2005 (Síða 5)
Mánudagur, 29. 08. 05.
Sjálfstæðisflokkurinn fær 53,5% og 9 borgarfulltrúa í Reykjavík í skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag, þegar spurt er um afstöðu vegna komandi borgarstjórnarkosnininga. Samfylkingin fær 29,7% og 5, vinstri/grænir 8,8% og 1 borgarfulltrúa, Framsóknarflokkurinn fær 4,8% og engan og frjálslyndir 2,2% og engan.
Þetta er ánægjuleg vísbending um hug borgarbúa um þessar mundir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri og samfylkingarkona sagði þetta fína niðurstöðu fyrir Samfylkinguna! Umræðurnar hefðu verið um Sjálfstæðisflokkinn og framboð hans. Skyldi hún ekki hafa tekið eftir umræðunum um upplausn R-listans? Alfreð Þorsteinsson framsóknarmaður sagðist oft hafa séð það svartara en þetta - hvenær í pólitík? Ólafur F. Magnússon sagðist ætla að haga seglum eftir vindi og starfa annað hvort til hægri eða vinstri - dæmigerður tækifærissinni, þótt hann hrósi sér jafnan af stefnufestu, þegar hann talar í borgarstjórn.
Ég var að hlusta á frétt á Stöð 2 þar sem rætt var um 7. gr. relugerðar, sem ekki hefur tekið gildi, og fjallar um útfarir, bálfarir og fleira. Ég var undrandi á fréttinni og að fréttamaðurinn vissi ekki, að verið er að huga að breytingu á þessari grein, en reglugerðin var send um 700 aðilum til umsagnar fyrir undirritun hennar og útgáfu. Enginn gerði þó athugasemd við þetta ákvæði hennar fyrr en eftir útgáfu reglugerðarinnar.
Sunnudagur, 28. 08. 05.
Var austur á Þingvöllum klukkan 10.00 og flutti ávarp yfir norrænum séfræðingum um heimsminjalista UNESCO í fræðslumiðstöðinni á Hakinu. Gekk síðan með þeim að Valhöll en á leiðinni talaði Skúli Skúlason rektor um náttúru Þingvalla og Þingvallavatns, Guðmundur Hálfdanarson prófessor um sögu og þjóðernislegt gildi Þingvalla og Adólf Friðriksson fornleifafræðingur um fornleifarannsóknir.
Það var norðangjóla og frekar kalt og við Rut fundum engin ber, þegar við leituðum þeirra í nágrenni Valhallar.
Í Morgunblaðinu í dag andmælir Bjarni Harðarson, ritstjóri á Suðurlandi, fyrirvaralausum brottrekstri fréttamanns hljóðvarps ríkisins á Suðurlandi fyrir gálaus og vanhugsuð ummæli hans um Baugsmenn á vefsíðu sinni. Þau hafa nú verið þurrkuð af síðunni, en hinir siðavöndu blaðamenn DV hafa birt þau á prenti. Bjarni veltir fyrir sér, hvort brottreksturinn sé til marks um nýjar reglur í þessu efni hjá RÚV, ef litið er til orða, sem fréttamenn létu til dæmis falla í harði fréttastjóradeilu fyrr á árinu. Honum finnst einnig skrýtið, að fréttamaðurinn skuli ekki hafa fengið tækifæri til andmæla og bera hönd fyrir höfuð sér, áður en hann var rekinn. Ég sagði frá gálausum skrifum á vefsíður í pistli hér á síðunni 6. mars 2004, meðal annars hjá þáttargerðarmanni hljóðvarpsins. Ég minnist þess ekki, að sú færsla hans hafi dregið dilk á eftir sér.
Fór klukkan 17.00 á lokatónleika kirkjulistahátíðar Hallgrímskirkju og hlustaði á Matteusarpassíu eftir Trond Kverno, sem dómkórinn í Ósló og einsögvarar fluttu en Terje Kvam stjórnaði.
Föstudagur, 26. 08. 05.
Fimmtudagur, 25. 08. 05.
Í samráði við mig hefur Margeir St. Ingólfsson hjá Hugsmiðjunni breytt útliti vefsíðunnar og hleypt henni á vefinn í nýjum búningi í dag. Með breytingunni verður dagbókin meira áberandi en áður og kann ég að fara að nota hana til að segja frá fleiru en því, sem á daga mína drífur.
*
Flaug klukkan 07.45 til Ísafjarðar, þar sem þingflokkur sjálfstæðismanna hittist.
