Valmynd
7.9.2016 14:30
Í dag ræddi ég við Pál Magnússon, frambjóðanda í prófkjöri sjálfstæðismanna í suðurkjördæmi, í þætti mínum á ÍNN. Frumsýning kl. 20.00 í kvöld.
Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, sagði á alþingi þriðjudaginn 6. september að sér væri brugðið „við fréttaflutningi af því gerræði og því virðingarleysi fyrir réttum leikreglum lýðræðisins sem hefur birst í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi“. Valinn listi hefði verið felldur í staðfestingarkosningu því að oddviti listans hefði fengið 20–30 manns til að ganga í flokkinn til að kjósa sig.
Árni Páll sagði talsmann pírata í málinu bíta „höfuðið af skömminni“ þegar hann segði orðrétt: „… samkvæmt þeim tölfræðigögnum sem voru birt um kosninguna, þá kusu 18 af þessum eingöngu hann [sigurvegarann] og engan annan í prófkjörinu …“ Þá sagði Árni Páll:
„Virðulegi forseti. Hér eru hrikaleg ummæli viðhöfð. Annaðhvort hafa píratar brotið gegn grundvallarreglum lýðræðisins um frjálsar kosningar og gegn skýrum ákvæðum laga um persónuvernd með því að hafa atkvæði fólks rekjanleg eða þá að talsmaður flokksins er að bera út róg um einstaka þátttakendur í lýðræðislegri kosningu. Hvor skýringin sem er ætti að duga til að dæma þessa stjórnmálahreyfingu úr leik.“
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður pírata, svaraði og sagði:
„Við í Pírötum höfum ávallt haldið því til haga að rafrænar kosningar geta aldrei eðlis síns vegna verið leynilegar.“
Píratar væru hins vegar „lýðræðisafl“ sem reyndi að „gera hlutina öðru vísi“ og þess vegna reyndu þeir að „þróa kosningakerfi“. Þá sagði þingmaðurinn: „Lýðræði okkar kann að vera öðruvísi. [...] Megum við ekki stundum reyna að vera með aðeins aðra nálgun á það hvernig við stundum lýðræði? [...] Rafrænar kosningar geta aldrei verið fullkomlega leynilegar.“
Hún sagði að kosningagögnin sem voru greind hefðu áður verið „afpersónutengd“. Ekki væri hægt að greina bak við kennitöluna hver hefði kosið hvern. Framkoma Árna Páls hefði verið „einstaklega lágkúruleg“ og „hann hefði getað bara spurt okkur eða reynt að koma þessu aðeins skikkanlegar frá sér“.
Í svari sínu hafði Ásta Guðrún fyrirvara um rekjanleika atkvæða í rafrænu prófkjöri. Lýðræði pírata mætti þó vera öðru vísi og Árni Páll yrði að tala öðru vísi um það – þó helst ekki neitt.
Stjórnmálaflokkur sem getur ekki haldið prófkjör án þess að klúðra öllum lýðræðislegum grundvallarþáttum dæmir sig úr leik.