Landsvirkjun í umróti
Morgunblaðið, laugardagur 31. október 2026
Landsvirkjun er krúnudjásn ríkisfyrirtækja. Orkuöryggi, atvinnuþróun og lífskjör landsmanna eiga mikið undir stórhuga ákvörðunum um nýtingu innlendra orkulinda, samningum við orkukaupendur og samstarfi stjórnmálamanna og sérfræðinga. Nú, þegar ágreiningur um stjórnarhætti leiðir til starfsloka Harðar Arnarsonar eftir sautján ár sem forstjóra, er ástæða til að íhuga næsta kafla í sögu fyrirtækisins.
Við stofnun Landsvirkjunar árið 1965 lagði Sogsvirkjun grunn að starfseminni. Fyrsta stórvirkjun fyrirtækisins var Búrfell, sem hóf vinnslu 1969. Þar fóru saman rafvæðing samfélagsins og uppbygging álversins í Straumsvík. Sigöldustöð fylgdi 1978, Hrauneyjafossstöð 1981, Blöndustöð 1991, Sultartangastöð 1999 og Vatnsfellsstöð 2001.
Búrfellsvirkjun (mbl.is/Ómar Óskarsson).
Jóhannes Nordal var stjórnarformaður frá 1965 til 1995. Hans framlag sýnir hve fráleitt er að stilla pólitískri ábyrgð og fagmennsku upp sem andstæðum. Verkefnið var að tengja sérþekkingu, fjármögnun og framkvæmdir við stefnu kjörinna fulltrúa. Stjórnmálamenn vörðu ákvarðanir út á við og báru ábyrgð á niðurstöðunni.
Kárahnjúkavirkjun markaði stærsta skrefið. Meginframkvæmdir hófust 2003 og Fljótsdalsstöð var gangsett 2007, með 690 megavatta afli. Eftir það hélt uppbyggingin áfram, en nýju stöðvarnar voru minni. Búðarhálsstöð, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð II voru gangsettar 2014-2018, samtals 285 megavött. Tvær tilraunavindmyllur voru reistar 2013 og fyrsti áfangi Vaðölduvers tekinn í notkun í september 2026.
Í forstjóratíð Harðar hefur verið endursamið við stóra viðskiptavini, skuldir lækkað og arðgreiðslur fyrirtækisins hækkað. Nýtt framkvæmdaskeið hófst haustið 2024, áður en núverandi ríkisstjórn og núverandi stjórn Landsvirkjunar tóku við. Við stjórnarskiptin hafði fyrirtækið því þegar hafið næsta áfanga sóknar sinnar.
Í heild hefur raforkuframleiðsla landsins hins vegar staðið í stað frá 2017, í kringum 19 teravattstundir á ári. Þetta kemur fram í greiningu Viðskiptaráðs, Kraftur í kortunum, sem birtist 29. október. Landsmönnum hefur fjölgað og framleiðsla á mann því dregist saman. Aukið afl einstakra stöðva jafngildir ekki samsvarandi aukningu árlegrar orkuvinnslu.
Viðskiptaráð bendir á að um 150 ónýttir virkjunarkostir hafi verið kortlagðir í rammaáætlun. Samanlögð framleiðslugeta þeirra sé yfir 80 teravattstundir á ári. Kostirnir séu þó ekki allir nýtanlegir samtímis og hluti þeirra í verndarflokki. Orkulindirnar eru fyrir hendi. Vandinn snýr að því hvernig staðið er að ákvörðunum um nýtingu þeirra.
Þriðji áfangi rammaáætlunar var samþykktur á alþingi 2022, níu árum eftir að vinna verkefnisstjórnar hófst og sex árum eftir að lokaskýrsla hennar lá fyrir. Viðskiptaráð nefnir að kæruleiðir og skortur á virðingu fyrir lögbundnum afgreiðslufrestum tefji framkvæmdir.
Flutningskerfið er annar þröskuldur. Samkvæmt greiningunni gátu 18 af 26 afhendingarstöðum árið 2024 aðeins tekið við allt að tíu megavatta viðbótarálagi. Það gagnast lítið að auka orkuvinnslu ef rafmagnið kemst ekki til notenda.
Viðskiptaráð leggur til að rammaáætlun verði lögð af og virkjanir fari í gegnum almennt leyfisferli samkvæmt lögum um umhverfismat, skipulag og náttúruvernd. Kæruleið verði ein. Flutningskerfið verði byggt upp á undan eftirspurn og vindorka við miðlunarlón fái forgang. Ráðið vill opinbert markmið um 43 teravattstunda raforkuframleiðslu árið 2040, rúmlega tvöföldun frá því sem nú er.
Markmiðið á að vera nægt orkuframboð fyrir heimili og atvinnulíf, þar á meðal gagnaver.
Þessar tillögur eiga erindi inn í umræðuna um Landsvirkjun. Móta verður skýra stefnu og starfhæfar reglur svo að alþingi þurfi ekki að afgreiða hvern virkjunarkost sérstaklega. Þing og ríkisstjórn verða að skapa umgjörð sem tryggir náttúruvernd og réttaröryggi án þess að ákvarðanir dragist árum saman.
Viðskiptaráð lýsir þeirri skoðun að jákvæð skref hafi verið stigin árið 2026 með einföldun laga og færslu fleiri kosta í orkunýtingarflokk. Þessar breytingar dugi þó ekki. Flokkun til nýtingar er aðeins upphaf langs ferlis. Stjórnvöld verða að sýna hvernig þau hyggjast stytta leiðina frá samþykktum áformum til framkvæmda.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra breytti aðferðinni við val á fólki í stjórn Landsvirkjunar árið 2025. Ný stjórn tók við í apríl eftir tillögu valnefndar. Ráðherrann bar áfram ábyrgð á valinu. Nú hefur ágreiningur um stjórnarhætti átt þátt í brotthvarfi reynds forstjóra. Þá nægir ekki að vísa til fagmennsku við stjórnarval. Skýra verður hvað breyttist og hvers vegna samstarfið brast.
Styrkur Landsvirkjunar fólst í samhentri stjórn með skýra sýn, bæði faglega og pólitíska. Á fyrstu árum fyrirtækisins kusu alþingi og borgarstjórn stjórnarmenn til sex ára í senn. Langtímaumboð studdi við samfellu og stórhuga ákvarðanir. Nú leggur valnefnd til stjórnarmenn sem ráðherra skipar til eins árs í senn. Þótt fagmennska hafi verið höfð að leiðarljósi við stjórnarvalið hefur samheldnin í yfirstjórn Landsvirkjunar brostið. Það má ekki gleymast hvað gerði fyrirtækið öflugt.
Valnefnd leysir ráðherra ekki undan ábyrgð. Hann verður að svara fyrir gerðir sínar á alþingi. Við þröskulda í vegi virkjana bætist nú ágreiningur um stjórnarhætti. Úr þessu þarf að bæta. Landsvirkjun þarf samhenta forystu sem sameinar fagþekkingu og pólitíska ábyrgð og hefur kraft til að virkja orkulindir þjóðarinnar henni til hagsbóta.