána“ og á þátt hennar í að móta skólabraginn, þann anda og metnað sem ríkir innan hvers skóla. Ætla má að almenn áhersla innan viðkomandi skóla á lífsleikni nemenda sinna sé kjarni skólaandans.
Sölvi telur mikilvægast að temja nemendum góð og vönduð vinnubrögð og að þeir skipuleggi tíma sinn og þjálfist í gagnrýnni hugsun til þess að þeir spyrji þeirra spurninga sem spyrja þurfi. Slíkum nemendum farnist vel í æðri skólum.
Sölvi sýnir með þessari bók að skólaganga er meira en undirbúningur fyrir próf og að af reynslu skólamannsins má læra löngu eftir að skólagöngu lýkur.
Skólabók – er leikur að læra? er læsileg og fróðleg bók en dálítið brotakennd. Þar er langri reynslu miðlað af þekkingu, hreinskilni og næmri athygli á fólki og umhverfi. Sölvi Sveinsson hefur ákveðnar skoðanir á skólamálum og hikar ekki við að láta þær í ljós. Hvað sem líður skoðunum lesandans ætti hann að hafa gagn og ánægju af lestrinum. Bókin minnir á að þótt lög, námskrár og kennsluhættir breytist hvílir farsælt skólastarf á því sama og fyrr: hæfileikum kennara, metnaði nemenda og þeim skólabrag sem mótast í daglegu starfi. Þar liggur varanlegt gildi þessarar skólabókar.