2006 (Síða 12)
Laugardagur, 14. 01. 06.
Egill Helgason segir í dag frá samskiptum sínum við blaðamenn DV í pistli á vefsíðu sinni. Hann telur einnig, að Eiríkur Jónsson, stjörnublaðamaður DV, muni halda áfram á sömu braut, þótt ritstjóraskipti hafi orðið á blaðinu.
Ritstjórn DV gerir mér þann heiður í dag, að agnúast út í skrif mín um blaðið hér í dagbókinni síðustu daga. Í DV stendur meðal annars: „Björn Bjarnason. Telur sig nú, eftir Hæstaréttardóm um að hann sé ekki vamhæfur til að setja ríkissaksóknara vera í aðstöðu til að viðra andúð sína á Baugsmiðlum.“
Gaman að heyra fréttir af því á NFS að nábúar mínir í Fljótshlíðinni Eggert og Jóna að Kirkjulæk II eiga kýr með mestu nyt í landinu.
Í kvöld var sýndur í DR2, það er á annarri rás danska ríkissjónvarpsins, þáttur um Ísland, þar sem meðal annars var rætt við mig um álfa, qi gong og fleira. Að loknum þættinum, sem stóð í klukkustund, var sýnd mynd Friðriks Þórs Cold Fever.
Föstudagur, 13. 01. 06.
Alls skrifuðu 32.044 einstaklingar undir áskorun, þar sem skorað er á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu blaðsins og eigendur minntir á þeirra ábyrgð á útgáfunni. Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason sögðu af sér sem ritstjórar DV í morgun og fóru í þagnarbindindi að sögn fréttastofu hljóðvarps ríkisins. Þeir Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson voru ráðnir ritstjórar. Þeir ætla að fara að siðareglum Blaðamannafélags Íslands.
Þingflokkur sjálfstæðismanna kom saman í hádeginu og samþykkti meðal annars heimild til Sigurðar Kára Kristjánssonar til að flytja frumvarp til að bæta varnir á æru fólks og hækka skaðabætur til þeirra, sem verða fyrir árásum á æru sína. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, virðist andvíg því, að lögum sé breytt á þennan veg, betra sé að setja lög um innra starf fjölmiðla.
Hafi Gunnar Smári Egilsson yfirstjórnandi Baugsmiðlanna ákveðið að láta Illuga Jökulsson víkja úr ritstjórastóli DV fyrir Jónasi Kirstjánssyni til að styrkja DV í sessi, misheppnaðist sú aðgerð hrapallega. Spurning er hvort vörumerkið DV lifir af þessar hremmingar.
Fimmtudagur, 12. 01. 06.
Þegar ég fletti DV í morgun undraðist ég hvers vegna Jónas Kristjánsson kaus að nota dálk á bls. 2 til að endursegja grein úr breska blaðinu The Guardian frá 16. júní 2005 um þá Björgólfsfeðga í St. Pétursborg og sölu á bjórverksmiðju þeirra og Magnúsar Þorsteinssonar þar til Heineken.
Ég sá þessa frásögn í öðru ljósi, þegar ég heyrði í kvöldfréttum, að Björgólfsfeðgar hefðu tvisvar leitast við að eignast DV til að hætta útgáfu þess í mynd Jónasar.
Skýrt var frá því í fréttum, að Guðmundur Marteinsson stjórnandi Bónus-verslananna hefði ákveðið að hætta að auglýsa forsíðu DV við eða í verslunum sínum. Ég óska Guðmundi til hamingju með þessa ákvörðun. Einnig kom fram, að stjórn Samtaka auglýsenda teldi það beinlínis skaðlegt fyrir ímynd auglýsenda að auglýsa í DV.
Í hádeginu var á www.ruv.is haft eftir Jóhannesi Jónssyni í Bónus, að DV hefði selst jafnmikið 11. janúar og venjulega, hann sagði DV ekki verða fjarlægt úr Bónus-verslunum, þótt hann hefði oft á tíðum ímugust á blaðinu. Jóhannes, sem á bæði DV og Bónus, sagði á ruv.is, að viðskiptavinurinn réði því, hvað væri til í Bónus. Orðrétt segir á vefsíðunni eftir honum: „Kúnninn drepur vöruna.“
Síðdegis sagði frá því á ruv.is, að 24.000 manns hefðu skráð sig á netinu gegn ritstjórnarstefnu DV. Dæmi væru um, að sölustaðir á Ísafirði hefðu hætt sölu blaðsins.
