Dagbókin

Sunnudagur, 31. 07. 05.

Skruppum til Aquileia frá Lignano.

Senda grein

 

Laugardagur, 30. 07. 05.

Skruppum til Feneyja frá Lignano.

Senda grein

 

Fimmtudagur, 28. 07. 05.

Ókum frá Veróna til Lignano Sabbiadoro.

Senda grein

 

Miðvikudagur, 27. 07. 05.

Ókum frá Flórens til Veróna, þar sem við fórum í Arena-óperuna og sáum Aidu.

Senda grein

 

Mánudagur, 25. 07. 05.

Skruppum frá Flórens til Pisa og Lucca.

Senda grein

 

Laugardagur, 23. 07. 05.

Ókum frá Bologna til Flórens.

Senda grein

 

Fimmtudagur, 21. 07. 05.

Klukkan 16.35 héldum við Rut með Futura-vél á vegum Heimsferða til Bologna á Ítalíu, þar sem við lentum rétt fyrir klukkan 23.00 á staðartíma. Það vakti undrun í Leifsstöð hve röðin var löng í innritunarsalnum, án þess að getið væri sérstaklega um sérraðir fyrir viðskiptavini annarra en Icelandair. Við afgreiðsluborð Futura eða Heimsferða var engin röð. Alls staðar tíðkast í afgreiðslusölum flugvalla að hafa á vegg töflu um innritunarborð í vélar mismunandi félaga eða áfangastaða. Er einkennilegt, að slík þjónusta skuli ekki veitt í Leifsstöð.

Senda grein

 

Þriðjudagur, 19. 07. 05.

Fór upp að Bifröst síðdegis og flutti erindi um stjórnun og stjórnsýslu fyrir nemendur í meistaranámi í háskólanum þar.

Var rétt um klukkan 20.00 í Kastljósi með Gunnari Helga Kristinssyni prófessor og Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra og ræddum við hryðjuverk og hryðjuverkamenn.

Senda grein

 

Laugardagur, 16. 07. 05.

Síðdegis efndi Rut til kompusölu í Fljótshlíðinni. Hafði hún auglýst hana í Búkollu og einnig í verslunum. Þótti þeim, sem komu, þetta ánægjuleg nýbreytni.

Senda grein

 

Föstudagur 15. 07. 05.

Klukkan 10.30 hitti ég séra Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprest í Garðabæ, og lögmann hans Svein Andra Sveinsson. Ég segi almennt ekki frá fundum, sem ég á í ráðuneytinu með einstaklingum eða fulltrúum félagasamtaka, en geri það í þessu tilviki, þar sem sagt var frá fundinum í Fréttablaðinu, var hann þó haldinn með þeim formerkjum, að hann yrði ekki fjölmiðlaefni.

Senda grein

 

Fimmtudagur, 14. 07. 05.

Var með kynningu á Þingvöllum klukkan 20. 00 og sagði þar frá störfum og stefnu Þingvallanefndar, þegar gengið var í blíðskaparveðri frá Hakinu að Þingvallakirkju, þar sem séra Kristján Valur Ingólfsson lauk ferðinni með kvöldbænum.

Þetta kvöld var frétt um það í hljóðvarpi ríkisins, að sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefði lýst óánægju sinni með bréf Þingvallanefndar vegna óska um umhverfismat á gamla Gjábakkaveginum, en í bréfi fyrir hönd nefndarinnar til umhverfisráðuneytisins frá 15. júní hafði ég ítrekað upphaflegt sjónarmið hennar til stæðis fyrir Gjábakkaveg, það er að æskilegast væri að viðhalda gamla veginum frá 1907. Vegagerðin taldi þann veg ekki geta svarað kröfum tímans og vildi nýtt stæði og náðist samkomulag um stæði utan þjóðgarðsins. Þessi ákvörðun var kærð og krafist umhverfismats á gamla veginum, sem umhverfisráðuneytið samþykkti í mikilli óþökk sveitarstjórnar, en hún vill greinilega skella skuldinni að einhverju leyti á Þingvallanefnd og er ég sammála Guðna Ágústssyni meðnefndarmanni mínum, að þessi skilningur sveitarstjórnar á bréfi Þingvallanefndar er óheppilegur, enda byggist afstaða sveitarstjónarinnar til Þingvallanefndar í þessu samhengi á misskilningi.

Senda grein

 

Miðvikudagur, 13. 07. 05.

Var með viðtöl fyrir hádegi eins og venjulega á miðvikudögum.

Senda grein

 

Þriðjudagur, 12. 07. 05.

Frétta- og þáttarstjórnendur frá Talstöðinni og Speglinum í hljóðvarpi ríkisins tóku við mig viðtöl um hryðjuverkaárásina á London.

Ég áréttaði þá skoðun mína, að árásin ætti ekki upptök sín í Írak heldur væri hún hugarfóstur einstaklinga, sem hefðu verið heilaþvegnir og snerust gegn eigin samfélagi.

Senda grein

 

Laugardagur, 09. 07. 05.

Vorum klukkan 15.00 á sumartónleikum í Skálholti.

Senda grein

 

Miðvikudagur, 06. 07. 05.

Var með viðtöl eins og jafnan fyrir hádegi á miðvikudögum.

Klukkan 11.45 kom Alvaro Gil-Robles, mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins, til fundar í ráðuneytinu með aðstoðarmönnum sínum en hann er að semja skýrslu um Ísland.

Senda grein

 

Þriðjudagur, 05. 07. 05.

Ríkisstjórnarfundur klukkan 09.30 en ég hafði ekki setið tvo síðustu fundi vegna utanferða.

Þingvallanefnd hittist á árlegum sumarfundi sínum á Þingvöllum klukkan 17.15.

Senda grein

 

Sunnudagur, 03. 07. 05.

Var klukkan 14.00 að Sólheimum í Grímsnesi, þar sem vígð var ný kirkja.

Senda grein

 

Föstudagur, 01. 07. 05.

Var klukkan 15.00 í sýsluskrifstofunni á Hvolsvelli, þar sem ég opnaði rafrænt Lögbirtingablað og skrifaði undir árangursstjórnunarsamning við Kjartan Þorkelsson sýslumann.

Senda grein

 

Dagbókin


 

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica