2017 (Síða 10)

Föstudagurinn langi í Keldnakirkju - 14.4.2017 16:57

Í dag, föstudaginn langa, skruppum við í Keldnakirkju kl. 14.00 þar sem fluttir voru valdir Passíusálmar og kaflar píslarsagan auk þess sem sunginn var sálmurinn Ég kveiki á kertum mínum.

Lesa meira

Leiksoppur í átökum Gunnars Smára og Jóns Ásgeirs - 13.4.2017 18:50

Augljóst er að nafnlausi höfundur Markaðarins hefur getið sér rétt til um pólitísk áform Gunnars Smára. „Sök“ mín er að vitna til þessara orða þótt mig hafi grunað að Jón Ásgeir væri höfundur þeirra.

Lesa meira

Verndun þjóðargersema í Skálholti - 13.4.2017 12:03

Eins og fram kemur í samtalinu við Kristján Val er nú unnið að undirbúningi viðgerða á listaverkunum í Skálholtsdómkirkju: altaristöflunni miklu eftir Nínu Tryggvadóttur og gluggunum fögru eftir Gerði Helgadóttur. Er leitað til allrar þjóðarinnar um stuðning við þetta mikla verk sem kostar nokkur hundruð milljónir króna.

Lesa meira

Guð forði almannafé frá Gunnari Smára biður Markaðurinn - 12.4.2017 10:41

Er í raun óskiljanlegt, vilji álitsgjafar vera marktækir, að þeir setji ekki sérstakan fyrirvara á allt sem Gunnar Smári tekur sér fyrir hendur.

Lesa meira

Frjáls fjölmiðlun, „heiðursfólkið“ og Sósíalistaflokkurinn - 11.4.2017 17:07

Engu er líkara en menn átti sig ekki á að Gunnar Smári Egilsson kýs að draga athygli að stofnun nýs flokks, Sósíalistaflokksins, til að hætt sé að tala um viðskilnað hans við Fréttatímann og starfsfólkið þar.

 

Lesa meira

Öryggi og réttarvernd - 10.4.2017 20:22

Þegar hlustað er á sjónarmið Katrínar Theodórsdóttur lögmanns vaknar spurning um hvar séu mörkin milli hagsmuna hennar sem lögmanns sem missti spón úr aski sínum með nýju útlendingalögunum og réttarverndar hælisleitenda.

Lesa meira

Ísland var aldrei dönsk nýlenda - 10.4.2017 13:38

Nefnd undir formennsku Einars K. Guðfinnssonar, fyrrv. forseta alþingis, undirbýr afmælisviðburði vegna 100 ára afmælis fullveldis árið 2018. Gott er að minnast þess í öllum undirbúningnum að Ísland var aldrei dönsk nýlenda.

Lesa meira

Bolli af cappuccino dýrastur á Íslandi - 9.4.2017 13:47

Frakkarnir sem voru samferða okkur í flugvélinni þurfa að greiða tvöfalt hærra verð fyrir kaffibollann hér á landi en í Frakklandi. Enginn þarf að segja mér að það sé íslensku krónunni að kenna en hún er jafnan blóraböggullinn þegar fundið er að háu verðlagi hér. Stafar háa verðið ekki mest af eftirspurninni og skorti á samkeppni?

Lesa meira

Vorferð til Parísar - víða íslenskir listamenn - 8.4.2017 10:24

Undanfarna hef ég verið í París og skoðað ýmislegt sem borgin hefur að bjóða með vorkomunni.  Víða varð ég var framlag Íslendinga til lista á ferð minni

Lesa meira

Trump gerir árás á flugher Assads - 7.4.2017 10:36

Hik og vanmáttur Obama í átökunum við Assad varð til þess að veikja trú margra bandamanna Bandaríkjamanna á að þeim mætti treysta á ögurstund.

 

Lesa meira

Að losna út höftum er öllum til góðs - 6.4.2017 9:27

Höfundar The Icelandic Financial Crisis ræða ítarlega um viðbrögðin eftir að kerfið hrundi. Að bregðast rétt við á hættustund skiptir mestu, fáum er gefið að vita hvenær hörmungar eða slys ber að höndum þótt öllum varúðarreglum sé fylgt. Þegar rætt er um hvernig brugðist var við haustið 2008 er augljóst að innleiðing haftanna var meðal lykilatriða réttra ákvarðana.