Frumkvæði Sigurðar Kára Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem hann kynnti í kvöldfréttum, að lagabreytingum til að bæta réttarstöðu borgaranna gagnvart aðför að æru þeirra og til að tryggja, að þeir eigi rétt á skaðabótum, sem séu íþyngjandi fyrir hinn brotlega, er tímabært. Þótt einhverjir blaðamenn vilji hundsa siðareglur eigin félags og fara að heimasmíðuðum reglum, geta þeir ekki vikist undan landslögum.
Í hádeginu var ég með nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á kynningarfundi í Íslandsbanka, þar sem Bjarni Ármannsson forstjóri flutti fróðlega ræðu um starfsemi bankans og svaraði síðan fjölmörgum fyrirspurnum.
Miðvikudagur 11. 01. 06.
Það var einkennilegt að heyra Jónas Kristjánsson, ritstjóra DV, tönnlast á því í Kastljósi í kvöld, að það væru sérstaklega pólitíkusar, sem hefðu ýtt undir óánægju fólks og andúð á fréttaflutningi blaðs hans, þar sem fólk er svipt ærunni á forsíðu dag eftir dag og nú með hörmulegum afleiðingum á Ísafirði, þar sem karl tekur eigið líf og skilur eftir sig bréf um að hann hafi bugast vegna frásagnar DV af honum á forsíðu vegna máls, sem blaðið segir enn í rannsókn.
Jónasi er mjög í nöp við pólitíkusa, hann kallar okkur suma gjarnan fasista til að bragðbæta órhróðurskrif sín um okkur og nú er það sem sé sérstaklega pólitíkusum að kenna, að mönnum blöskrar, hvernig hann stýrir blaði sínu.
Ástæða er til að minna á, að þessar forsíður DV eru ekki aðeins birtar á því blaði - þær eða aðrar krassandi árásarfyrirsagnir á einstaklinga birtast einnig sem auglýsingar í hinu Baugsblaðinu, Fréttablaðinu, sem borið er til fólks, hvort sem það vill fá það eða ekki - auglýsendur, áskrifendur eða kaupendur sitja uppi með DV. Þá mun algengt, að plaköt með DV-forsíðum séu hengd upp viðskiptavinum Baugsbúðanna til ánægjuauka og minna þau þar á dreifimiða um eftirlýsta við knæpur í villta vestrinu fyrr á öldum - enda skilst manni að tilgangur DV sé sá, að fullnægja réttlætinu á eigin forsendum, enda geti aðrir ekki gert það betur, þar sem blaðið láti sannleikann en ekki tillitssemi ráða ferð.
Ég vorkenni forystumönnum Blaðamannafélags Íslands að þurfa að tjá sig út og suður um þetta mál af tillitssemi við félagsmenn, sem hafa meginreglur félagsins að engu en nota það sem skálkaskjól. Trúverðugleiki blaðamanna styrkist ekki við slíkan blindingsleik.
Þriðjudagur, 10. 01. 06.
Áliti mínu á Baugsmiðlinum DV hef ég lýst oft hér á síðunni og í dag voru sagðar sorgarfréttir af afleiðingum forsíðufréttar blaðsins. Hve lengi ætla eigendur DV að láta blaðið veitast að varnarlausu fólki á sinn kostnað?
Vegna þess sem ég hef sagt um DV og aðra Baugsmiðla hér á vefsíðu minni undanfarin misseri, vildu lögmenn Baugs, að ég yrði dæmdur vanhæfur sem dómsmálaráðherra til að setja ríkissaksóknara í Baugsmálinu.
Morgunblaðið ræðir þessa kröfu og fagnar niðurstöðu dómstóla um að hafna henni í leiðara sínum í dag og segir meðal annars:
„Ráðherrum er vissulega falið stjórnsýsluvald, sem þýðir að þeir verða að gæta að hæfisreglum stjórnsýslulaga, t.d. hvað persónuleg tengsl og hagsmunatengsl varðar. Þeir verða sömuleiðis að forðast að hægt sé að efast um óhlutdrægni þeirra í einstökum ákvörðunum.
Ráðherrar eru hins vegar jafnframt stjórnmálamenn, sem eiga beinlínis að hafa skoðun á þjóðfélagsmálum. Í okkar breytta fjölmiðlaumhverfi er æ oftar kallað eftir þessum skoðunum og viðhorfum stjórnmálamanna. Og sumir hafa þeir farið þá leið að miðla skoðunum sínum beint um eigin fjölmiðil á Netinu, eins og Björn Bjarnason gerir. Það er ekki hægt að ætlast til þess að ráðherrar þegi um menn og málefni af ótta við að gera sig vanhæfa til stjórnsýsluákvarðana. Það væri ekki í þágu hinnar lýðræðislegu umræðu. “
Mér er sem sé heimilt að gagnrýna Baug og Baugsmiðla hér á síðunni án þess að ég sé vanhæfur til embættisverka.
