14.11.2026

Fjárfesting í sjálfstæði

Morgunblaðið, laugardagur, 14. nóvember 2026

Eitt mikilvægasta verkefni nú og næstu ára er að skapa eldra fólki skilyrði til að njóta sín og halda sjálfstæði sínu eins lengi og unnt er. Þar skiptir heilsuefling miklu. Umræðan má ekki einskorðast við það hve mörg hjúkrunarrými þurfi að byggja. Við eigum einnig að íhuga hvernig við getum hjálpað fólki að varðveita færni sína og draga þannig úr þörf fyrir stofnanavist. Lífsgæði einstaklingsins og skynsamleg nýting sameiginlegra fjármuna fara þar saman.

Janus Guðlaugsson, íþrótta- og heilsufræðingur, hefur lengi talað fyrir markvissri heilsueflingu eldra fólks. Hann leggur áherslu á styrktarþjálfun, reglulega hreyfingu og næringu. Janus vill að fjárfest sé í heilsu áður en veikindi og færniskerðing kalla á umfangsmikla umönnun. Markmiðið er að fólk geti áfram sinnt daglegu lífi, áhugamálum og samskiptum á eigin forsendum.

Janus hefur kynnt dæmi: Sé árlegur rekstrarkostnaður vegna einstaklings á dvalar- eða hjúkrunarheimili um tuttugu milljónir króna nemur kostnaður vegna þúsund einstaklinga tuttugu milljörðum. Frestist þörf þeirra fyrir slíka þjónustu um eitt ár eru miklir hagsmunir undir. Þetta jafngildir þó ekki sjálfkrafa tuttugu milljarða sparnaði. Önnur þjónusta kostar fé og fastur kostnaður hverfur ekki.

Í viðtali við RÚV 21. október áréttaði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra mikilvægi þess að fjárfesta í heilsueflingu eldra fólks. Hann taldi að fimm ára áætlanagerð ríkisins næði hugsanlega of skammt. Um væri að ræða áratugafjárfestingar. Í hallarekstri gæti verið freistandi að skera niður forvarnarstarf, þótt vandinn stækkaði við það. Með þessu er viðurkennt að árlegur sparnaður getur orðið að langtímakostnaði.

Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður framsóknarmanna, spurði heilbrigðisráðherra 22. október á alþingi um heilsueflingu eldra fólks. Hann vísaði til Janusar en benti á að endurhæfingarlaug Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki hefði verið lokað. Taldi þingmaðurinn að það vantaði um tuttugu milljónir króna á ári til reksturs laugarinnar. Þetta er dæmi um ákvörðun sem þarf að meta út frá fleiri sjónarmiðum en útgjöldum einnar stofnunar. Til hvaða samfélagslegs kostnaðar leiðir slík lokun til skemmri og lengri tíma?

Alma Möller heilbrigðisráðherra kvaðst þekkja vel starf Janusar og ætlaði að kynna sér sundlaugarmálið. Hún vísaði til samstarfs landlæknis og sveitarfélaga og lagði áherslu á að heilsuefling og forvarnir væru verkefni samfélagsins alls.

Þótt samfélagið allt hafi hlutverki að gegna bera ráðherrar ábyrgð á ákvörðunum sem undir þá heyra.

Landlæknir styður heilsueflingu eldri borgara með útgáfu leiðbeininga, fræðslu og samstarfi við sveitarfélög. Þá hefur verið unnið að bættu aðgengi að upplýsingum um hreyfiúrræði. Jafnframt þarf að tryggja að fólk geti nýtt þjónustuna, óháð efnahag, búsetu og færni. Upplýsingar um það sem er í boði duga þeim skammt sem komast ekki að heiman án aðstoðar.

Screenshot-2026-11-14-at-17.53.45Mynd af vefsíðu Janus heilsuefling.

Húsnæði og nærumhverfi ráða einnig miklu. Í Morgunblaðinu 2. nóvember minnir Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka, á að með hækkandi aldri búi fleiri einir og húsnæðisþörfin breytist. Hann leggur áherslu á að hentugt húsnæði, stuðningur, endurhæfing og hjúkrun myndi samfellda þjónustu. Þetta tengist heilsueflingu beint. Aðgengileg heimili, gönguleiðir og nálæg þjónusta auðvelda fólki að hreyfa sig og halda félagslegum tengslum. Skipulag sveitarfélaga á að styðja slíkt daglegt sjálfstæði.

Áætlanir skortir ekki. Í Gott að eldast, aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2023-2027, er lögð áhersla á heilsueflingu eldra fólks og betri samvinnu um þjónustu á heimilum þess. Þar koma bæði félags- og húsnæðismálaráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið að verki. Í þróunarverkefnum áætlunarinnar var beinlínis gert ráð fyrir að sveitarfélög og heilbrigðisstofnanir gætu sameinast um að fela þriðja aðila rekstur heimaþjónustunnar. Þar hefur því þegar verið gert ráð fyrir slíkri samstarfsleið.

Ríki og sveitarfélög greiða fyrir þjónustu við eldra fólk, en skipting ábyrgðar og kostnaðar getur dregið úr árangri. Sparnaður hjá öðrum getur aukið útgjöld hjá hinum. Þess vegna þarf að meta fjárfestingu í heilsueflingu út frá heildarávinningi og því hvernig hún bætir líf fólks.

Raunhæf leið væri að ríki og sveitarfélög settu sér sameiginleg markmið um að eldra fólk héldi færni sinni, gæti búið lengur heima og þyrfti síður á stofnanaþjónustu að halda. Þau fjármögnuðu þjónustuna saman og byðu reksturinn út. Rekstraraðili fengi svigrúm til að tengja saman heilsueflingu, endurhæfingu og daglega aðstoð. Í samningi yrðu skýrar kröfur um gæði, aðgang fólks með mismunandi þarfir og óháð mat á árangri.

Byrja mætti á nokkrum svæðum og nýta reynslu af þróunarverkefnum sem þegar eru í gangi. Árangurinn yrði metinn eftir færni og líðan fólks, þörf þess fyrir þjónustu og heildarkostnaði. Ríki og sveitarfélög bæru áfram ábyrgð, en þjónustan tæki mið af þörfum fólks fremur en verkskiptingu milli opinberra aðila.

Gildi forvarna er viðurkennt og áætlanir hafa verið gerðar. Nú þarf að tengja markmiðin við fjármagn, ábyrgð og framkvæmd.

Ég segi þetta ekki sem hlutlaus áhorfandi heldur sem maður á níræðisaldri sem er við góða heilsu og býr heima. Fyrir um ári ákvað ég að bæta Janusaræfingunum við daglega hreyfingu. Þær leiddu mig í fyrsta skipti inn í World Class. Enn held ég að minnsta kosti áfram að skrifa og gefa út bækur.