26.9.2026

Grænland og pólitísk ábyrgð

Moegunblaðið, laugardagur 26. september 2026,

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði þriðjudaginn 22. september ásamt Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landsstjórnarinnar, samning um varnir Grænlands. Þar með lauk deilu sem hófst með yfirlýsingum Trumps um að Bandaríkin yrðu af öryggisástæðum að eignast landið með góðu eða illu.

Framganga forsetans var skammarleg gagnvart Dönum og Grænlendingum og olli vandræðum innan Atlantshafsbandalagsins (NATO). Forsetanum varð ekki að ósk sinni um bandarísk yfirráð. Fullveldi danska ríkisins er staðfest ásamt sjálfsákvörðunarrétti grænlensku þjóðarinnar. Bandaríkin fá hins vegar víðtækar og ótímabundnar heimildir til hernaðarlegrar aðstöðu á Grænlandi. Allir aðilar lýsa ánægju með niðurstöðuna.

Images-2-.-ggtNiðurstöðunni fagnað í New York 22. september 2026.

Samningurinn er uppfærsla og viðauki við varnarsamning Dana og Bandaríkjamanna frá 1951. Bandaríkjunum er heimilt að endurnýja starfsemina í Pituffik-geimstöðinni og koma á fót nýjum varnarsvæðum í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi og Meistaravík á norðausturströndinni. Þá geta Bandaríkjamenn óskað eftir fleiri svæðum fyrir mannaðar og ómannaðar herstöðvar. Auk þess er þeim heimilt að þróa eldflaugavarnir undir merkjum Golden Dome (gullhvelfingarinnar).

Ríkjum utan NATO verður óheimilt að reisa hernaðarmannvirki á Grænlandi. Fjárfestar frá ríkjum utan NATO, samstarfsríkja bandalagsins og Evrópusambandsins, mega ekki ná undirtökum í viðkvæmum greinum ef það er talið ógna öryggi. Þarna er einkum horft til Kína og Rússlands.

Samningurinn er ótímabundinn og honum verður aðeins breytt með samþykki allra aðila. Ákvæði hans gilda þótt Grænland verði sjálfstætt. Nýju grænlensku ríki bæri að vera áfram í NATO og taka við skyldum Danmerkur samkvæmt varnarsamningnum. Bandaríkjamenn hafa með samþykki Grænlendinga styrkt stöðu sína í landi þeirra. Leið Grænlendinga úr danska konungsríkinu er skýrari en áður.

Það fellur vel að íslenskum öryggis- og varnarhagsmunum að engin óvissa ríki vegna Grænlands.

Bandaríski flugvöllurinn í Narsarsuaq varð frá 1941 mikilvægur áfangastaður í flugi milli Norður-Ameríku, Grænlands, Íslands og Bretlands. Bandaríkjamenn lögðu niður herstöðina þar 1958 en nú snúa þeir aftur þangað innan ramma NATO.

Danir lögðu 1.800 m langa malarbraut í Meistaravík árið 1952 vegna blý- og sinkvinnslu. Flugbrautin hefur síðar þjónað dönsku herliði og Sirius-sleðasveitinni við gæslu dansks fullveldis á Norðaustur-Grænlandi. Völlurinn er lokaður almennri umferð en íslenska flugfélagið Norlandair flýgur þangað á vegum danska hersins.

Aukin hernaðarleg umsvif í Meistaravík skapa ný bein tengsl Grænlands við Ísland og Jan Mayen. Í beinni loftlínu eru um 550 kílómetrar frá Meistaravík til Jan Mayen. Frá Meistaravík til nyrsta hluta Vestfjarða eru um 650 kílómetrar og um 900 kílómetrar til Reykjavíkur. Jan Mayen er um 550 kílómetra norðaustur af Íslandi. Þarna myndast hernaðarleg tenging yfir Grænlandshaf, norðan við GIUK-hliðið milli Grænlands, Íslands og Skotlands.

Bandaríkjamenn reistu árið 1943 miðunarstöð fyrir fjarskipti á Jan Mayen. Stöðin var undir stjórn bandaríska flotans með aðkomu liðs frá Íslandi. Jan Mayen er hluti Noregs og Norðmenn halda þar nú úti hernaðar- og eftirlitsstöð með flugbraut. Í lok ágúst var hreyfanlegt Kongsberg StrikeMaster-flugskeytakerfi í fyrsta sinn flutt flugleiðis tímabundið til Jan Mayen vegna NATO-æfingar. Bresk Airbus A400M-flutningavél flutti kerfið en norskar, bandarískar og breskar hersveitir tóku þátt í aðgerðinni.

Rússar töldu æfinguna ögrun við sig á norðurslóðum. Hún var hins vegar liður í aukinni árvekni á vegum NATO hér á okkar svæði. Allt sem felst í samningum um Grænland er gert með vísan til NATO-samstarfsins sem verður sífellt sýnilegra í norðri.

Síðan í janúar 2026 hefur utanríkisráðherra Íslands gert lítið úr varnarskuldbindingum Bandaríkjanna og styrk NATO á norðurslóðum með vísan til ummæla og afstöðu Trumps til Grænlands.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði 6. janúar 2026 að setja bæri tvíhliða varnar- og öryggissamning Íslands við Evrópusambandið á oddinn. Grænlandsdeilan varð henni tilefni til þess að beina Íslandi inn í Evrópusambandið þegar hún boðaði að flýta yrði þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-aðildarviðræður.

Við þekkjum niðurstöðu kjósenda í atkvæðagreiðslunni og nú sýnir samningurinn um Grænland að ráðherrann hafði ekki aðeins rangt fyrir sér þegar hún hélt að já-stefna hennar myndi sigra 29. ágúst heldur einnig þegar hún gat sér til um afleiðingar orða Trumps.

Samstarf við Evrópusambandið er í mörgu gagnlegt en það tryggir hvorki öryggi Íslands né annarra landa við Norður-Atlantshaf.

Utanríkisráðherra bar að greina á milli orða Trumps og varanlegra öryggishagsmuna Íslands. Hún kaus þess í stað að tengja Grænlandsmálið við ESB-aðildarstefnu eigin flokks, Viðreisnar. Beiting ráðherravalds í þágu flokkshagsmuna í stað þjóðarhagsmuna verður varla augljósari. Óskhyggja réð afstöðu ráðherrans varðandi Grænland og hvaða ályktanir ætti að draga af orðum Trumps.

Við blasir rangt mat utanríkisráðherra á mikilvægasta utanríkis- og öryggismáli síðari tíma og misheppnuð tilraun til að nota Grænland í þágu ESB-stefnu sem kjósendur höfnuðu. Í þingræðisríki fylgir pólitísk ábyrgð slíkri afstöðu. Þegar þjóðin hefur hafnað stefnunni og staðreyndir sýna markleysi matsins er aðeins eitt eftir: að axla ábyrgð.