24.10.2026

Nám með skýr markmið

Morgunblaðið, laugardagur 24. október 2026.

Fyrir réttri viku birtist hér í Morgunblaðinu grein eftir Halldór Skúlason, föður unglings í 10. bekk í íslenskum grunnskóla, undir fyrirsögninni: Frá innleiðingu til áhrifa.

Halldór ber saman aðalnámskrár grunnskóla frá 1999 og 2011 og ræðir þróun námsárangurs. Hann segir að í stórum dráttum fari aukin áhrif núverandi aðalnámskrár saman við lakari niðurstöður og birtir graf því til staðfestingar.

Hann segir að námskránni megi breyta á skömmum tíma með því að hverfa aftur til þeirrar frá 1999, þótt hún sé ekki fullkomin, og nýta svo tímann til að endurbæta hana og læra af þeim sem náð hafa árangri. Þessi ábending vakti athygli mína því að hún kemur heim og saman við það sem kennarar nefna stundum við mig á förnum vegi, að þeir líti gjarnan í námskrána frá 1999 til að átta sig á skýrum markmiðum og leiðum að þeim.

Sem menntamálaráðherra lagði ég línur um gerð námskránna sem komu út árið 1999. Orð Halldórs gefa tilefni til að rifja upp hvernig að verkinu var staðið og hvaða markmið réðu ferðinni. Þar var ekki aðeins um endurskoðun á forsögn til kennara að ræða. Tilgangurinn var að skýra kröfur til skólastarfs, styrkja stöðu nemenda og foreldra og tengja skólastigin sem best saman.

Namskrar-scaled-e1611572543774-1

Í fyrsta sinn voru aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla unnar samhliða. Með því átti að tryggja meiri samfellu og stígandi í námi barna og unglinga. Skólagangan skyldi skoðuð sem heild, þar sem hvert stig tæki mið af því sem áður hafði verið lært og auðveldaði nemandanum að takast á við næsta áfanga. Það er grundvallaratriði að menn viti hvert skuli stefna og hvernig áfangarnir tengjast.

Jónmundur Guðmarsson leiddi þetta umfangsmikla endurskoðunarstarf en hann varð síðar aðstoðarmaður minn. Hann samdi verkáætlanir og fylgdi þeim eftir af dugnaði. Hátt á þriðja hundrað manns voru kallaðir til starfa við verkefnið og vinnan nam samtals um 33 mannárum. Verkinu var skilað innan hæfilegra tímamarka og almennt ríkti friður og sátt um einstaka verkþætti og framkvæmd þeirra. Ég taldi þetta þá gott dæmi um snurðulausa framkvæmd stórverkefnis á vegum stjórnsýslunnar. Það mat er óbreytt.

Spurt var hvers vegna námskrárnar væru svo ýtarlegar og nákvæmar. Svarið var meðal annars að allir skólar ættu að sitja við sama borð þegar kröfur til þeirra væru skilgreindar. Skýr markmið áttu að auðvelda nemendum, foreldrum og sveitarstjórnum að fylgjast með innra starfi skólanna. Foreldrar áttu að geta fylgst með því sem færi fram innan skólaveggjanna og hvers væri krafist af börnum þeirra í hverjum árgangi.

Nákvæmni var þannig forsenda gagnsæis og aðhalds. Hún átti einnig að auðvelda kennurum starfið, meðal annars við samkennslu nemenda á ólíkum aldri í fámennum skólum. Námskrá á að nýtast við dagleg verkefni. Hún verður að segja eitthvað skýrt um það sem nemandinn á að læra. Almenn fyrirheit um góða eiginleika og æskilega hæfni duga skammt ef óljóst er hvaða þekkingar á að afla.

Skýrar sameiginlegar kröfur útilokuðu þó ekki valfrelsi. Námskrárnar bundu aðeins 70% af tíma nemenda í níunda og tíunda bekk. Svigrúmið átti að nýta til að virkja áhuga þeirra á eigin hugðarefnum og tengja námið við atvinnulíf, staðhætti og náttúru í umhverfi þeirra. Ég benti jafnframt á að upplýsingatæknin gæti opnað fámennum skólum nýjar leiðir til að bjóða fjölbreytt nám.

Ekki var ætlunin að steypa alla nemendur í sama mót. Markmið aðalnámskrár voru hvorki hámark né lágmark. Skólunum bar að laga námið að nemendum og bjóða viðfangsefni sem hæfðu getu þeirra. Afburðanemendur þurftu umhyggju og hvatningu ekki síður en þeir sem stóðu höllum fæti, þótt úrræðin væru ólík. Nemendur skyldu njóta kennslu við hæfi í heimaskóla sínum væri þess kostur en sérúrræði vera tiltæk þegar þeirra væri þörf. Skólinn þarf að svala metnaði hvers nemanda og veita honum raunhæf tækifæri til að ná árangri.

Samstarf heimila og skóla var skýrt leiðarstef. Gagnkvæm upplýsingagjöf og traust voru forsenda árangurs. Fjölskylda, skóli og nánasta umhverfi móta einstaklinginn en ábyrgð foreldra vegur þyngst. Þess vegna þurfti að kynna þeim rétt þeirra og skyldur og auðvelda virka þátttöku í námi barnanna. Skýr námskrá var eitt mikilvægasta tækið til þess. Liður í stefnunni var að miðla opinberlega sem mestum upplýsingum um skólastarfið.

Halldór leggur áherslu á að þekking sé forsenda hæfni. Gagnrýnin hugsun, sköpunarkraftur og ímyndunarafl verði ekki ræktuð án þekkingar sem nemandinn geti nýtt. Þetta er kjarni málsins. Að læra staðreyndir, skilja samhengi og ná tökum á undirstöðuatriðum er forsenda þess að geta lagt sjálfstætt mat á ný viðfangsefni.

Halldór bendir réttilega á að lakari námsárangur á tíma nýrrar námskrár sanni ekki einn og sér að námskránni sé um að kenna. Það leysir menntayfirvöld þó ekki undan því að kanna hvort breyttar áherslur hennar eigi þátt í afturförinni og að meta hvort skólastefnan stuðli að réttmætum árangri.

Ég fagna því ef námskrárstarfið frá 1999 er tekið til málefnalegrar skoðunar. Ekki vegna þess að þar hafi verið fundin endanleg lausn heldur vegna þess að markmiðin eiga enn við: samfella í námi, skýrar kröfur, traust þekking, svigrúm fyrir ólíka nemendur og virk ábyrgð foreldra.

Við endurmat á menntastefnunni ber að spyrja hvað hafi reynst vel og hvað megi læra af því. Börnin eiga kröfu á að sú athugun fari fram af sömu alvöru og lögð var í námskrárgerðina sjálfa.