Hver mótar hlutverk Íslands?
Morgunblaðið, laugardagur, 21. nóvember 2026
Á örfáum dögum hafa verið stigin ný skref í varnarsamstarfi ríkjanna við Norður-Atlantshaf og á norðurslóðum. Þau snerta Ísland beint og kalla á skýrari stefnu íslenskra stjórnvalda um þátttöku í sameiginlegum vörnum.
Í viðtali við Bloomberg 6. nóvember lýsti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra yfir vilja til að auka viðveru hermanna NATO-ríkja hér á landi. Hún taldi þó ekki þörf á varanlegri viðveru bandarísks herliðs. Skiptiviðvera bandalagsherja dygði.

Sama dag var breski hershöfðinginn Nick Perry, yfirmaður sameiginlegrar herstjórnar NATO í Norfolk í Virginíuríki, hér í heimsókn. Hann áréttaði mikilvægi landsins fyrir varnir Norður-Atlantshafs og fælingarmátt bandalagsins. Framlag Íslands til viðbúnaðar og samstarfs hefði aldrei verið mikilvægara.
Frá Íslandi hélt hershöfðinginn til Oslóar þar sem varnarmálaráðherrar Norðurlandanna ákváðu 11. og 12. nóvember að hefja undirbúning nýs samnings um norrænt varnarsamstarf. Með honum á að skapa lagalegan ramma um hernaðarlega verkaskiptingu ríkjanna. Þetta er nýtt skref eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO. Öll Norðurlöndin fimm lúta nú sömu NATO-herstjórninni í Norfolk.
Til þessa hefur norræna varnarsamstarfið farið fram undir heitinu NORDEFCO, Nordic Defence Cooperation. Áður en öll ríkin gengu í NATO varð samstarfið að taka mið af ólíkri stöðu þeirra í öryggismálum. Nú eru forsendurnar breyttar. Fyrirhugaður samningur á að skapa traustari umgjörð um sameiginlegan viðbúnað og hernaðaráætlanir.
Mestu skiptir að skilgreina hernaðarlegt hlutverk hvers ríkis innan sameiginlegra varnaráætlana. Þannig verði ljóst fyrir fram hver ber ábyrgð á tilteknum verkefnum ef ráðist verður á eitt Norðurlandanna. Þetta er meira en hefðbundið samstarf um æfingar og upplýsingaskipti. Stefnt er að samningsbundinni verkaskiptingu svo að ríkin geti brugðist sameiginlega við án tafa.
Samhliða þessu þróast Sameiginlega viðbragðssveitin, JEF (Joint Expeditionary Force), undir forystu Breta. Þar eru tíu ríki. Öll Norðurlöndin eru í sveitinni, Ísland frá 2021. JEF er samstarfsvettvangur um skjót viðbrögð og sameiginlegar aðgerðir, einkum á Norður-Atlantshafi, Eystrasalti og norðurslóðum. Samstarfið styrkir NATO innan áætlana herstjórna bandalagsins.
Í Osló var samþykkt tillaga Breta um nánara samstarf flota JEF-ríkjanna á norðurslóðum. Ísland er aðili að samþykktinni þótt við höfum engan sjóher. Markmiðið er að samþætta starfsemi flotanna, samræma upplýsingamiðlun og nýta nýja tækni, meðal annars ómönnuð eftirlitskerfi. Þau mega vera borgaralega rekin.
Sérstök áhersla verður lögð á eftirlit með kafbátum, vernd fjarskiptastrengja og öryggi siglingaleiða. Hafsvæðin umhverfis Ísland skipta miklu máli í þessu samstarfi. Aukinn sameiginlegur viðbúnaður hér krefst íslensks samþykkis.
Tvö ný viðfangsefni kalla þannig á íslensk viðbrögð. Annars vegar er norræna varnarsamstarfið, þar sem stefnt er að skýrari verkaskiptingu innan varnarskipulags NATO. Hins vegar er JEF, þar sem Bretar leiða samstarf tíu ríkja um skjót viðbrögð og samþættar aðgerðir. Hugmyndir um nýskipan og áætlanir skarast á hafsvæðunum umhverfis Ísland.
Síðan kemur þriðji þátturinn til sögunnar: aukin hernaðarumsvif á Grænlandi. Í samkomulagi Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands frá 22. september er meðal annars gert ráð fyrir nýju varnarsvæði við Meistaravík á austurströnd Grænlands.
Nýr hernaðarlegur viðbúnaður á Austur-Grænlandi kemur vart til sögunnar án þess að litið sé til Íslands. Vegalengdir, flugvellir, hafnir, birgðaflutningar, fjarskipti og leit og björgun ráða miklu um framkvæmdina. Ísland er traustur bakhjarl næstum óbyggilegrar austurstrandar Grænlands. Íslensk stjórnvöld eiga að ganga til samstarfs með eigin tillögur um verkefni sem Ísland getur tekið að sér.
Skiptiviðvera hermanna leysir okkur ekki undan ábyrgð. Herlið kemur og fer en verkefnin eru viðvarandi. Þau krefjast aðstöðu, öryggisgæslu, birgða og samhæfingar. Við verðum að skilgreina hverju íslenskar stofnanir eiga að sinna.
Ný tækni breytir einnig hlutverki okkar. Að því er takmarkað gagn fyrir okkur að ómönnuð eftirlitskerfi séu reynd hér hafi íslenskar stofnanir hvorki aðgang að upplýsingunum né getu til að vinna úr þeim. Við eigum ekki aðeins að leggja til aðstöðu heldur einnig að leggja rækt við að efla eigin þekkingu og styrk.
Þar blasir við veikleiki. Fréttir um að sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra hafi þurft að nota einkabíla við útköll og æfingar sýna bilið milli yfirlýsinga stjórnvalda um öryggi og þess sem þau fjármagna. Tryggja verður lögreglu og landhelgisgæslunni viðunandi búnað, efla ógnargreiningu og vernda mikilvæga innviði.
Nýju samstarfsverkefnin sýna að bandalagsríki okkar laga varnir sínar að breyttum hættum. Ísland getur ekki látið nægja að benda á mikilvæga legu landsins og treysta því að aðrir sjái um að nýta hana og verja.
Ætlum við aðeins að skapa aðstöðu fyrir herafla til skiptiviðveru eða tökum við sjálf ábyrgð á skilgreindum verkefnum með þeim mannafla, þekkingu, búnaði og fjárveitingum sem nauðsynlegar eru? Þeirri spurningu verða íslensk stjórnvöld að svara áður en aðrir ákveða verkaskiptinguna fyrir okkur.
Nýskipan norrænna varna, aukið flotasamstarf JEF-ríkjanna og hernaðarumsvif á Grænlandi snerta Ísland beint. Nú reynir á hvort íslensk stjórnvöld ætli sjálf að móta hlutverk landsins eða láta aðra ákveða það.