Mánudagur, 09. 01. 06.
Hæstiréttur dæmdi í dag í Baugsmálinu, að ég hefði ekki verið vanhæfur til að setja Sigurð Tómas Magnússon ríkissaksóknara og tók undir með héraðsdómi, að málið væri hæft til efnislegrar meðferðar fyrir dómstólunum - ég fjalla um málið í pistli mínum frá því í dag.
Ég las á forsíðu vefsíðu Le Figaro í morgun, að easyJet væri að safna liði með stuðningi Goldman Sachs til að verjast fjandsamlegri yfirtöku frá Icelandair.
Sunnudagur, 08. 01. 06.
Ókum úr Fljótshlíðinni í dag - í gegnum þrjú veðurkerfi - frostbirtu, snjókomu og rigningu. Ég hef ekið víða um heim en aldrei kynnst því nema á Hellisheiði, að ökumenn telji sér sæma að aka fram úr í niðaþoku, hægramegin á vegaröxl. Það er ekki þessum ökumönnum að þakka, að ekki verði stórslys.
Sé á vefsíðu BBC, að Tony Banks eða Stratford lávarður er látinn eftir hjartaáfall á Sanibel eyju, Flórída. Tony Banks var íþróttamálaráðherra í stjórn Tonys Blairs um tíma. Hann gekkst upp í því að vera „maður litla mannsins“ í Verkamannaflokknum og á breska þinginu. Ég kynntist honum fyrir rúmum áratug, þegar við sátum saman á þingi Evrópuráðsins, þar sem hann barðist til dæmis harkalega gegn hvalveiðum. Eftir honum var haft, að þeir, sem vildu éta hval, gætu alveg eins étið hver annan.
Ragnar Arnalds, höfundur ágætrar bókar um Jörund hundadagakonung, Eldhuginn, sagði mér á dögunum, að Tony Banks hefði verið afkomandi Josephs Banks, sem stóð að baki för Jörundar til Íslands á sínum tíma og var mikils metinn hjá Bretum og víða um heim á sínum tíma.
Fórum á tónleika Tallis Scholars í troðfullri Langholtskirkju kl. 20.00.
Laugardagur, 07. 01. 06.
Veðrið var allt annað þegar við ókum til Reykjavíkur, þar sem var ættarmót afkomenda afa míns , Björns Jónssonar, og ömmu, Önnu Pálsdóttur, úr móðurætt - Ánananaustafólksins. Var það vel sótt en enn eru þrjú af 13 börnum þeirra á lífi: Auðbjörg, Haraldur og Valdimar.
Ókum síðan aftur austur í Fljótshlíð til að taka þátt í 60 ára afmæli nágranna okkar, Viðars Pálssonar að Hlíðarbóli, sem haldið var með glæsibrag.
Föstudagur, 06. 01. 06.
Hætt var við þrettándagleði hér í Fljótshlíðinni vegna veðurs í kvöld eins og víðar. Úrkoman er mikil og rokið. Ég átti ekki von á því, að hrossin yrðu vör við mig, því að þau stóðu svo fjarri girðingunni, rokið var mikið og skyggnið lítið. Ég kallaði hátt og flautaði, hrossin tóku viðbragð og síðan sprettinn til mín.
Ariel Sharon liggur banaleguna í Jerúsalem. Hann hefur borið höfuð og herðar yfir aðra ísraelska stjórnmálamenn undanfarin ár og farið sínu fram af festu og öryggi, þótt á móti hafi blásið. Mér hefur alltaf þótt einkennileg gagnrýnin á Sharon fyrir að hafa farið á Musterishæðina á sínum tíma, sem var talið ögrun við múslíma, en dugði honum til sigurs í þingkosningum í Ísrael.
Áróðurinn í vestrænum fjölmiðlum gegn Sharon hefur aldrei gefið rétta mynd af stöðu hans meðal Ísraela. Ef marka hefði mátt, hve oft Sharon væri að pólitísku falli kominn, hefði engan grunað, að hann hyrfi úr stjórnmálum á sóttarsæng.
Fimmtudagur, 05. 01. 06.
