28.2.2018 12:27

Um rétt Pírataþingmanns til að særa og móðga

Þingflokkur Pírata er sundurleitur hópur. Hann sameinast þó um mál þar sem hann getur látið eins og hann sé betri og heiðarlegri en aðrir.

Undarlegt var að heyra í sal alþingis mánudaginn 26. febrúar að það sæmdi ekki að saka konu úr hópi þingmanna að tala af vanþekkingu um samþingmann sinn þegar hún sagði í sjónvarpi að það væri „rökstuddur grunur“ um eitthvað athugavert við meðferð hans á opinberum fjármunum. Það kallaði á frekari rannsókn.

Einmitt á þennan veg er talað þegar lögregla hefst handa við rannsókn á sakamáli, henni er bannað að hefja slíka rannsókn nema fyrir liggi „rökstuddur grunur“ um lögbrot. Nú segja Píratar og málsvarar þeirra að þetta þýði eitthvað annað og þeir sem benda á vanþekkingu Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, eru sakaðir um aðför að konum!

996136Myndin af Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmanni vinstri-grænna. Myndin er af mbl.is.

Í umræðunum um óvarleg orð Þórhildar Sunnu benti Brynjar Níelsson, Sjálfstæðisflokki, á að hún hefði ekkert til síns máls þegar hún talaði um „rökstuddan grun“ í tengslum við akstursgreiðslur til Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Brynjar sagði:

„Og svo komið þið öll hér, hv. þingmenn, og blaðrið um þetta með þessum hætti, að hér sé einhver misskilningur eða einhver orðhengilsháttur. Þetta er ekki orðhengilsháttur. Verið er að saka menn um alvarleg brot og menn eiga að skammast sín fyrir það.“

Þá kvaddi Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna, sér hljóðs og sagði:

„Ég velti því fyrir mér hvort styttist í það að við hlustum ekki á þingkarl standa í þessari pontu og segja að þingkona úti í salnum noti hér hugtök sem hún ráði ekki alveg við, með leyfi forseta. Ég vona að það sé bráðum liðin tíð.“

Skyldi þingmaðurinn átta sig á hvað felst í þessum orðum hans? Afstaðan er í raun niðurlægjandi fyrir konur. Það megi ekki lýsa vel rökstuddri skoðun um að Þórhildur Sunna fari með rangt mál af því að hún er kona. Í þessum umræðum vildu þingmenn Pírata telja öðrum þingmönnum trú um að „rökstuddur grunur“ væri eitthvað annað en „rökstuddur grunur“. Að benda á rökþrot þeirra er síðan túlkað af þingmanni VG sem árás á konur.

Á fundi alþingis þriðjudaginn 27. febrúar steig Þórhildur Sunna í ræðustól til að réttlæta forkastanlega framgöngu sína. Ræðan hófst á þessum orðum:

„Að gæta orða sinna er góða gjalda vert í flestum tilfellum. Þó ætti okkur í frjálsu lýðræðisríki að vera frjálst að viðhafa stór orð, jafnvel móðgandi eða særandi, sérstaklega þegar kemur að pólitískri og samfélagslegri umræðu á opinberum vettvangi.“

Ræðunni lauk á þessum orðum:

„Því vil ég mælast til þess af öllum þingmönnum sem hafa ásakað þá sem hér stendur um að gæta orða sinna og vanda að virðingu þingsins að fara sérstaklega varlega með það þegar verið er að draga úr rétti t.d. útlendinga hér eða annarra minnihlutahópa (Forseti hringir.)í samfélaginu í þessari pontu að gæta að því lýðræðislega hlutverki að allir skuli jafnir fyrir lögum og öll njótum við mannréttinda. Því að þar þarf að gæta orða sinna.“

Þessi texti er torskilinn. Þingmaðurinn er þó greinilega að verja rétt sinn til að móðga og særa aðra, sýnist henni svo.

Þingflokkur Pírata er sundurleitur hópur. Hann sameinast þó um mál þar sem hann getur látið eins og hann sé betri og heiðarlegri en aðrir.