Konur fyrir dómi
Morgunblaðið, 13. nóvember 2026.
Dauðadæmd ★★★★· Eftir Guðnýju Hallgrímsdóttur. Ugla, 2026. Innbundin, 155 bls.
Rannsóknir Steinunnar Kristjánsdóttur fornleifafræðings á aftökusögu Íslendinga eftir siðaskipti hafa varpað ljósi á samfélag þar sem dauðarefsing var hluti réttarfars og kom þyngst niður á fátæku og varnarlausu fólki. Að baki dómum fyrir brot á borð við dulsmál, blóðskömm og þjófnað voru einstaklingar sem áttu oft lítið svigrúm til að ráða eigin örlögum. Í bók sinni Dauðadómurinn beinir Steinunn sjónum að þessu fólki og aðstæðunum sem leiddu það á aftökustað.

Þessar rannsóknir mynda gagnlegan bakgrunn við lestur bókar Guðnýjar Hallgrímsdóttur, Dauðadæmd – sakamál frá 18. öld. Þar reynir bæði á skilning okkar á samfélagi fyrri alda og hæfni til að sjá manneskjuna að baki þeim brotum sem henni voru gefin að sök.
Steinunn og samstarfsfólk hennar fann heimildir um 248 dauðadóma á árunum 1582-1792, mun fleiri en áður hafði verið talið. Það jafngildir að meðaltali rúmlega einum dauðadómi á ári, en greina verður á milli uppkveðinna dóma og aftaka. Afrakstur verkefnisins má meðal annars sjá í kortasjánni Dauðadómurinn á dhd.hi.is, þar eru aftökustaðir kortlagðir og birtar upplýsingar um þá sem teknir voru af lífi.
Stóridómur markaði þáttaskil
Fjölgun dauðadóma eftir siðaskiptin má einkum rekja til þess að brot gegn kynferðis- og hjúskaparsiðferði færðust alfarið undir veraldlegt refsivald og refsingar voru hertar. Fyrir siðaskipti hafði kirkjan fjallað um slík mál og meðal annars beitt yfirbótum og kirkjulegum viðurlögum, en með lútherskum sið og auknu valdi konungs var lögð ríkari áhersla á að veraldleg yfirvöld framfylgdu kristilegum siðferðiskröfum.
Stóridómur, sem var lögtekinn á alþingi árið 1564, markaði þáttaskil með ströngum refsingum, meðal annars fyrir sifjaspell og ítrekuð hjúskaparbrot. Galdramálin á 17. öld bættust við, þótt þau féllu ekki undir Stóradóm. Fjölgun dauðadóma verður því að skoða í ljósi breyttra laga og eflingar ríkisvalds fremur en að álykta að alvarlegum afbrotum hafi einfaldlega fjölgað. Við samanburð við miðaldir verður jafnframt að hafa í huga að varðveisla heimilda er misgóð.
Í upphafi bókar sinnar segir Guðný Hallgrímsdóttir að afleiðing þessara hörðu refsinga hafi bitnað „verst á ógiftum vinnukonum sem urðu barnshafandi eftir gifta bændur“. Þessar konur hafi sumar hverjar gripið til þeirra örþrifaráða að leyna þungun sinni og síðan deyða nýfædd börn sín. Þessi mál kölluðust dulsmál (9).
Sagnfræðingurinn Már Jónsson gaf árið 2000 út ritið Dulsmál 1600-1900: fjórtán dómar og skrá. Þar rekur hann réttarsöguna í kringum þessi erfiðu mál og birtir úrval dóma. Samkvæmt Stóradómi átti að drekkja konunum í Drekkingarhyl á Þingvöllum og var það fyrst gert 1684. Karlar sem voru meðsekir í dulsmáli voru hálshöggnir. Á tímabilinu 1600 til 1710 var 25 konum drekkt og sex karlar höggnir fyrir dulsmál (10).
Í bókinni segir Guðný átakanlega sögu Oddnýjar Jónsdóttur (1747-1776) sem hún segir að lýsi einkar vel bágum aðstæðum kvenna sem komust í kast við lögin á 18. öld. Mál Oddnýjar þvældist í sjö ár í réttarkerfinu, þegar hún var 22 til 29 ára.
Oddný var í varðhaldi í Skagafirði og Tugthúsinu í Reykjavík. Þar sat hún inni með tveimur konum sem afplánuðu ævilanga refsidóma: Margréti Einarsdóttur sem dæmd var fyrir gróft lauslæti og Hallgerði Ólafsdóttur sem fékk dóm fyrir flakk og óþekkt. Segir Guðný jafnframt sögu þeirra til að „varpa ljósi á hvernig réttarkerfið tók á siðferðisbrotum ógiftra og fátækra kvenna“ (11).
Við efnistök sín styðst Guðný við dómabækur sýslumanna sem hún segir „stórmerkilegar heimildir um mannlíf á fyrri öldum“. Þeim verði þó að taka með þeim fyrirvara að þær endurspegli varla „allan raunveruleikann“.
Í frásögn sinni verður Guðný því stundum að geta í eyðurnar. Það gerir hún af varúð og án þess að kveða fastar að orði en trúverðugt er. Stíllinn er hófstilltur enda er efnið þess eðlis að hógvær frásögn kallar fram næga undrun hjá lesandanum á þjóðlífsmyndinni sem birtist. Stundum leitar á hugann að það hefði styrkt frásögnina að gefa þessari mynd meiri dýpt.
Þetta er ekki löng bók, 155 bls. með þökkum, myndaskrá, tilvísunum, heimildum og mannanafnaskrá. Hún er vönduð að allri gerð og frágangi. Auk ljósmynda eru í bókinni nokkur kort til að auðvelda lesandanum að átta sig á sögusviði kvennanna þriggja. Annars vegar var það í Skagafirði og hins vegar í Rangárþingi.
Harka réttarkerfisins
Lýsingar á högum Oddnýjar draga upp dapurlegri mynd af réttarkerfinu. Í tæp þrjú ár undirbjó Vigfús Scheving Hansson, sýslumaður á Víðivöllum í Skagafirði, fyrirtöku á máli Oddnýjar. Allan þann tíma var hún fangi á sýslumannssetrinu. Allir sem þar voru og flestir sem þangað komu vissu að hennar biði dauðadómur. Nú dró að lyktum og Guðný segir:
„Sex ár voru liðin frá því hún var fyrst sett í varðhald. Langdregin málaferli, erfið varðhaldsvist og linnulaus kjaftagangur hafði eflaust dregið úr henni alla lífslöngun. Nú hafði jafnvel Vigfús sýslumaður dæmt hana til dauða, sá hinn sami sem hafði eitt sinn verið verjandi hennar við lögþingið á Þingvöllum. Sjálfsagt hafði hún búist við mildari dómi frá honum“ (132).
Styrkur bókar Guðnýjar felst í að færa lesandann nær konunum sem birtast í gömlum dómabókum sem sakborningar en fá hér að njóta sín sem manneskjur. Hófstillt frásögnin dregur ekki úr þunga þess sem þær máttu þola.
Örlög Oddnýjar sýna að harka réttarkerfisins fólst ekki aðeins í refsingunni sem beið hennar heldur einnig í áralangri óvissu og bjargarleysi gagnvart þeim sem fóru með vald yfir lífi hennar.
Þannig verður bókin meira en frásögn af sakamálum liðinnar aldar. Hún minnir, 250 árum eftir andlát Guðnýjar, á að réttlæti verður hvorki metið af lagabókstafnum einum né dómsorðinu, heldur einnig af meðferðinni sem fólk sætir á leið sinni í gegnum réttarkerfið.