Fórum til Bolgunarvíkur og snæddum morgunverð með bæjarfulltrúum sjálfstæðismanna.
Heimsóttum sjúkrahúsið á Ísafirði, fyrirtækið 3Xstál, þróunarsetrið og háskólasetrið.
Snæddum hádegisverð með bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði.
Funduðum á hótelinu og var rætt um fjárlagafrumvarp komandi árs eins og venja er á sumarfundum þingflokksins. Til að unnt sé að leggja frumvarpið fram í upphafi þings, þurfa þingflokkar ríkisstjórnarinnar að veita henni grænt ljós til þess um þetta leyti árs.
Ég hélt heim með vél klukkan 18. 20.
Miðvikudagur, 24. 08. 05.
Mánudagur, 22. 08. 05.
Var klukkan 09.45 á Bessastöðum, þar sem tekið var á móti Vaclav Klaus, forseta Tékklands, og konu hans. Í stuttu samtali okkar gladdist hann yfir því, að ég rifjaði upp, að daginn áður, 21. ágúst voru 37 ár liðin, frá því að sovéski herinn var sendur inn í Tékkóslóvakíu til að kæfa vorið í Prag, eins og frelsisbylgjan um landið var nefnd. Hann sagðist einmitt hafa tekið þátt í minningarathöfn um þennan atburð, áður en hann hélt til Íslands.
Síðdegis hlustaði ég á erindi sem þeir fluttu á Mont Pelerin ráðstefnunni í hótel Nordica: Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Bent Jensen, prófessor frá Kaupmannahöfn, og Vaclav Klaus um það, hvernig menntamenn létu glepjast af kommúnismanum og hvers vegna auk þess sem Klaus varaði við því, hvernig fólk með sama hugsunarhátt er að nota ýmiss konar málefni og samtök til að koma ár sinni fyrir borð og takmarka frelsi annarra.
Sunnudagur, 21. 08. 05.
Laugardagur, 20. 08. 05.
Föstudagur, 19. 08. 05.
Miðvikudagur, 17. 08. 05.
Viðtöl fyrir hádegi eins og venjulega á miðvikudögum.
Flutti um kvöldið stutta ræðu yfir norrænum lögfræðingum um lög og lýðræði.
Föstudagur, 12. 08. 05.
Klukkan 09.00 hitti ég Hans Jesper Helsö, yfirmann danska heraflans, og Haakon Syrén, yfirmann sænska heraflans, og aðstoðarmenn þeirra. Þeir heimsóttu mig í ráðuneytið, þegar þeir áttu hér stutta viðdvöl á leið sinni til Danmerkur frá Grænlandi.
Klukkan 10.00 var ríkisstjórnarfundur og þar var ákveðið að við Árni Magnússon félagsmálaráðherra skyldum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar leiða starf við endurskoðun á stjórnarráðslögum og stjórnsýsluskipan ráðuneyta.
Fimmtudagur, 11. 08. 05.
Hélt klukkan 08.00 fljúgandi ásamt embættismönnum úr dóms- og kikrjumálaráðuneytinu austur á Egilsstaði. Þar tókum við bíl á leigu og ókum að Kárahnjúkum, þar sem við hittum sýslumann og yfirlögregluþjón og síðan stjórnendur Impregilio og Landsvirkjunar á svæðinu. Ræddum við á um öryggismál og dvalarleyfi útlendinga og skoðuðum síðan stíflugerðina. Mannvirkin eru einstök og með ólíkindum að sjá umsvifin á svæðinu og fá lýsingu á þeim.
Ókum síðan til þeirra, sem vinna að því að koma túrbínunum fyrir inni í fjallinu skammt frá Valþjófsstað. Ókum um einn km inn í fjallið og sáum gímaldið fyrir sex túrbínur, sem eiga að verða í stöðvarhúsinu, en það er um 40 metra hátt eða eins og 10 hæða blokk. Við sáum ekki rúmlega 400 metra fallgöngin, sem starfsmenn Slippstöðvarinnar á Akureyri eru að klæða með stálhólki. Þetta hlýtur að vera ótrúlega erfitt og vandasamt verk, en eitthvað hefur það tafist vegna skorts á mannafla, en Slippstöðin er á höttunum eftir málmiðnaðarmönnum í Póllandi og Þýskalandi.
