28.11.2026

Fjórðu þyrluna vantar

Morgunblaðið, laugardaginn 28. nóvember 2026

Við örlagaríka atburði í þjóðlífinu er óhjákvæmilegt að menn líti í eigin barm. Hvað má af þeim læra? Hvernig hefur verið staðið að málum til þessa? Hvað ber að gera til að auka öryggi þeirra sem eiga líf sitt undir því að rétt sé staðið að ákvörðunum um viðbúnað? Þetta á ekki síst við um sjóslys við land okkar.

Björgunarafrekið sem unnið var á hafi úti fyrir Austfjörðum miðvikudaginn 25. nóvember, þegar 14 skipverjum af Jökli ÞH 299 var bjargað úr sjávarháska, verður lengi í minnum haft. Þrír skipverjanna fórust og er mikill harmur kveðinn að ástvinum þeirra. Við sameinumst um að votta þeim samúð og þakka öllum sem að björguninni komu.

Sjóslys hafa oft orðið til þess að stjórnvöld endurskoða frá grunni viðbúnað vegna leitar og björgunar á hafi úti.

Danska Grænlandsfarið Hans Hedtoft fórst 30. janúar 1959 á leið til Kaupmannahafnar úr fyrstu ferð sinni til Grænlands. Með skipinu fórust allir sem um borð voru, 95 manns. Eftir þetta hörmulega slys efldu Danir stórlega eftirlit sitt á hafinu við Grænland. Slysið hafði varanleg áhrif á skipulag og umfang starfsemi danska sjóhersins við Grænland.

1241550TF-GRO mbl.is/Árni Sæberg.

Ákveðið var að haldið yrði að staðaldri úti eftirlitsskipum í og við Grænland. Það hefur ekki aðeins aukið öryggi sjófarenda þar heldur einnig hér á landi. Skipin hafa lagt okkur lið og árum saman heimsótt Reykjavíkurhöfn og aðrar íslenskar hafnir.

Árið 2006 urðum við Íslendingar að líta í eigin barm vegna ákvörðunar Bandaríkjastjórnar um brottflutning varnarliðsins. Brýnasta úrlausnarefnið var að tryggja að ekki drægi úr öryggi við landið eða á landi þegar bandaríska þyrlubjörgunarsveitin hyrfi á brott. Íslendingar urðu sjálfir að axla alla ábyrgð á þessum þætti öryggis síns.

Ákveðið var að efla bæri landhelgisgæsluna og að hún fengi fjórar þyrlur til að tryggja sem best tvær þyrluvaktir allan sólarhringinn, nýja eftirlitsflugvél og nýtt varðskip. Litið var á tækjabúnað gæslunnar sem eina heild við framkvæmd leitar- og björgunarstarfa. Jafnframt varð að fjölga starfsmönnum gæslunnar og leggja aukna áherslu á þjálfun þeirra.

Við björgun skipverjanna á Jökli reyndi einmitt á samspil eftirlitsflugvélar og björgunarþyrlu. Af frásögn Georgs Kr. Lárussonar, forstjóra landhelgisgæslunnar, á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum að morgni 26. nóvember mátti ráða að nærvera eftirlitsflugvélarinnar Sifjar skipti miklu þegar tekin var ákvörðun um að víkja frá öryggisreglum gæslunnar og senda eina þyrlu 60 sjómílur á haf út.

Frásögnin af samskiptum þeirra sem stjórnuðu björgunaraðgerðunum við skipbrotsmennina sýndi einnig hve mikilvægt er að unnt sé að halda uppi sambandi við þá sem bíða björgunar. Vitneskjan um að eftirlitsflugvélin væri yfir þeim og þyrlan á leiðinni efldi vafalaust kjark skipbrotsmannanna þar sem þeir héldu hópinn án björgunarbáta en í flotgöllum í náttmyrkri þar sem ölduhæð var að minnsta kosti sex metrar.

Við ákvörðun um stærð björgunarþyrlna var á sínum tíma lögð áhersla á að unnt yrði að taka um borð heila togaraáhöfn í einni ferð. Nú hefur enn sannast gildi þess að landhelgisgæslan hafi yfir svo stórum og öflugum þyrlum að ráða.

Enn er þó ólokið einu meginverkefninu sem við blasti fyrir 20 árum. Þyrlurnar eru þrjár en ekki fjórar. Í svari dómsmálaráðherra á alþingi árið 2025 kom fram að við greiningu á þörfum landhelgisgæslunnar árið 2016 hefði verið miðað við fjórar þyrlur til að sinna leit og björgun á sjó allt árið. Verkefnum þyrlusveitarinnar hefði fjölgað síðan. Í apríl 2025 samdi ráðherrann hins vegar um áframhaldandi leigu þriggja þyrlna til sjö ára. Í október sl. var engin björgunarþyrla gæslunnar flughæf um nokkurra klukkustunda skeið.

Við mat á fjölda þyrlna verður að sjálfsögðu að taka mið af því að sinna þarf reglubundnu viðhaldi þeirra auk þess sem þær kunna að bila fyrirvaralaust. Fjöldi þyrlna í eigu eða á leigu hjá gæslunni segir því ekki alla söguna um björgunargetu hennar á hverjum tíma.

Öryggisreglur um að tvær þyrlur komi að björgunaraðgerðum langt undan landi eru ekki síst settar til að tryggja öryggi björgunarmannanna sjálfra. Það er mikið í húfi fyrir þá sem þurfa að taka ákvörðun um að víkja frá slíkum reglum. Við eigum að búa þannig um hnútana að sem sjaldnast þurfi að taka slíkar ákvarðanir. Ekki má gera þá kröfu til björgunarmanna að þeir vinni hetjudáðir vegna þess að ekki hafi verið nægilega vel búið að þeim.

Enginn getur fullyrt að afdrif skipverjanna á Jökli hefðu orðið önnur hefði landhelgisgæslan haft fjórar þyrlur til umráða. Hitt er ljóst að okkur ber að fara yfir reynsluna af björgunaraðgerðunum með þarfir þyrlusveitarinnar til framtíðar í huga.

Við lifum á tímum þegar þjóðir líta í eigin barm vegna gjörbreyttra aðstæðna í öryggismálum. Hér má ekki gleymast við slíka endurskoðun að landhelgisgæslan er ein helsta öryggisstofnun þjóðarinnar. Hún gegnir auk þess sífellt mikilvægara hlutverki í alþjóðlegu samstarfi á Norður-Atlantshafi.

Við kaup á öryggisbúnaði og þjálfun þeirra sem nýta hann er það von okkar allra að sem sjaldnast reyni til þrautar á getu búnaðarins og þeirra sem beita honum. Ábyrgð okkar felst í að tryggja að þegar á reynir sé ekkert til sparað.

Afrek þyrlusveitarinnar og samstarfsmanna hennar við björgun skipverjanna á Jökli vekur aðdáun okkar allra. Þakklæti okkar birtist best í verki með því að búa þessu góða fólki sem best starfsskilyrði til framtíðar.