2005 (Síða 7)
Mánudagur, 23. 05. 05.
Sótti í hádeginu fund í Norræna húsinu, þar sem kynnt var rit um jarðskjálftana miklu á Suðurlandi 17. og 21. júní 2000. Ritið heitir Þá varð landskjálpti mikill og fjallar um samfélagsleg áhrif Suðurlandsskjálftanna í júní árið 2000 og þróun þeirra áhrifa næstu árin á eftir. Höfundar ritsins eru Jón Börkur Ákason, félagsvísindamaður hjá Rannsóknarmiðstöðvar Háskóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði á Selfossi, Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands og forstöðumaður Borgarfræðaseturs, og Ragnar Sigbjörnsson, prófessor við verkfræðideild og forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvarinnar. Ég skrifaði aðfaraorð að ritinu. Töluðum við allir á fundinum en Jónas Elíasson prófessor stjórnaði honum.
Laugardagur, 21. 05. 05.
Fór um Akureyri fyrir hádegi og fylgdist með björgunarleikum í tengslum við landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Fór rétt fyrir 13.00 út á flugvöll og um borð í gæsluþyrluna Líf, flaug með henni yfir Pollinn og seig í vað úr þyrlunni um borð í varðskipið Tý, sem tók þátt í æfingu með björgunarskipum SL. Sigldi síðan með bs Gunnbjörgu frá Raufarhöfn til lands,
Flaug til Reykjavíkur klukkan 15.10.
Föstudagur, 20. 05. 05.
Flaug klukkan 11.00 til Akureyrar. Snæddi hádegisverð með stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar, á meðan við vorum að borða rétt rúmlega 12. 30 píptu símboðar allra björgunarsveitarmanna við borðið og fengu þeir rautt boðunarmerki frá Neyðarlínunni. Þeir brugðust skjótt við og fengu frétt um, að borist hefði neyðarkall norður af Raufarhöfn. Daginn eftir var þessi frétt í Morgunblaðinu:
MANNBJÖRG varð í gær þegar Hildur ÞH sökk 7 mílur austur af Raufarhöfn. Báturinn varð vélarvana kl. 12:30 og komst mikill sjór í vélarrúm hans. Skömmu síðar lagðist hann á hliðina og byrjaði að sökkva. Tveir skipverjar voru um borð og tókst þeim að forða sér í gúmmíbát. Kl. 12:55 var björgunarsveitin Pólstjarnan á Raufarhöfn kölluð út vegna neyðarkalls og fór björgunarsveitin á bs Gunnbjörgu á slysstað. Tókst að bjarga skipverjunum heilum á húfi og voru þeir komnir í skip kl. 13.40. Komið var með skipbrotsmenn til Raufarhafnar kl. 14.20 og voru þeir í skýrslutökum hjá lögreglunni fram á kvöld.
Ég hitti áhöfnina á Gunnbjörgu á Akureyri 21. maí og sögðu þeir mér, að það hefði tekið 16 mínútur að manna bátinn, frá því að kallið kom. Sannaði þetta enn einu sinni, hve mikilvægar og öflugar þessar ágætu sveitir eru.
Ávarpaði klukkan 14.00 5. landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Heimsótti síðan rannsóknahúsið við Háskólann á Akureyri og Lund, nýjan nemendagarð fyrir MA og VMA.
Fimmtudagur, 19. 05. 05.
Miðvikudagur, 18. 05. 05.
Sló fyrsta slátt við heimili mitt í Reykjavík.
Var með viðtöl fyrir hádegi, en klukkan 14.00 hitti ég forystumenn þeirra, sem unnið hafa að áhættumati vegna hugsanlegs eldgoss í vesturhluta Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökli.
Þriðjudagur, 17. 05. 05.
Laugardagur, 14. 05. 05.
Fór í heyskap fyrsta sinn á þessu vori, sló og hirti. Veðrið var einstaklega bjart og fallegt. Tugir manna virtust vera í golfi á vellinum á Hellishólum og var þetta í fyrsta sinn, sem ég sé svo marga þar.
Kom inn í sjónvarpsdagskrána undir lok beinnar útsendingar frá setningu listahátíðar og var þá forseti Íslands í viðtali við Kristján Kristjánsson og vildi forseti ekki fallast á þá skilgreiningu Kristjáns á hljómsveitinni Trabant, að hún væri fulltrúi lágmenningar, taldi foseti hana þvert á móti hirðhljómsveit Habsburgara auk þess sem á honum mátti skilja, að þarna í Hafnarhúsinu væri rjóminn af menningarelítu Evrópu ef ekki heimsins alls saman kominn - hvorki meira né minna.
Föstudagur, 13. 05. 05.
Fimmtudagur 12. 05. 05.
Miðvikudagur 11. 05. 05.
Þriðjudagur 10. 05. 05.