Lesa meira

Bók um hrunið og endurreisnina til umræðu á ÍNN - 5.4.2017 15:52

Íslenska þjóðarbúið stóð því frammi fyrir vanda sem var að mati bókarhöfunda af sömu stærðargráðu og stríðsskuldir Þjóðverja árið 1920. Að lokum skipti sköpum fyrir Íslendinga að íslenska ríkið þurfti ekki að borga þetta allt þrátt fyrir verulegan alþjóðlegan þrýsting í þá veru. Lesa meira

Ár frá afsögn Sigmundar Davíðs - 5.4.2017 11:06

Allt það sem gerst hefur í stjórnmálunum á þessu eina ári sýnir að réttmætt var að efna til kosninga haustið 2016.

Lesa meira

Borgarfulltrúi Pírata veðjar á að Ólafur Ólafsson breytist - 4.4.2017 10:53

Hvar hefur birst fjárhagslegt mat á þessu mikla dæmi? Ólafur Ólafsson greiðir innan við eina milljón fyrir hverja íbúð sem Reykjavíkurborg gerir honum kleift að reisa. Hvar annars staðar á höfuðborgarsvæðinu er lóðarverð svona lágt?

 

Lesa meira

Skrifað um þjóðfélagsmál með skáldaleyfi - 3.4.2017 9:01

Spuni um það sem menn héldu að hefði kannski gerst dugar ekki til að ályktað sé um rannsóknarnefnd alþingis. Spuni um stjórnmálasöguna breytir henni ekki. Samfylkingin skrifuð út úr sögunni. Lesa meira

Ótímabærar ráðherrayfirlýsingar um krónuna - 2.4.2017 8:59

Þegar boðað var afnám hafta sunnudaginn 12. mars sendi forsætisráðuneytið frá sér tilkynningu þar sem minnt var á að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segði að unnið yrði að því að draga úr þeim miklu sveiflum sem verið hefðu á gengi krónunnar.

Lesa meira

Farið um Luxemborgar-garðinn 1. apríl - 1.4.2017 16:59

Þegar ég heimsæki París legg ég gjarnan leið mína um Luxemborgar-garðinn og nágrenni hans. Það var fallegt þar laugardaginn 1. apríl 2017. Lesa meira

Virðisaukaskattur á ferðamenn - 1.4.2017 9:41

Fyrir ferðamanninn skiptir mestu að lokum að hann fái þá þjónustu sem hann vænti fyrir það fé sem hann greiðir. Ákvörðunin er í hans höndum og hann vill geta treyst því að hátt verð skili góðri þjónustu. Kröfurnar til ferðaþjónustufyrirtækja aukast.

Lesa meira

Valdið til rannsókna er hjá þingmönnum - 31.3.2017 9:55

Alþingi samþykkti árið 2011 lög um rannsóknarnefndir alþingis. Ein slík nefnd skilaði áliti miðvikudaginn 29. mars og afhjúpaði blekkingarleik Ólafs Ólafssonar vegna kaupa á Búnaðarbankanum. Ályktun alþingis þarf til að hrinda slíkri rannsókn af stað.

Lesa meira

Bjorn.is fær nýtt útlit - 30.3.2017 11:31

Í samvinnu við starfsmenn Hugsmiðjunnar hef ég undanfarið unnið að uppfærslu vefsíðu minnar bjorn.is sem verið hefur í loftinu í 22 ár. Hér birtist nýja útlitið auk þess sem efnistök breytast.

Lesa meira

Staðfastur ásetningur til blekkinga - 29.3.2017 16:29

Að alhæfa út frá blekkingunum við söluna á Búnaðarbankanum á þann veg að allir fjárfestar starfi eins og Ólafur Ólafsson og samverkamenn hans stenst ekki gagnrýni.

Lesa meira

Kreppan í húsnæðismálum - 28.3.2017 17:56

Eru ráð þeirra sem hafa þekkingu og reynslu í húsnæðismálum vísvitandi að engu höfð? Eða hlusta þeir sem ráða ferðinni aðeins á eigin sérvisku?

