13.7.2024

Fjarar hratt undan Joe Biden

Morgunblaðið, laugardagur, 13. júlí 2024

Heims­frægi leik­ar­inn Geor­ge Cloo­ney birti grein á vefsíðu The New York Times miðviku­dag­inn 10. júlí. Hann sagðist skrifa hana sem lífstíðardemó­krati. Hann hefði stjórnað stærstu fjár­öfl­un­ar­viðburðum í sögu flokks­ins: fyr­ir Barack Obama árið 2012, Hillary Cl­int­on árið 2016 og Joe Biden árið 2020. Í júní sl. hefði hann ásamt öðrum stjórnað stærsta viðburðinum af öll­um fyr­ir nokk­urn fram­bjóðanda demó­krata, til stuðnings end­ur­kjöri Bidens.

Cloo­ney lýsti aðdáun sinni á Biden sem öld­unga­deild­arþing­manni, vara­for­seta og for­seta. Hann liti á Biden sem vin sinn og hefði trú á hon­um og mann­kost­um hans. Á und­an­förn­um árum hefði Biden sigrað í mörg­um orr­ust­um, eina gæti hann þó ekki sigrað, orr­ust­una við tím­ann. Eng­inn okk­ar gæti það.

Því næst seg­ir Cloo­ney að sá Biden sem hann hitti fyr­ir þrem­ur vik­um hafi ekki verið sami Biden og fyr­ir fjór­um árum – hann hafi verið sami maður­inn og birst hafi öll­um í CNN-sjón­varp­s­kapp­ræðunum við Don­ald Trump 27. júní 2024.

„Var hann þreytt­ur? Já. Með kvef? Kannski. For­ystu­menn flokks okk­ar verða hins veg­ar að hætta að segja okk­ur að 51 millj­ón manna hafi ekki séð það sem við sáum. Við erum öll hald­in svo mikl­um ofurótta við annað kjör­tíma­bil Trumps að við höf­um valið þann kost að horfa fram hjá öll­um viðvör­un­ar­merkj­um. Sjón­varps­viðtal Geor­ge Stephanopou­los [við Biden] áréttaði aðeins það sem við sáum viku fyrr. Sem demó­krat­ar höld­um við all­ir sam­an niðri í okk­ur and­an­um eða lækk­um hljóðið í hvert sinn sem við sjá­um for­set­ann, sem við virðum, ganga niður úr Air Force One eða snúa sér í átt­ina að hljóðnema til að svara óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn.“

ImagesclGeorge Clooney

Leik­ar­inn sem höfðar til millj­óna demó­krata seg­ir að þeir muni ekki sigra und­ir for­ystu þessa for­seta. Við það bæt­ist svo að demó­krat­ar muni ekki held­ur ná meiri­hluta í full­trúa­deild þings­ins og þeir muni tapa meiri­hlut­an­um í öld­unga­deild­inni. Þetta sé ekki einka­skoðun sín seg­ir Cloo­ney held­ur allra öld­unga­deild­arþing­manna, full­trúa­deild­arþing­manna og rík­is­stjóra í einka­sam­töl­um við sig, hvers og eins, sama hvað þeir segi op­in­ber­lega.

Loka­orðin í grein Cloo­neys eru: „Joe Biden er hetja; hann bjargaði lýðræðinu 2020. Við þörfn­umst þess að hann geri það aft­ur 2024.“

Um­deil­an­legt er hve mikið aðdrátt­ar­afl stór­stjörn­ur hafa fyr­ir ein­staka fram­bjóðend­ur eða flokka í kosn­inga­bar­áttu, þótt þær auki sjálfs­traust fram­bjóðand­ans og sig­urvissu flokks­ins. Al­gjör­lega er óvíst að þeir sem þekkt and­lit hampa mest sigri í kosn­ing­um. Því kynnt­umst við í ný­legu for­seta­kjöri hér.