Flaug norður til Akureyrar og efndi þar til blaðamannafundar í lögreglustöðinni klukkan 14.30 með Haraldi Johannessen rikislögreglustjóra og Birni Jósepi Arnviðarsyni til að kynna breytingar á skipan sérsveitar lögreglunnar á Akureyri og fjölgun almennra lögreglumanna þar um fjóra.
Um kvöldið voru eldhúsdagsumræður á alþingi.
Laugardagur 07. 05. 05.
Miðvikudagur, 04. 05. 05.
Sat 12. fund Evrópunefndar í hádeginu.
Fór klukkan 13.30 á formannafund Landssambands lögreglumanna og ræddi þar um málefni efst á baugi, þar á meðal stækkun lögregluumdæma og næstu skref í því efni.
Þriðjudagur, 03. 05. 05.
Var klukkan 11.30 í flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli og ritaði undir samning með Jóni Kristjánssyni heilbrigðis- og tryggingaráðherra um samstarf gæslunnar og Landspítala Ísllands-háskólasjúkrahúss um lækna um borð í þyrlum gæslunnar.
Fór á borgarstjórnarfund klukkan 14.00 og tók þátt í umræðum um framtíð Vatnsmýrarinnar.
Mánudagur, 02. 05. 05.
Sunnudagur, 01. 05. 05.
Var klukkan tólf í Silfri Egils á Stöð 2.
Í fyrsta hluta ræddum við Steingrímur J. Sigfússon, Margrét Frímannsdóttir og Hjálmar Árnason um þinghaldið í vetur. Ég sagði hæst hafa borið tilraunir stjórnarandstöðu til að veikja trúverðugleika nýs forsætisráðherra, Halldórs Ásgrímssonar, og hefði stjórnarandstaðan ekki haft erindi sem erfiði.
Í öðrum hlutanum ræddi ég við Dag B. Eggertsson um skipulag í Vatnsmýrinni og áréttaði ég þar þá skoðun mína, að mér væri óskiljanlegt, hvers vegna Háskólinn í Reykjavík vildi dragast inn í deilur um þetta svæði og sagði, að auðvitað yrði að fara fram umhverfismat um framkvæmdina. Dagur var með barnaleg skot á mig í máli sínu og tel ég þau stafa af reynsluleysi hans í umræðum af þessum toga auk þess var sérkennilegt að hlusta á hann víkja sér undan spurningum Egils um það, hvað eiginlega hefði verið ákveðið varðandi Vantsmýrina.
Í þriðja hlutanum ræddi ég við þá Össur Skarphéðinsson og Ásgeir Friðgeirsson um væntanlegar þingkosningar í Bretlandi. Sagðist ég sama sinnis og The Economist, að Tony Blair ætti stuðning skilinn fyrir innrásina í Írak og álagningu skólagjalda í breskum háskólum.
Klukkan var um 13.00 þegar ég yfirgaf stólinn við hlið Egils Helgasonar.
Laugardagur, 30. 04. 05.
Fór og sá kvikmyndina Der Untergang, sem sýnd er á kvikmyndahátíð í Regnboganum. Myndin sýnir síðustu daga Hitlers á einstaklega raunsæjan hátt. Það var við hæfi að sjá þessa mynd þennan dag, þegar rétt 60 ár voru liðin frá dauða Hitlers fyrir eigin hendi.
Á sínum tíma, þegar ég starfaði hjá Almenna bókafélaginu vann ég að því að gefa út bókina Síðustu dagar Hitlers eftir Hugh Trevor-Roper í þýðingu Jóns R. Hjálmarssonar. Sagnfræðingurinn Trevor-Roper var fenginn af bresku ríkisstjórninni til að skrá skýrslu um örlög Hitlers strax að lokinni síðari heimsstyrjöldinni til að í eitt skipti fyrir öll væri tekinn af allur vafi um, að Hitler væri allur og til að koma í veg fyrir, að goðsagnir yrðu til um örlög hans og Evu Braun eða annarra, sem voru með einræðisherranum síðustu daga hans.
Kvikmyndin Der Untergang fjallar um þetta sama efni á trúverðugan hátt og lögð er áhersla á að ganga ekki lengra í frásögninni en unnt er að styðja með heimildum.
Þótti mér myndin mjög áhrifamikil ekki síður en bókin forðum daga.
Föstudagur, 29. 05. 04.
Fimmtudagur, 28. 04. 05.
Miðvikudagur, 27. 04. 05.
Þriðjudagur, 26. 04. 05.
Mándagur, 25. 04. 05.
Ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn glæpum lauk í ráðstefnumiðstöðinni í Bangkok klukkan 17.20 og hafði þá staðið í viku, sem er langur tími fyrir slíkar ráðstefnur.
Í lokin var samþykkt ályktun, Bangkok-yfirlýsingin, sem unnið var að fyrir ráðstefnuna og á meðan á henni stóð, raunar tókst ekki að ná samkomulag um orðalag fyrr en klukkan 05.00 að morgni mánudagsins 25. apríl. Þegar upphaflegi textinn, sem var lagður fram, og lokatextinn eru bornir saman, virðist í raun enginn efnislegur munur á textunum, en engu að síður gátu sérfróðir fulltrúar einstakra landa á ráðstefnunni setið jafnlengi yfir textanum og raun varð. Allra þeirra fjögurra atriða, sem ég nefndi í ræðu minni, er getið í yfirlýsingunni.