Til að búa mig betur undir verkefni ársins skrapp ég austur i Fljótshlíð og sinn hér ýmsum verkefnum, sem gott er að leysa í sveitakyrrðinni.
Kyrrðin var þó ekki mikil fram eftir degi, því að hann gekk á með þrumum og eldingum, þar til að fór að snjóa síðdegis. Vatnsveðrið var með ólíkindum á eftir skruggunum. Þegar dálítið hafði snjóað, stytti upp og birtan varð ævintýranleg út á Landeyjarnar og til Vestmannaeyja.
Ég skrapp út í haga til að líta eftir hrossunum og til að átta mig á því, hvort þau hefðu fælst við flugelda um áramótin - mér virtust þau eins og áður og komu hlaupandi til mín, þegar þau áttuðu sig á því, að ég var með plastpoka og kannski með einhverju nammi handa þeim. Ég læt mér nægja að ganga að girðingunni og það bregst ekki að hrossin koma til mín og elta mig síðan, þegar ég held aftur heim á leið niður með girðingunni heim að bænum.
Mér þótti einkennilegt að lesa ummæli sýslumannsins í Borgarnesi um tillögur að nýjum lögregluumdæmum og hlusta á fréttir hljóðvarps og sjónvarps ríkisins um viðbrögð sjálfstæðismanna í Mýrasýslu. Það er alls ekki verið að þrengja neitt að sýslumanninum eða íbúum Mýrasýslu með þessum tillögum fyrir utan að sýslumaðurinn á ekki frekar en aðrir sýslumenn kröfu til neins í sambandi við þessa breytingu, þótt ráða megi af þessum viðbrögðum, að verið sé að lækka á embætti hans risið - það er alls ekki.
Miðvikudagur, 04. 01. 05.
Ég hélt áfram að kynna tillögurnar um stækkun lögregluumdæma. Fór til dæmis í fyrsta sinn í höfuðstöðvar NFS við Skaftahlíð og átti þar hádegisviðtal við Sigmund Erni. Við vorum í myndveri án tökumanna, eins og í hljóðveri, þar sem tæknimenn sitja utan dyra og fylgjast með og stjórna upptöku, hér stjórnuðu þeir starfrænum myndavélum. Sigmundur Ernir sagði mér, að hann hefði heimsótt BBC World Service TV og þar væri rýmið minna en hjá fréttaþulunum hjá NFS.
Þá ræddi ég við fréttamann sjónvarps og hljóðvarps ríkisins, sem báðir komu á minn fund. Á NFS nota þeir efnið, sem þeir afla í sjónvarpi og hljóðvarpi - klippa og endurnýta. Hjá RÚV þarf maður að tala við að minnsta kosti tvo fréttamenn. Fréttirnar verða vonandi betri við að fleiri komi að því að afla þeirra í samtali við sama manninn um sama málið.
Ég skil vel, að á Seyðisfirði og í Borgarnesi verði þeir fyrir vonbrigðum, sem litu þannig á, að fyrstu tillögur um staði fyrir lykilembætti væru lokatillögur, þegar lagt er til að embættin verði í Farðarbyggð og á Akranesi. Vonbrigðin geta ekki byggst á því, að þjónusta lögreglu við þessa staði minnki, því að það gerir hún ekki, heldur hljóta þau að byggjast á metnaði fyrir byggðarlag sitt, sem ber að virða.
Eins og ég sagði í gær átti ég góðan fund með fulltrúum sveitarstjórnar Borgarbyggðar um málið í aðdraganda ákvörðunarinnar og ræddum við eflingu löggæslu í byggðarlaginu.
Þriðjudagur, 03. 01. 06.
Á fundi ríkisstjórnarinnar kl. 09.30 lagði ég fram minnisblað, þar sem ég lýsti áformum mínum varðandi nýskipan lögregluumdæma og málefni tengd henni. Var síðan send út fréttatilkynning um málið frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Sagt var frá málinu á þann veg í hljóðvarpi ríkisins kl. 18.00, að rætt var við Pál Brynjarsson, sveitarstjóra í Borgarnesi, sem lýsti óánægju sinni yfir því, að lykilembætti lögreglu á Vesturlandi yrði á Akranesi en ekki Borgarnesi eins og áður hafði verið orðað og í fréttum NFS kl. 18.30 á þann veg, að bæjarstjórarnir í Kópavogi og Hafnarfirði væru óánægðir. Var rætt við Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra í Hafnarfirði, sem sagði eitthvað á þá leið, að hann vissi, hvað hann hefði en ekki hvað við tæki. Ekki var minnst á málið í 19.00 fréttum sjónvarps ríkisins, en þar var hins vegar sagt frá því að landhelgisgæslan ætlaði að taka þátt í skipulagi átaki undir forystu Einar K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra gegn sjóræningjaveiðum á Reykjaneshrygg, en fréttamaðurinn sá ástæðu til að lýsa því frá eigin brjósti, að þetta gerði gæslan án þess að fá aukafjárveitingu og þótt hún væri illa tækjum búin. Þetta var sem sagt allt á jákvæðu nótununum!
