Bogi Nilsson – minning
Minningargrein, Morgunblaðið, föstudaginn 28. ágúst 2026.
Bogi Nilsson (24.11.40 – 13.08.26) var jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. ágúst 2026. Séra Þorvaldur Víðisson jarðsöng, Jónas Þórir var organisti en útfararþjónusta Ísleifs Jónssonar hafði umjón með útförinni sem var fjölmenn. Að henni lokinni var viðstöddum boðið að þiggja veitingar á Hótel Loftleiðum.
Þegar ég tók við embætti dómsmálaráðherra árið 2003 varð mér fljótlega ljóst hve mikils trausts og virðingar Bogi Nilsson naut sem ríkissaksóknari. Embættið átti að mínu mati að njóta sama sjálfstæðis og sömu friðhelgi, ef svo má að orði komast, gagnvart ráðherra og pólitísku valdi og dómstólar.
Í embættistíð minni var vegið að ákæruvaldinu á ómaklegan hátt vegna Baugsmálsins svonefnda. Reynt var að koma þeirri skoðun að í opinberri umræðu að saksóknarar og lögregla störfuðu samkvæmt pólitískum fyrirmælum frá Davíð Oddssyni forsætisráðherra eða mér sem dómsmálaráðherra.
Allt var það úr lausu lofti gripið. Ef einhverjum kom til hugar að Bogi Nilsson tæki við pólitískum fyrirmælum við framkvæmd starfa sinna var það aðeins til marks um að viðkomandi hafði ekki minnstu hugmynd um hve grandvar Bogi var í allri embættisfærslu sinni.
Bogi Nilsson.
Hafi mátt gagnrýna hann var það helst fyrir að ganga ekki nægilega hart fram við að krefjast aukins fjármagns til að þróa embætti sitt. Hann var í hópi þeirra embættismanna sem lögðu metnað sinn í að halda rekstri embættis síns innan lögbundinna fjárheimilda fremur en að tefla á tæpasta vað. Slík nærgætni við skattgreiðendur er sjaldan metin að verðleikum.
Eftir að hafa gegnt embætti sýslumanns Suður-Múlasýslu og bæjarfógeta á Eskifirði í tíu ár var Bogi skipaður rannsóknarlögreglustjóri ríkisins árið 1986. Því embætti gegndi hann til ársins 1997, þegar hann varð fyrsti ríkislögreglustjóri landsins við stofnun embættisins. Frá 1. janúar 1998 gegndi hann embætti ríkissaksóknara þar til hann lét af störfum 1. janúar 2008.
Í samtölum mínum við lögreglumenn í embættistíð minni kom oft fram að þeir söknuðu þeirrar miðlægu rannsóknarstarfsemi sem fram fór undir stjórn Boga sem rannsóknarlögreglustjóra. Þróun löggæslumála síðari ár hefur einmitt verið í þá átt að efla slíka miðlæga starfsemi til að takast á við skipulagða og alþjóðlega brotastarfsemi.
Bogi var nokkrum árum á undan mér í lagadeild Háskóla Íslands. Þar, eins og annars staðar, naut hann trausts og vinsælda.
Undanfarin ár höfum við hist reglulega snemma morguns í Laugardalslauginni. Bogi blandaði sér af hógværð sinni stundum í fjörugt spjall okkar sem höfðum lokið sundi þegar hann kom. Við Bogi áttum það sameiginlega baráttumál að halda loftbaðsklefa laugarinnar opnum en honum var lokað eins og fleiru í þessari heilsulind.
Um nokkurt skeið ók Bogi nágranna sínum Oddi Magnússyni, félaga okkar, heim að sundi loknu. Oddur lést á 102 ári en hann synti daglega í Laugardalslaug fram á 101 árs aldur.
Við sundfélagarnir kveðjum Boga með hlýju og virðingu og sendum eiginkonu hans, börnum og öðrum vandamönnum innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Boga Nilssonar.