Fælingarmáttur skiptir miklu
Morgunblaðið, laugardagur 10. október 2026.
Á morgun eru fjörutíu ár frá því að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, settust að viðræðum í Höfða. Dagana 11. og 12. október 1986 beindust augu heimsins að Reykjavík. Fundurinn varð mikilvægur áfangi á leiðinni til afvopnunar og loka kalda stríðsins.

Þeir voru alvörugefnir þegar þeir kvöddust við bíl Reagans utan við Höfða.
Nú í vikunni heimsótti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Höfða og lagði síðar áherslu á það á blaðamannafundi að fælingarmáttur væri besta leiðin til að fyrirbyggja ofbeldi og stríð. Samstarf Íslands og bandamanna þess ætti að koma í veg fyrir átök. Fælingarmáttur skapar skilyrði fyrir slökun nú eins og áður.
Fyrir fjörutíu árum tókst leiðtogum stórveldanna að sameina staðfestu í varnarmálum og vilja til samninga. Nú beita Rússar vopnum, hótunum og ögrunum til að knýja fram vilja sinn.
Á níunda áratugnum varð mesta endurnýjun Keflavíkurstöðvarinnar frá upphafi hennar. Í bandarískum stjórnargögnum frá 1987 var lýst milljarðs dollara áætlun sem náði meðal annars til styrktra flugskýla og nýrra ratsjárstöðva. Allt var þetta gert til að styrkja varnir á Norður-Atlantshafi. Ísland var þá, eins og nú, mikilvægur hlekkur í vörnum leiðanna milli Norður-Ameríku og Evrópu og eftirliti með hernaðarlegum umsvifum á svæðinu.
Bandaríkjamenn breyttu jafnframt flotastefnu sinni. Þeir sýndu með æfingum að þeir gætu tekið frumkvæði norður í Noregshafi og þrengt að sovéska Norðurflotanum nær heimastöðvum hans á Kólaskaga ef til stríðs kæmi. Flugmóðurskip, árásarkafbátar og kafbátaleitarflugvélar sóttu norður. Sovétmenn urðu að taka mið af þörfinni fyrir varnir eigin hafsvæða og mikilvægra herstöðva. Þannig var dregið úr svigrúmi þeirra til að ógna flutningaleiðum yfir Atlantshaf.
Vernd sovésku eldflaugakafbátanna var lykilverkefni Norðurflotans. Sama verkefni hefur áfram mikið vægi hjá rússneska Norðurflotanum. Vladimír Tsjernavín, yfirmaður sovéska flotans, sagði árið 1989 að í bandarísku flotastefnunni fælist ógn um kjarnorkuárásir langt inn í Sovétríkin og hafnbann við strendur þeirra. Orð hans sýndu áhyggjur sovésku flotaforystunnar af bandarísku framvarnastefnunni og áhrifum hennar á eigin stöðu.
Þessi hernaðarþróun á Norður-Atlantshafi hindraði ekki val á Íslandi sem fundarstað leiðtoganna árið 1986. Gorbatsjov kom til NATO-ríkis með bandaríska herstöð. Eftir fundina í Höfða ávarpaði Reagan bandaríska herliðið í Keflavík en Gorbatsjov efndi til blaðamannafundar í Háskólabíói.
Íslendingar þurftu ekki að afneita varnarsamstarfinu til að taka á móti leiðtogunum. Þeir stóðu með bandamönnum sínum og sköpuðu jafnframt umgjörð viðræðna um róttækustu afvopnunarhugmyndir kalda stríðsins.
Það hefur gildi að rifja þetta upp nú. Hér var og er enn þeirri skoðun oft hampað að efling varna auki spennu og torveldi samninga. Þegar fundarins í Höfða er minnst er rétt að minna einnig á að hernaðarlegur þrýstingur getur skilað árangri í þágu friðar og stuðlað að afvopnunarsamningum. Fælingarmáttur sýnir að álitlegra er að semja en að beita valdi.
Ekkert gerist þó sjálfkrafa. Að baki herafla verður að vera pólitísk forysta sem skilur hvernig á að beita honum í þessu skyni. Reagan efldi varnir og leitaði samhliða eftir viðræðum. Gorbatsjov hafði kjark til að taka áhættu og vinna að breytingum heima fyrir og í samskiptunum við Vesturlönd. Samspil styrks og samningsvilja skapaði tækifæri sem stjórnmálamenn nýttu sér. Því miður er ekkert sambærilegt í sjónmáli nú, í stríðsástandi.
Á níunda áratugnum töldu menn sig geta treyst á ákveðnar leikreglur meðal bandamanna annars vegar og gagnvart hugmyndafræðilegum andstæðingi hins vegar. Nú ríkir meiri óvissa um þær leikreglur, jafnt meðal bandamanna sem gagnvart andstæðingum.
Í Evrópu búa NATO-ríki sig undir skemmdarverk og drónaárásir samhliða átökum í netheimum. Varnir snúast sífellt meira um að verja samfélög og mikilvæga innviði gegn aðgerðum sem eiga að skapa ótta og sundrungu án þess að til hefðbundins stríðs komi.
Höfðafundurinn átti sinn þátt í lokum kalda stríðsins. Efnahagsvandi Sovétríkjanna, umbótatilraunir Gorbatsjovs og frelsisþrá þjóða Mið- og Austur-Evrópu réðu miklu. Af rökum Vladimírs Pútíns fyrir innrásinni í Úkraínu og útþenslustefnu hans má álykta að Höfðafundurinn hafi verið varða á leiðinni til þess sem hann telur hörmulegt stórslys í sögunni: hrun Sovétríkjanna.
Pútín efldi hernaðarmátt Rússlands á sama tíma og andvaraleysi gagnvart honum bjó um sig á Vesturlöndum. Viðskipti voru talin geta skilað því sem fælingin átti að gera áður: stuðla að friði. Það reyndist tálsýn og fjörutíu árum eftir Höfðafundinn er öryggi í Evrópu aftur ógnað með hervaldi og kjarnorkuhótunum.
Lærdómurinn frá Höfða er að fæling og samningsvilji þurfa að fara saman. Árásaraðili verður að sjá að valdbeiting skilar honum ekki ávinningi og að samningar séu vænlegri kostur. Til þess þarf staðfasta forystu sem ver grundvallarhagsmuni en kann jafnframt að nýta tækifæri til slökunar.
Íslensk stjórnvöld verða að leggja meira af mörkum en landfræðilega legu og góð orð. Skilgreina þarf framlag Íslands til varnaráætlana NATO og tryggja því fjármagn, mannafla og lagaheimildir. Við verðum að tryggja rekstur varnarmannvirkja, móttöku liðsauka, vernd mikilvægra innviða og getu til að nýta upplýsingar úr eftirliti bandamanna.
Þannig verður Ísland trúverðugur þátttakandi í vörnum sem geta skapað skilyrði fyrir friði.