Ástæðuna fyrir því að ég valdi Akranes skýrði ég fyrir Páli sveitarstjóra og samstarfsfólki hans á fundi í ráðuneytinu, en rök mín eru þau, að löng og góð reynsla er af rannsókn lögreglumála á Akranesi, en lykilembætti gegna einmitt lykilhlutverki á því sviði. Taldi ég, að sú efnislega ástæða ætti að vega þyngra en lega Borgarness. Með því að stofna nýtt lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu frekar en fella minni embætti inn í hið stærsta er komið til móts við sjónarmið, sem fram komu á kynningarferli málsins, en það hefur staðið í tæplega eitt ár. Markmið breytinganna er að efla löggæslu en ekki draga úr henni eins og mátti skilja á orðum bæjarstjórans í Hafnarfirði. Ég átta mig ekki á því með hvaða rökum hann heldur þeirri skoðun fram - hitt er síðan alþekkt, að margir óttast breytingar í stað þess að sjá tækifæri í þeim og leggja sig því ekki fram um að nýta þau - þeir sitja einnig oft eftir með sárt enni.
Björk Vilhelmsdóttir hefur ákveðið að segja skilið við vinstri/græna í borgarstjórn Reykjavíkur og fara í prófkjör Samfylkingarinnar. Hvar er hneykslunarkórinn um að hún eigi að segja af sér? Lætur hann aðeins í sér heyra, þegar einhver gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn?
Mánudagur, 02. 01. 06.
Við upphaf árs lagði ég á ráðin um meginverkefni næstu mánaða á vegum dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.
Ég vék að því hér í dagbókinni á gamlársdag, hve fráleitt væri að segja Evrópusambandið (ESB) bannorð í íslenskum stjórnmálum, eins og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gerði í formannspistli sínum í Morgunblaðinu í tilefni áramótanna. Kannski á að skilja orð hennar á þann veg, að enginn haldi þeirri skoðun fram á stjórnmálavettvangi, að Ísland skuli ganga í ESB? Hvers vegna gerir hún aðild ekki að stefnu sinni?
Skömmu fyrir áramót sýndi skoðanakönnun í Finnlandi, að meirihluti Finna hefði snúist gegn aðild að ESB en Finnar hafa til þessa verið eindregnustu stuðningsmenn ESB-aðildar af Norðurlandaþjóðunum.
Um áramótin gerði breska ríkisútvarpið BBC könnun meðal Breta á því, hvern þeir teldu valdamesta mann Bretlands. Flestir eða 22% töldu það vera Jose Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Rupert Murdoch fjölmiðlakóngur var í öðru sæti með 15% og breska þingið í því þriðja með 14%. Tony Blair lenti í sjöunda sæti með 7% og Gordon Brown fjármálaráðherra í níunda með 4% - einu stjórnmálamennirnir, sem komust á blað meðal hinna 10 efstu.
Nick Robinson, stjórmálaritstjóri BBC, sagði, að með vali sínu á Barroso kynnu breskir kjósendur að vera að láta í ljós þá skoðun, að Evrópusambandið hefði of mikil völd.
Umræður um kjaramál halda áfram og nú snúast þær um stjarnfræðilegar tölur í tengslum við FL Group. Þeir voru kallaðir í Kastljós til að ræða málið Jafet Ólafsson verðbréfasali og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. Spyrja má eftir þáttinn: Hverjum dettur í hug að kalla Ágúst Ólaf á vettvang, ef ætlunin er að halda umræðum innan skynsamlegra marka?
Sunnudagur, 01. 01. 06.
Gleðilegt ár!
Fórum í Dómkirkjuna kl. 11.00, þar sem herra Karl Sigurbjörnsson predikaði en sr. Hjálmar Jónsson og sr. Jakob Hjálmarsson þjónuðu fyrir altari. Veðrið var heldur leiðinlegt og fáir á ferli um þetta leyti að morgni nýársdags.
- Fyrri síða
- Næsta síða