Reykjavík í kalda stríðinu
Morgunblaðið, fimmtudagur 19. nóvember 2026
Kaldastríðsborg ★★★★· Eftir Rósu Magnúsdóttur. Sögufélag, 2026. Innb., 100 bls.
Þess var minnst 12. október 2026 að 40 ár voru liðin frá fundinum í Höfða, þar sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, hittust til að leita leiða til afvopnunar og minnkandi spennu í samskiptum austurs og vesturs.Ýmislegt var gert til að minnast þessa viðburðar en þeim fækkar meðal okkar sem muna hann af eigin raun. Leiðtogarnir funduðu á laugardegi og sunnudegi. Það setti okkur sem þá störfuðum hér á blaðinu nokkrar skorður, því að Morgunblaðið kom ekki út á mánudögum og efni í sunnudagsblaðið var að jafnaði skilað upp úr hádegi á laugardegi.
Venjulegum vinnureglum var vikið til hliðar. Blaðinu var „haldið opnu“ fram á laugardagskvöld og síðan kom einnig út blað mánudaginn 13. október 1986, stútfullt af fréttum og skýringum á því sem gerðist um helgina í Höfða. Slík breyting kallaði ekki aðeins á aukna vinnu á ritstjórn og í prentsmiðju heldur einnig við flutninga og dreifingu um land allt.

Saga á 100 síðum
Mér datt í hug að lýsing í þessa veru hefði átt heima í bókinni sem hér er til umsagnar, Kaldastríðsborg eftir Rósu Magnúsdóttur, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hún hefði verið enn eitt dæmið um hvernig viðburður á vettvangi stórveldanna raskaði daglegum störfum í Reykjavík og kallaði á skjót viðbrögð langt út fyrir fundarstaðinn sjálfan.
Innan á aftari bókarkápu segir að Rósa hafi skrifað bækur og greinar á sviði Sovétsögu og alþjóðasögu 20. aldar með áherslu á kalda menningarstríðið, kommúnisma, hugmyndafræði og áróður. Nýlega var hún meðal viðmælenda í þriggja hluta heimildarmynd um Höfðafundinn í ríkissjónvarpinu.
Þar birtist lífleg lýsing á því hvernig mannlífið umturnaðist í hjarta Reykjavíkur og Ísland komst í brennidepil alþjóðlegrar athygli. Frétta- og blaðamenn gegndu stóru hlutverki við að miðla því sem gerðist þessa fáeinu sólarhringa. Allt var þetta skilmerkilega og skemmtilega kynnt.
Bók Rósu ristir dýpra og nær yfir mun lengra tímabil. Hún fjallar um kalda stríðið frá lokum annarrar heimsstyrjaldar og rekur áhrif þess og arfleifð fram á okkar daga.
Sögufélag gefur bókina út í bókaflokknum Seríu sem á að höfða til alls áhugafólks um sögu, jafnt fróðleiksfúss almennings sem fræðafólks. Hver bók er nákvæmlega 100 blaðsíður og myndir prýða þá sem hér er til umsagnar. Ritstjórn bókaflokksins vill að vandaðar rannsóknir séu „settar fram á aðgengilegan hátt í lifandi frásögn“. Rósu tekst vel að fara að þeim fyrirmælum.
Að velja og hafna
Bókarheitið, Kaldastríðsborg, er nýmæli þegar litið er til Reykjavíkur. Sjálfur tengi ég þá nafngift fyrst og fremst við Berlín: tilraunina til að einangra vesturhluta borgarinnar með samgöngubanni undir lok fimmta áratugarins, loftbrúna sem tryggði íbúunum nauðþurftir og síðan múrinn sem reis 1961 og féll 1989.
Rósa segir að með Höfðafundinum 1986 hafi Reykjavík orðið „sýnileg á alþjóðavettvangi sem ein af lykilborgum kalda stríðsins“. Í Evrópu séu ýmsar borgir þekktar sem kaldastríðsborgir. Auk Berlínar nefnir hún Helsinki og Genf, þar sem efnt hafi verið til ráðstefna og leiðtogafunda (19).
Hér má þó spyrja hvort nafngiftin hitti í mark. Greina þarf á milli borgar sem var sjálf miðpunktur átaka og klofnings kalda stríðsins og borgar sem hýsti viðræður um að draga úr spennu þess. Reykjavík öðlaðist sérstakan sess með Höfðafundinum en sá sess var annars eðlis en staða Berlínar.
Þegar efniviðurinn er mikill og blaðsíðufjöldinn takmarkaður felst vandi höfundar ekki síst í að velja og hafna og gæta jafnvægis milli viðfangsefna. Bókin skiptist í fjóra meginkafla: Vor í Reykjavík; Heimur á heljarþröm; Menningarstríð í miðborginni og Endalok sögunnar?
Lengsti kaflinn fjallar um menningarstríðið. Þar heitir einn undirkaflinn Kalda eldhússtríðið og segir frá mikilvægu hlutverki kvenna í hugmyndafræðilegri baráttu stórveldanna. Bandaríkjamenn hafi markaðssett tæknivætt eldhús fyrir heimavinnandi húsmæður en Sovétmenn bent á sósíalísk verksmiðjueldhús til að frelsa konur úr ánauð heimilisstarfanna (64).
Rósa staldrar þannig víða við og kemur stundum skemmtilega á óvart, að minnsta kosti þeim sem tamt er að hafa þrengra sjónarhorn á kalda stríðið og átökin þá. Þarna liggur einn helsti styrkur bókarinnar. Hún sýnir hvernig hugmyndafræðileg samkeppni stórveldanna birtist í menningu og hversdagslífi.
Lifandi mynd af Reykjavík
Í bókinni er ekki minnst á samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur frá apríl 2002 um að borgin yrði kjarnorkuvopnalaust svæði. Sú sérkennilega samþykkt tengdist alþjóðlegri baráttu fyrir kjarnorkuafvopnun sem Samtök herstöðvaandstæðinga tóku þátt í að færa inn á vettvang íslenskra sveitarstjórna.
Umdeild hugmynd Jóns Gnarr borgarstjóra árið 2012 um að banna herskipum og herflugvélum að koma til Reykjavíkur og gera hana að friðarborg var af sama hugmyndafræðilega meiði. Þessar tillögur og samþykktir hefðu átt heima í bókinni sem dæmi um arfleifð kalda stríðsins í Reykjavík og sem tenging við leiðtogafund þar sem rætt var í alvöru um víðtæka og jafnvel algjöra kjarnorkuafvopnun.
Þótt hér hafi verið bent á efni sem hefði mátt fá rúm í bókinni tekst Rósu vel að draga upp fjölbreytta og lifandi mynd af Reykjavík á tímum kalda stríðsins. Styrkur hennar felst ekki síst í að tengja átök stórveldanna við menningu og daglegt líf borgarbúa. Kaldastríðsborg er fróðleg og læsileg bók sem víkkar sýn á tímabil sem enn setur mark sitt á íslenskt samfélag.