14.3.2018 11:17

Félagsleg deyfð í Eflingu og VR

Þetta eru kaldar staðreyndir um stöðu þeirra innan verkalýðshreyfingarinnar sem hæst láta og segjast ætla að „rugga bátnum“ með því að sprengja upp sátt á vinnumarkaði næsta haust og hreinsa til innan ASÍ.

Félagsmenn í stéttarfélaginu Eflingu kusu nýja forystu og voru úrslit kosninga kunn að kvöldi 6. mars. Þetta var fyrsta listakosningin í sögu Eflingar en sögu félagsins er lýst á þennan hátt á vefsíðu þess:

„Efling –stéttarfélag var stofnað í desember 1998 og tók til starfa um áramótin 1999. Félagið varð til við sameiningu Dagsbrúnar & Framsóknar-stéttarfélags við Starfsmannafélagið Sókn og Félag starfsfólks í veitingahúsum. Við sameininguna varð til næst stærsta stéttarfélag á landinu með um 14.000 félagsmenn. Félagið sameinaðist Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavík um áramótin 1999-2000.  Við það urðu félagsmenn um 16.000. Frá og með 1. janúar 2009 sameinaðist Verkalýðs- og sjómannafélagið Boðinn Eflingu-stéttarfélagið.  Þá voru félagsmenn í kringum 21.000 en fækkaði niður í um 18.500 í kjölfar efnahagshrunsins. Í dag eru félagsmenn um 27.000. Stærstu viðsemjendur félagsins eru Samtök atvinnulífsins, Reykjavíkurborg, Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu, Fjármálaráðuneytið og Launanefnd sveitarfélaga.“

Afgerandi sigur í fyrstu listakosningunni í Eflingu hlaut B-listi, nýtt framboð sem Sólveig Anna Jónsdóttir leiddi. Hlaut B-listinn 2099 atkvæði eða um 80% greiddra atkvæða. A-listi sem studdur var af fráfarandi stjórn hlaut 519 atkvæði. Af 16.578 félagsmönnum á kjörskrá nýttu einungis 2.618 atkvæðisrétt sinn. Á aðalfundi í Eflingu í lok apríl tekur ný stjórn við.

Sé talan á heimasíðu félagsins um  27.000 félagsmenn Eflingar rétt voru um 10.000 færri félagsmenn á kjörskrá og greiddu aðeins um 10% félagsmanna atkvæði í kosningunum og hefur sigurlisti Sólveigar Önnu stuðning um 8% félagsmanna. Þetta endurspeglar sorglega lítinn félagslegan áhuga.

Í dag (14. mars) birtist frétt í Morgunblaðinu um niðurstöðu í stjórnarkjöri í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur (VR) sem víða er talið einskonar forystuafl í byltingu innan Alþýðusambands Íslands eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn formaður félagsins í fyrra. Alls greiddu 3.345 atkvæði en á kjörskrá voru 34.980 félagsmenn. Kosningaþátttaka var því 9,56% eða álíka mikil og í listakosningunum í Eflingu. Ragnari Þór tókst ekki að „hreinsa út úr“ stjórninni fólk sem honum er ekki að skapi eins og t.d. Ingibjörgu Ósk Birgisdóttur, 2. varaforseta ASÍ. Hún telur ástæðu fyrir Ragnar Þór að velta fyrir sér hvort hann njóti stuðnings meirihluta stjórnar VR.

Þetta eru kaldar staðreyndir um stöðu þeirra innan verkalýðshreyfingarinnar sem hæst láta og segjast ætla að „rugga bátnum“ með því að sprengja upp sátt á vinnumarkaði næsta haust og hreinsa til innan ASÍ. Auðvitað kann lítil þúfa að velta þungu hlassi innan ASÍ en að halda því fram að Sólveig Anna eða Ragnar Þór njóti einhvers fjöldafylgis eða sigrar þeirra í kosningum boði eitthvert uppgjör innan þjóðfélagsins er einfaldlega blekking. Þeim tókst að virkja lítinn hóp innan stéttarfélaga sinna gegn ráðandi öflum. Valdataka þeirra er fyrst og síðast afleiðing félagslegrar deyfðar í VR og Eflingu, tveimur fjölmennustu stéttarfélögum landsins.

Tölurnar hjá Eflingu: 27.000 félagsmenn og 16.578 á kjörskrá kunna að skýrast af því að félagið semur fyrir 27.000 manns en 16.578 af þeim hafa skráð sig í félagið. Að 34.980 séu á kjörskrá hjá VR má líklega rekja til þess að þar á bæ skrá menn þá í félagið sem hefja störf hjá viðsemjendum VR. Hvernig þessi VR-aðferð samræmist rétti manna til félagafrelsis er athugunarefni.