26.3.2026

Hjálmar H. Ragnarsson – minning

Morgunblaðið, fimmtudagur 26. mars 2026.

Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld (1952-2026) var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 26. mars kl. 15.00. Sr. Kristján Valur Ingólfsson jarðsöng. Flutt var tónlist eftir Hjálmar og fram kom í erfidrykkju sem haldin var í húsakynnum Listaháskóla Íslands við Stakkahlíð að Hjálmar hefði skipulagt athöfnina, ákveðið tónlist og texta sem fluttir voru.

Hér er minningargrein sem ég skrifaði í Morgunblaðið

Leiðir okkar Hjálmars H. Ragnarssonar lágu fyrst saman í upphafi tíunda áratugarins vegna vináttu okkar við snillinginn Paul Zukofsky, fiðluleikara og hljómsveitarstjóra, sem stofnaði Sinfóníuhljómsveit æskunnar árið 1977 en var hrakinn frá henni þrátt fyrir mótmæli Hjálmars, Thors Vilhjálmssonar og okkar fleiri.

Félagar mínir í stjórnmálum skildu ekki hvað ég væri að blanda mér í þessar blaðadeilur. Vegna forystu Rutar, konu minnar, fyrir Kammersveit Reykjavíkur hafði ég kynnst Zukofsky og skilyrðislausri kröfu hans um að hver og einn gerði sitt besta.

Ba3a7acd-eeec-43e0-b264-3bfeb85dc222Hjálmar Helgi Ragnarsson

Þetta þótti mér einnig einkenna Hjálmar þegar við ræddum um sama leyti og þessi gjörningahríð gekk yfir hvernig haga skyldi háskólanámi í listum. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra skipaði mig í nóvember 1992 formann nefndar um listmenntun á háskólastigi. Hjálmar var þá forseti Bandalags íslenskra listamanna.

Eftir samtöl við hann vissi ég að hann yrði því fylgjandi ef nefndin legði til að fella ætti listmenntun á háskólastigi í eina stofnun og til yrði einkaháskóli í því skyni. Þetta varð niðurstaðan og snemma árs 1995 samþykkti alþingi einróma lög um listmenntun á háskólastigi.

Í september 1998 var Listaháskóli Íslands formlega stofnaður og stjórn þriggja listamanna og tveggja fulltrúa menntamálaráðuneytisins tók til starfa undir formennsku Stefáns P. Eggertssonar verkfræðings. Í nóvember 1998 var Hjálmar ráðinn rektor frá 1. janúar 1999.

Fyrir réttum 27 árum, 24. mars 1999, rituðum við undir áætlun til þriggja ára um það hvernig nýi skólinn tæki að sér að veita menntun í myndlist, leiklist og tónlist.

Listaháskóli Íslands var síðan formlega settur 10. september 1999 og leiddi Hjálmar skólann í 15 ár. Það var einstakt afrek hjá Hjálmari, eftir allt það sem á undan var gengið við að koma listnáminu á háskólastig, að honum tókst að skapa svo hæfilegt jafnvægi milli listgreina að starfsemi skólans þróaðist á farsælan hátt.

Sannast hefur að meðal framhaldsskólanema er mikill áhugi á því sem skólinn býður í listrænni nýsköpun á öllum sviðum og því sem nú fellur undir hugtakið hugverkaiðnaður. Undir forystu Hjálmars tókst listaháskólanum að virkja þennan mikla skapandi kraft. Hann er í raun orðinn að öflugum starfsmenntaháskóla á þeim sviðum sem skapa hvað mestan arð í samtímanum.

Lokaverkefni Hjálmars í Cornell-háskóla var fræðirannsókn um Jón Leifs og tónlist hans. Þar vann Hjálmar brautryðjendaverk á sviði tónlistarrannsókna á Íslandi. Það er til marks um áhuga Hjálmars á endurreisn tónlistar Jóns að hann hvatti til þess að í tilefni af 100 ára afmæli hans skyldi fé veitt á fjárlögum til að tölvusetja tónhandrit Jóns.

Við Rut færum ástvinum Hjálmars innilegar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Hjálmars H. Ragnarssonar.