12.1.2018

Gervigreind kallar á fleiri frumkvöðla

Morgunblaðið 12. janúar 2018

Bandaríski flotinn hefur áform um að kaupa 68 fjarstýrðar flugvélar af gerðinni MQ-4C Triton til njósna, eftirlits og könnunar á víðáttumiklum haf- og strandsvæðum. Mannlausum vélunum má halda úti í sólarhring í hverri ferð í allt að 10 mílna hæð yfir hafsvæði sem spannar allt að 2.000 sjómílum. Triton-vélarnar verða notaðar til að fylgjast með herskipum og kafbátum um heim allan. Unnt er að samnýta ómönnuðu vélarnar og P-8A Poseidon leitarvélarnar sem nú er flogið oftar frá Keflavíkurflugvelli en áður vegna vaxandi umsvifa rússneska kafbátaflotans í nágrenni Íslands.

Óvíst er hver áhrif ómannaðra loftfara, dróna, til eftirlits með umferð skipa á úthöfunum eða kafbátum í undirdjúpunum verða á framkvæmd sameiginlegra varna NATO á Norður-Atlantshafi eða hver verður heimavöllur þessara véla.

Bretar hafa ákveðið að flugstöðin í Lossiemouth á norðaustur Skotlandi verði heimastöð P-8A Poseidon-vélanna sem þeir hafa keypt. Fyrsta vélin verður afhent þeim á árinu 2020. Flugstöðinni verður breytt til að vélarnar geti athafnað sig þar. Þá verður fjölgað orrustuþotum af Typhoon-gerð til loftrýmisgæslu.

Pamela Rawe, upplýsingafulltrúi hjá bandaríska flotanum, sagði í blaðinu Stars and Stripes þriðjudaginn 9. janúar 2018 að Bandaríkjamenn hefðu engin áform um að endurnýja fasta viðveru herafla á Íslandi þótt í bandarískum fjárlögum 2017 og 2018 væri 36 milljónum dollara (3,7 milljörðum ísl. kr.) ráðstafað til að bæta aðstöðu á Keflavíkurflugvelli fyrir P-8A Poseidon-vélar.

Gervigreind á öllum sviðum


Gervigreind og önnur hátækni setur æ meiri svip á ákvarðanir sem teknar eru á öllum sviðum. Vegna mikilla fjármuna til rannsókna og þróunar í þágu herafla Bandaríkjanna er litið til þátta sem snerta hann þegar spáð er í ítök gervigreindar, ómönnuðu eftirlitsvélarnar eru aðeins eitt dæmi.

Farheed Zakaria blaðamaður heldur úti vikulegum sunnudagsþætti á CNN­-sjónvarpsstöðinni, GPS. Hann ræddi 24. desember við höfunda nýrrar bókar Machine Platform Crowd, Harnessing our Digital Future sem er um áhrif tæknibreytinga og gervigreindar á vinnumarkaðinn. Höfundarnir eru Erik Brynjolfsson og Andrew McAffee, vísindamenn við bandaríska MIT-háskólann.

Erik Brynjolfsson, annar stjórnenda verkefnis við MIT-háskólann um starfræn viðskipti, er af íslenskum ættum sonur Ara Brynjólfssonar kjarneðlisfræðings, sem lést árið 2013, og bandarískrar eiginkonu hans. Föðursystir Eriks var Áslaug Brynjólfsdóttir fræðslustjóri sem andaðist nýlega. 

Sjónvarpssamtalið sýnir að bregðast verður markvisst við nýrri kynslóð tölva á vinnumarkaði. Fyrsta kynslóð þeirra var sögð góð til einfaldra verka en hana skorti dýpri hæfileika mannsins, dómgreind, innsæi og allt slíkt. Nú gangi tölvum vel að tileinka sér hæfileika sem til þessa hafi aðeins verið á mannlegu valdi. Áður þurfti að skýra hvert nýtt skref fyrir tölvum. Nú er þetta ekki lengur þröskuldur á leið til sjálfvirkni. Zakaria spurði hvort vélarnar væru farnar að kenna sjálfum sér.

