17.10.2026

Hikandi ríkisstjórn

Morgunblaðið, laugardagur 17. október 2026.

Bráðabirgðatölur Hagstofunnar sýna að útflutningsverðmæti eldisafurða námu 6,2 milljörðum króna í september. Það er um 67% aukning á föstu gengi frá sama mánuði í fyrra. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru verðmætin komin í tæpan 51 milljarð króna og námu um 7% alls vöruútflutnings. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra á þessum hluta árs.

Þessar tölur sýna hve fiskeldi er mikilvægur þáttur í efnahagslífinu. Það tryggir atvinnu, byggðafestu, tekjur sveitarfélaga og afkomu fjölskyldna. Fyrirtækin þurfa að vita hvaða reglur gilda og hvert stjórnvöld stefna.

Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra til heildarlaga um lagareldi var lagt fram í mars. Meiri hluti atvinnuveganefndar skilaði nefndaráliti og breytingartillögum í júní. Málið komst þó ekki til annarrar umræðu fyrir þinglok í sumar. Atvinnuvegaráðuneytið greindi frá því 28. september að frumvarpið væri ekki á þingmálaskrá vegna forgangs annarra mála.

Ráðuneytið kynnti pólitíska ákvörðun sem sýnir að ríkisstjórnin, verkstjórnin, hefur ekki fylgt boðaðri lagasetningu eftir. Ríkisstjórnin ákveður forgangsröð stjórnarfrumvarpa og ber ábyrgð á henni.

Atvinnuvegaráðherra segir samstöðu hafa skort innan fiskeldisgreinarinnar um frumvarpið á lokametrunum. Vissulega er mikilvægt að hlusta á þá sem eiga að starfa eftir lögunum. Það leysir stjórnvöld hins vegar ekki undan því að taka afstöðu og vinna tillögum sínum fylgi á alþingi.

Vöxtur fiskeldis réttlætir alls ekki að slakað sé á kröfum um umhverfisvernd. Vernd villtra laxastofna, heilbrigði eldisfisks og lífríki fjarða eru verðmæti sem ber að varðveita. Hætta er á erfðablöndun og áhyggjur þeirra sem eiga afkomu sína undir villtum laxastofnum eru réttmætar. Þeir sem stunda fiskeldi þurfa skýran og fyrirsjáanlegan ramma um atvinnugrein sína.

Fyrirtæki þurfa að vita hvaða kröfur þau eiga að uppfylla. Almenningur þarf að geta treyst því að eftirlitið sé virkt og að brugðist verði við brotum. Sveitarfélög þurfa að geta skipulagt innviði og þjónustu. Óvissa um fyrirhugaðar breytingar gagnast engum þessara aðila.

Jafnframt þarf að greina á milli eldisforma. Landeldi og sjókvíaeldi kalla að hluta á ólíkar lausnir.

1390632Sjókvíar (mbl.is/Þorgeir Baldursson).

Deilan um áform Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði sýnir að mínu mati hvernig ófullnægjandi lagaumgjörð gerir erfiðan ágreining enn verri. Þar takast á hagsmunir Kaldvíkur, sem fékk rekstrar- og starfsleyfi til sjókvíaeldis í september, og þeirra sem leggjast gegn því að fjörðurinn verði nýttur með þessum hætti. Vandaðar lagaumbætur eiga að skapa traustari grundvöll fyrir meðferð slíkra mála, þótt þær eyði ekki ágreiningi um einstakar framkvæmdir.

Ekki verður þó fullyrt að samþykkt frumvarpsins í sumar hefði breytt leyfisveitingunum í september. Meiri hluti atvinnuveganefndar lagði til að almenn gildistaka laganna yrði 1. janúar 2027. Gagnrýnin snýr að því að ríkisstjórnin hafi ekki fylgt eftir boðuðum umbótum og skýrt framhaldið.

Þegar stjórnvöld heykjast á nauðsynlegum lagaumbótum bera fyrirtæki og íbúar þungann af óvissunni. Stofnunum ber að afgreiða málin samkvæmt gildandi lögum á meðan ráðherrar tala um að breyta þeim. Þannig skapast bil milli pólitískra yfirlýsinga og framkvæmdar gildandi laga sem getur aukið tortryggni og hert deilur. Vandinn í Seyðisfirði varpar ljósi á þörfina fyrir að ríkisstjórnin setji skýrar reglur sem samræma atvinnuuppbyggingu, náttúruvernd og hagsmuni heimamanna.

Eftir að kjósendur höfnuðu óskamáli Viðreisnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður flokksins: „Og áfram setjum við almannahagsmuni framar sérhagsmunum.“ Réttmætt er að nota þann mælikvarða á störf ráðherra flokksins.

Hvernig birtist vilji Viðreisnar til gæslu almannahagsmuna við meðferð lagareldisfrumvarpsins? Hanna Katrín Friðriksson skýrir afdrif frumvarpsins fyrir þinglok með skorti á samstöðu innan greinarinnar. Um framhaldið segir ráðuneyti hennar að önnur mál hafi fengið forgang. Hvorug skýringin svarar því hvernig ríkisstjórnin hyggst leysa ágreininginn og ljúka málinu.

Ef ráðherrann telur frumvarpið þjóna almannahagsmunum þarf hún að skýra hvers vegna ríkisstjórninni tókst ekki að tryggja framgang þess og hvernig hún hyggst nú vinna því fylgi. Ef frumvarpið var hins vegar ekki nægilega vel úr garði gert ber henni að segja hvað þurfi að laga og hvenær því verði lokið.

Almannahagsmunir verða ekki skilgreindir með því einu að kalla sjónarmið annarra sérhagsmuni. Þeir felast hér í vernd náttúrunnar, traustri stjórnsýslu, verðmætasköpun og lífvænlegum byggðum. Viðreisn verður að sýna í verki hvernig flokkurinn hyggst samræma þessi markmið. Yfirlýsing formannsins kallar á skýrari svör en að vísa til ósamkomulags þeirra sem undir löggjöfinni starfa.

Ríkisstjórnin þarf að leggja fram áætlun um framhald þessa stórmáls og gera grein fyrir þeim ágreiningsefnum sem enn eru óleyst. Ábyrgðin hvílir á allri ríkisstjórninni þótt atvinnuvegaráðherra leiði málið. Atvinnugreinin, náttúran og almenningur eiga rétt á að tekið sé af skarið á þann veg að festa komi í stað óvissu.

Það reynir fyrst á vilja til gæslu almannahagsmuna þegar taka þarf ákvörðun þrátt fyrir ágreining. Þótt orð séu til alls fyrst í stjórnmálum eru það verkin sem tala þegar upp er staðið.