Lesa meira

Trump afvegaleiðir álitsgjafa - 27.3.2017 14:29

Spuni Bandaríkjaforseta hefur áhrif á suma álitsgjafa eins og sannaðist í forystugrein Fréttablaðsins mánudaginn 27. mars sem skrifuð er af Magnúsi Guðmundssyni.

Lesa meira

NATO og flotaumsvif Rússa á norðurslóðum - 26.3.2017 10:36

Hvort sem okkur Íslendingum líkar betur eða verr verðum við að taka afstöðu og við höfum gert það með aðildinni að NATO.

Lesa meira

Mikilvægi EES-samningsins - afmæli ESB - 25.3.2017 17:47

Talsmenn ESB-aðildar gerðu lítið úr gildi EES-samningsins. Meðal þeirra var Jón Steindór Valdimarsson, núv. þingmaður Viðreisnar. Hann hefur skipt um skoðun á gildi EES eins og hann sagði í ræðu á alþingi miðvikudaginn 22. mars.

Lesa meira

Þjóðarbúskapurinn - stóra myndin gleymist - 24.3.2017 10:56

Það er mun bjartara yfir stóru myndinni af þjóðarbúinu sem birtist í samtali okkar Ásdísar Kristjánsdóttur á ÍNN 22, mars en ætla má af daglegum umræðum. Þær mótast mest af kröfugerð á hendur stjórnmálamönnum og opinberum aðilum auk tortryggni, einkum í garð bankakerfisins og ákveðins hóps fé- og kaupsýslumanna.

Lesa meira

Almannatenglar og viðskiptafréttir - 23.3.2017 13:47

Telja má á hendi annarrar handar íslenska blaðamenn sem hafa burði til að segja viðskiptafréttir á þann veg að aðrir skilji. Þekking á því sviði er til dæmis engin innan ríkisútvarpsins þar sem aldrei eru fluttar viðskiptafréttir en stundum raktir einhverjir þræðir, einkum ýti þeir undir tortryggni í garð fé- og kaupsýslumanna. Jarðvegur fyrir slíkar fréttir er meiri og betri en nokkru sinni eftir hrun.

Lesa meira

Þjóðarbúskapur - ólík viðhorf til leiksýninga - 22.3.2017 15:53

Í dag ræddi ég við Ásdísi Kristjánsdóttur, forstöðumann efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, í þætti mínum á ÍNN. Við förum yfir stöðu þjóðarbúsins sem er sterkari núna en nokkru sinni fyrr. - Það eru ólík viðhorf þeirra sem hafa séð Ellý í Borgarleikhúsinu eða Endastöð - upphaf í Tjarnarbíói.

Lesa meira

Stofnfundur fjölmiðlafélags án ljósmyndara - 21.3.2017 15:47

Á stofnfundi Frjálsrar fjölmiðlunar og aðdraganda hans skráðu um 800 manns sig sem stofnfélaga og fyrir um 10,5 milljón króna framlagi á þessu ári til styrktar frjálsri og óháðri fjölmiðlun,“ sagði á vefsíðu Fréttatímans fimmtudaginn 16. mars og var með „stofnfundinum“ vísað til samkomu sem átti að halda í Háskólabíói laugardaginn 11. mars. Engin mynd er birt af samkomunni heldur af hljómsveit á palli. „Þetta er framar vonum enda eru aðeins fáeinar vikur síðan við kynntum þetta verkefni,“ sagði Gunnar Smári Egilsson, útgefandi Fréttatímans.

Lesa meira

Mánudagur - 20.3.2017 15:43

Meginfréttin í dag er að Kaupþing seldi að kvöldi sunnudags 19. mars tæplega 30% hlut í Arion banka á 48,8 milljarða króna. Kaupendur eru fjárfestingarsjóðirnir Attestor Capital með 9,99% hlut, Taconic Capital Advisors UK með 9,99% hlut, félag tengt bandaríska fjárfestingarsjóðnum Och-Ziff Capital Management Group með 6,6% hlut og bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs með 2,6% hlut.

Lesa meira
Síða 10 af 13