Erik Brynjolfsson sagði að nú væri þróunin á því stigi að vélinni væru ekki gefin fyrirmæli um hvert einstakt skref hennar heldur fengi hún ábendingar: þetta gengur, þetta gengur ekki; þetta er orðið já, þetta er orðið nei; þetta er mynd af ketti; krabbamein, ekki krabbamein. Hún gæti lært fengi hún nógu margar ábendingar.

Hann sagði að verkefni hyrfu ekki vegna þessa heldur breyttist hvernig þau væru leyst af hendi. Þar mætti til dæmis nefna úrlausn verkefna þar sem um endurtekningu eða samanburð á sýnum væri að ræða á sviði meinafræði og geislafræði. Athygli beindist einnig að verkefnum á sviði lögfræði og fjármálaráðgjafar.

Störf myndu ekki endilega hverfa en viðfangsefnin yrðu önnur og í því efni væru breytingarnar mjög örar. Erik sagði að frekar ætti að líta á verkefnin en fjölda starfa. Breytingin hefði í för með sér að inntak starfa breyttist. Ætti þetta ekki síst við um störf sem krefðust mannlegra samskipta, við val á viðfangsefnum og því sem mikilvægast væri að sinna hverju sinni. MIT-mennirnir töldu til dæmis að hlutverk millistjórnenda kynni að aukast, verkefni þeirra væri að hvetja fólk til dáða, sannfæra, ræða málin og samhæfa.

Mikil áskorun


Hér er lausleg þýðing á orðaskiptum í lok sjónvarpssamtalsins:

„Zakaria: Við stöndum frammi fyrir þessum mikla vanda sem við veltum öll núna fyrir okkur, það er hvað eigi að gera við þann sem ekki hefur háskólapróf. Þann sem býr úti á landi í Pennsylvaníu og Ohio og vann alltaf í stálbræðslu. Eða kannski 50, 55 ára gamlan flutningabílstjóra og svo koma sjálfakandi flutningabílar. Hver er þeirra framtíð í þessum heimi?

Brynjolfsson: Já, við skulum hafa það alveg á hreinu að þetta teljum við mestu áskorun fyrir samfélag okkar á komandi áratug. Við ættum ekki að láta okkur þetta í léttu rúmi liggja. Tæknin þróast hraðar núna en á liðnum áratug. Við verðum þess vegna að kveða mun fastar að orði í umræðunum um að skilgreina ný störf.

Ýmislegt má gera. Við þurfum að endurskapa menntun alveg frá grunni. Við verðum einfaldlega að stórefla frumkvöðlastarf, ekki vegna þess að allir verði frumkvöðlar heldur vegna þess að þetta eru þeir einstaklingar í samfélagi okkar sem helga sig sköpun nýrra starfa.

Zakaria: Gott og vel. Hvernig er best fyrir fyrirtæki að laga sig að gervigreind á á þann veg að hún skapi mönnum störf frekar en að koma í stað þeirra?

Mcaffee: Þetta er ein helsta heimavinnan í framsæknum fyrirtækjum, takist þeim ekki að skapa hæfilegt jafnvægi milli hugar og vélar verða þau undir í samkeppninni við hina sem tekst þetta. Ég nefni til dæmis sérstaklega að við treystum um of á dómgreind mannsins, innsæi mannsins. Þetta segi ég ekki vegna þess að þetta skipti ekki máli heldur af því að tölvur sýna að þarna standa þær sig einnig einstaklega vel. Ég held að við ættum í sumum tilvikum að snúa dæminu við, láta tölvurnar taka forystu og láta mennina fylgjast með þeim, þeir taki svo völdin af tölvunum þegar þær gera eitthvað heimskulegt.

Góðu fréttirnar eru að tölvur gera allt annars konar mistök en menn. Finnum við skynsamlega leið til samhæfingar milli manna og véla getum við jafnað út mistök hvors annars í staðinn fyrir að margfalda þau.“

Þessar breytingar gerast fyrir framan augu okkar án þess að við tökum eftir þeim ef við viljum sitja föst í gamla farinu. Við deilum um eitthvað sem breytist jafnharðan í fortíð í stað þess að fylgja frumkvöðlunum, brautryðjendunum. Tími þeirra er nú.