Grein Cloo­neys er ekki skrifuð til að móta al­menn­ings­álitið. Til­gang­ur henn­ar er að hafa áhrif á einn mann, vin höf­und­ar­ins, Joe Biden. Hún veg­ur þó ör­ugg­lega einnig þungt hjá þeim sem njóta trausts Bidens við töku mik­il­vægra ákv­arðana hans um eig­in framtíð og þjóðar sinn­ar. Til orða Cloo­neys er einnig vitnað um all­an heim og eru þau tal­in til marks um að Biden hljóti að skilja þegar skell­ur í tönn­um.

Án vand­ræða Bidens í sjón­varp­s­kapp­ræðunum hefði Cloo­ney lík­lega aldrei op­in­berað það sem hann taldi sig sjá þrem­ur vik­um fyrr, að vegna hrum­leika hefði Biden ekki burði til að gegna for­seta­embætt­inu. – Þegj­andi hefði Cloo­ney látið sig hafa að kjósa hann. Leiðara­höf­und­ar The New York Times segja: Biden á að víkja, geri hann það ekki mun blaðið samt styðja hann frek­ar en Trump.

Joe Biden er greini­lega svo brugðið vegna ald­urs að hann hef­ur ekki krafta til að gegna embætti for­seta Banda­ríkj­anna í fjög­ur ár þótt svo ólík­lega færi að hann næði kjöri. Að for­set­inn átti sig ekki á stöðu sinni má til dæm­is skýra með því að ald­ur­inn trufli dómgreind hans. Þeir sem standa hon­um næst hafa ekki sömu af­sök­un. Þeir hafa eig­in dómgreind og heiður að verja með af­stöðu sinni; að láta sem ekk­ert sé er til þess eins fallið að gera þá mark­lausa.

Önnur áhrifa­mann­eskja meðal demó­krata, Nancy Pe­losi (84 ára), sagði sama dag og grein Cloo­neys birt­ist að það væri Bidens sjálfs að ákveða hvað hann gerði. Þessi orð voru að sjálf­sögðu ekki túlkuð sem stuðning­ur Pe­losi, fv. leiðtoga demó­krata í full­trúa­deild­inni, við Biden.

Þegar þetta er skrifað læt­ur Joe Biden eng­an bil­bug á sér finna. Hon­um fór vel úr hendi að vera gest­gjafi á 75 ára af­mæl­is­fundi NATO í Washingt­on í vik­unni. Fjöl­miðlar létu eins og skamm­laus og mis­mæla­laus fram­ganga hans í tengsl­um við fund­inn fengju ein­hverju breytt um hvort hann gæti starfað sem for­seti til 86 ára ald­urs.

Fyrst ber að átta sig á að hann nær að óbreyttu ekki end­ur­kjöri í nóv­em­ber. Hann ákvað að fara í kapp­ræðurn­ar við Trump und­ir lok júní til að sjá hvort hann stæðist prófið í tæka tíð fyr­ir flokksþing demó­krata í ág­úst. Hann stóðst það ekki en neit­ar að viður­kenna niður­stöðuna, víki hann ekki.

Áköf­ustu tals­menn þess að Biden hætti ekki við fram­boðið eru Trump og fé­lag­ar. Þeir telja sig nú eiga sig­ur­inn vís­an. Án Bidens er talið að næst­um hvaða fram­bæri­leg­ur demó­krati sem er gæti sigrað Trump.

Stríð er háð í Evr­ópu og á topp­fundi NATO var ekki aðeins ályktað harka­lega gegn Rúss­um vegna ólög­legu inn­rás­ar­inn­ar í Úkraínu held­ur kvað við enn harðari tón en áður gagn­vart Kín­verj­um. Þeir voru sakaðir um að gera Rúss­um kleift að berj­ast áfram.

Á sama tíma og ein­ræðis­herr­ar herða tök­in og standa að árás­um á al­menna borg­ara og sjúkra­hús eru valda­skipti og stjórn­má­la­upp­nám í lýðræðis­legu kjarn­orku­veld­un­um þrem­ur í for­ystu NATO. Banda­lagið er þó öfl­ugra en nokkru sinni enda mik­ils af því kraf­ist.