Ókum niður á Reyðarfjörð og hittum þar sýslumann og lögreglumenn. Eftir fund með þeim héldum við á svæðið, þar sem starfsmenn Bechtel eru að reisa álverið fyrir Alcoa. Ræddum við yfirmenn framkvæmdanna um öryggismál og dvalarleyfi. Bechtel leggur áherslu á að ráða Pólverja til starfa hjá sér, ef engir Íslendingar eru tiltækir. Impregilio á Kárahnjúkum er með rúmlega 400 Kínverja, Pakistani, Portúgali og fleiri þjóða menn eða alls frá meira en 40 löndum. Byggingarframkvæmdirnar við álverið eru á áætlun og eru einnig svo stórar í sniðum, að maður á erfitt að skynja eða skilja umfangið.
Á leiðinni á flugvöllinn litum við inn á lögreglustöðina á Egilsstöðum og ræddum við lögreglumenn á vakt.
Mér er óskiljanlegt, hvers vegna Egill Helgason og ýmsir aðrir, sem hafa að atvinnu að segja álit sitt á atburðum líðandi stundar, skuli mikla fyrir sér, að lögregla fylgist með þeim, sem hafa að markmiði að trufla framkvæmdir við Kárahnjúka og á Reyðarfirði. Sem betur fer eiga slík viðhorf ekki hljómgrunn meðal almennings.
Það er verkefni lögreglunnar að halda uppi lögum og reglu og bregðast við í samræmi við atvik hverju sinni. Ef hún fylgist ekki með þeim, sem kjósa skemmdarverk í stað umræðna, gera þeir sér lítið fyrir í skjóli myrkurs og mála slagorð sín á Alþingishúsið eða stöpulinn á styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Miðvikudagur, 10. 08. 05.
Þriðjudagur, 09. 08. 05.
Föstudagur, 05. 08. 05.
Fimmtudagur, 04. 08. 05.
Sunnudagur, 31. 07. 05.
Laugardagur, 30. 07. 05.
Fimmtudagur, 28. 07. 05.
Miðvikudagur, 27. 07. 05.
Mánudagur, 25. 07. 05.
Laugardagur, 23. 07. 05.
Fimmtudagur, 21. 07. 05.
Þriðjudagur, 19. 07. 05.
Fór upp að Bifröst síðdegis og flutti erindi um stjórnun og stjórnsýslu fyrir nemendur í meistaranámi í háskólanum þar.
Var rétt um klukkan 20.00 í Kastljósi með Gunnari Helga Kristinssyni prófessor og Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra og ræddum við hryðjuverk og hryðjuverkamenn.
Laugardagur, 16. 07. 05.
Föstudagur 15. 07. 05.
Fimmtudagur, 14. 07. 05.
Var með kynningu á Þingvöllum klukkan 20. 00 og sagði þar frá störfum og stefnu Þingvallanefndar, þegar gengið var í blíðskaparveðri frá Hakinu að Þingvallakirkju, þar sem séra Kristján Valur Ingólfsson lauk ferðinni með kvöldbænum.
Þetta kvöld var frétt um það í hljóðvarpi ríkisins, að sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefði lýst óánægju sinni með bréf Þingvallanefndar vegna óska um umhverfismat á gamla Gjábakkaveginum, en í bréfi fyrir hönd nefndarinnar til umhverfisráðuneytisins frá 15. júní hafði ég ítrekað upphaflegt sjónarmið hennar til stæðis fyrir Gjábakkaveg, það er að æskilegast væri að viðhalda gamla veginum frá 1907. Vegagerðin taldi þann veg ekki geta svarað kröfum tímans og vildi nýtt stæði og náðist samkomulag um stæði utan þjóðgarðsins. Þessi ákvörðun var kærð og krafist umhverfismats á gamla veginum, sem umhverfisráðuneytið samþykkti í mikilli óþökk sveitarstjórnar, en hún vill greinilega skella skuldinni að einhverju leyti á Þingvallanefnd og er ég sammála Guðna Ágústssyni meðnefndarmanni mínum, að þessi skilningur sveitarstjórnar á bréfi Þingvallanefndar er óheppilegur, enda byggist afstaða sveitarstjónarinnar til Þingvallanefndar í þessu samhengi á misskilningi.
Miðvikudagur, 13. 07. 05.
Þriðjudagur, 12. 07. 05.
Frétta- og þáttarstjórnendur frá Talstöðinni og Speglinum í hljóðvarpi ríkisins tóku við mig viðtöl um hryðjuverkaárásina á London.
Ég áréttaði þá skoðun mína, að árásin ætti ekki upptök sín í Írak heldur væri hún hugarfóstur einstaklinga, sem hefðu verið heilaþvegnir og snerust gegn eigin samfélagi.