Að loknum fundum var ekki annað á dagskrá en pakka, fá sér kvöldverð og halda út á flugvöll klukkan 21.30 til að ná í vél SAS, sem hélt af stað til Kaupmannahafnar klukkan 00.20. Á leiðinni út á flugvöll mátti sjá, að á þeim tíma var hitinn 32 gráður.
Við lentum í Kaupmannahöfn klukkan 06.30 að morgni þirðjudagsins 26. apríl á dönskum tíma eftir rúmlega 10 tíma flug. Var hressandi að ganga inn ranann úr flugvélinni með 3 stiga hita utan dyra.
Þá hófst bið eftir heimferð með Icelandair klukkan 14.00. Ákvað ég að fá mér þráðlausa tengingu og sit nú í biðsalnum og skrái þetta.
Sunnudagur, 24. 04. 05.
Hitinn í Bangkok hefur verið mikill - milli 35 og 40 gráður alla dagana. Heppilegt er að vera nærri neðanjarðarbrautarstöð og þurfa því ekki að vera lengi utan dyra á leiðinni frá hóteli á fundarstað.
Fundahöld héldu áfram í allan dag á ráðstefnunni og í hádegishléi sátum við sérstakan kynningarfund hjá fyrirtæki, sem sérhæfir sig í upplýsingaöflun um alþjóðleg fjármálaviðskipti.
Um kvöldið var málsverður í boði dómsmálaráðherrahjóna Tælands. Var hann haldinn utan dyra í háskólagarði og þótt sólin væri sest var hiti mikill og ekki síður raki.
Laugardagur, 23. 04. 05.
Þennan dag flutti ég ræðu mína á ráðstefnunni. Sat hana meirihluta dagsins auk þess að sækja sérstakan fræðslufund um uppbyggilega réttvísi.
Um kvöldið bauð forsætisráðherra Tælands um 5000 manns til málsverðar og var hann haldinn í háskóla flotans í Bangkok.
Föstudagur, 22. 04. 05.
Fimmtudagur, 21. 04. 05.
Miðvikudagur, 20. 04. 05.
Tókum þátt í fundum ráðstefnunnar og áttum fund með framkvæmdastjóra hennar, sem taldi, að þetta væri í fyrsta sinn sem dómsmálaráherra frá Íslandi tæki þátt í ráðstefnu af þessu tagi, en nú eru 50 ár liðin frá því, að hún var fyrst haldin.
Síðdegis var ráðstefnugestum boðið í Grand Palace í Bangkok að skoða höllina miklu og búdda-líkneski, sem hefur mesta helgi í landinu.
Þriðjudagur, 19. 04. 05.
Fórum árla dags og heimsóttum kvennafangelsi, fangasjúkrahús og karlafangelsi í Bangkok. Þetta var einstaklega fróðleg ferð, þar sem við fengum tækifæri til að ræða við fangaverði og lækna og auk þess fanga, sem gátu talað ensku. Þarna var til dæmis Breti, sem hafði verið dæmdur í 25 ára fangavist fyrir heróín-smygl. Hann kaus frekar að eyða tíma sínum í þessu fangelsi en verða sendur í fangelsi í Bretlandi. Hann sýndi okkur hvernig fangar unnu myndlistarverk, þá lék hann einnig í hljómsveit, sem lék tælenska tónlist.
Fangar, sem dæmdir eru til lífstíðar, eru í fangeisi til lífstíðar, þess vegna er líknardeild á sjúkrahúsinu og heimsóttum við hana auk skurðdeildar og tannlæknadeildar.
Tæplega 5000 konur voru í kvennafangelsinu og var okkur sagt, að 26 svæfu saman á gólfinu í hverjum svefnsal, sem var um 40 fermetrar og við mikla ásókn í fangelsin væru allt að 50 í einum slíkum sal eða herbergi. Hundruð kvenna sátu aðgerðarlausar í skugga í hitanum, en ég sá einnig hóp kvenna stunda qi gong æfingar og var sagt, að þær væru einkum fyrir þær, sem væru komnar til ára sinna.
Um 80% fanga í Tælandi sitja inni vegna fíkniefnabrota.
Mánudagur 18. 04. 05.
Klukkan 10.30 hófst 11. ráðstefna Sameinuðu þjóðanna gegn glæpastarfi og um refsirétt í ráðstefnuhöllinni í Bangkok.
Klukkan 15.00 flutti krónpris Tælands, Maha Vajiralongkorn ræðu á hátíðar-setningarfundi ráðstefnunnar fyrir hönd konungs Tælands, en hann er Bhumibol Adulyadej. Með krónprinsinum var dóttir hans, Bajrakitiyabha prinsessa.