Beint í leiðarkerfi vefsins.
Klukkan 10.42 var hringt til mín og mér tilkynnt sem hluta af æfingunni Bergrisinn, að eldsumbort væru að hefjast í Kötlu og gerðar hefðu verið ráðstafanir til að virkja samhæfingarmiðstöð almannavarna og kalla saman fund vísindamanna til að leggja mat á stöðuna. Um hálftíma síðar var mér tilkynnt, að rýming fólks á svæðinu væri að hefjast.
Í færslu hér á síðuna í gær vitnaði ég í Ólaf Teit Guðnason, þar sem hann fjallaði meðal annars um blaðamennsku DV. Dæmi um það, hvernig DV tekur á málum, sem snerta mig má sjá í svonefndri fréttakýringu í blaðinu í dag eftir Jakob Bjarnar Grétarsson en þar ræðir hann skipun dómara í hæstarétt og gefur þessa skýringu á því, að ég skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson dómara þar:
„Heimildir DV herma að það skipti máli þegar Björn skipaði óvænt Ragnheiði Torfadóttur rektor við MR, 7. apríl 1995. Meðal umsækjanda þá var Ólafur Oddsson menntaskólakennari. Svo sjálfsagt mun Davíð hafa þótt að Ólafur fengi stöðuna að hann hafði ekki fyrir því að árétta það við Björn. Svo mjög varð Davíð við, samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV, að hann horfði í gegnum Björn næsta árið, yrti hvorki á hann né svaraði símhringingum hans. Þessi meðferð varð svo til þess að Björn hikaði hvergi, þótt það væri gegn öllu öðru, að skipa Ólaf Börk.“
Allt í þessari tilvitnuðu klausu er rangt annað en það, að Ólafur Oddsson, gamall félagi minn úr Háskóla Íslands og hálfbróðir Davíðs, sótti um að verða rektor MR ásamt Ragnheiði Torfadóttur og ég skipaði Ragnheiði. Dagsetningin er röng - ég varð ekki ráðherra fyrr en 23. apríl 1995 og lýsing Jakobs á samskiptum okkar Davíðs er uppspuni frá upphafi til enda. Ég veit ekki hverjir það eru, sem gera Jakob að ósannindamanni, því að ekki lætur hann heimildamanna sinna getið. Jakob hafði ekki frekar nú en áður, þegar hann skrifar eitthvað til að gera lítið úr hlut mínum, samband við mig til að hafa það sem sannara reynist. Miðað við fyrri vinnubrögð Jakobs kæmi mér ekki á óvart, að hann hefði samið það, sem Ólafur Teitur taldi einsdæmi í fjölmiðlarýni sinni og ég nefndi hér í gær.
Í ríkisstjórn lagði ég fram til kynningar, hvernig ég ætlaði að standa að því að komast að niðurstöðu um nýjan þyrlukost fyrir landhelgisgæsluna í bráð og lengd.
Síðdegis komu nemendur frá Viðskiptaháskólanum Bifröst á minn fund til að ræða við mig stöðuna í varnarmálum og ræddum við saman í tæpan klukkutíma. Mér finnst nauðsynlegt að árétta í slíkum viðræðum, að ekki sé við því að búast, að íslensk stjórnvöld dragi úr skúffum sínum hernaðarlegt eða herfræðilegt mat á varnarþörf lands og þjóðar. Þau hafi einfaldlega ekki haft slíkt mat á könnu sinni, Íslendingar hreyki sér einmitt af því, að hafa ekki eigin her - hvers vegna eigi þá að búast við því, að stjórnvöld þeirra séu að velta fyrir sér hlutverki hers? Stjórnvöld eigi hins vegar að sjá um löggæslu og um hana séu skýrar áætlanir.
Ég þakka Ólafi Teiti Guðnasyni á Viðskiptablaðinu þrautseigju hans við að benda á léleg vinnubrögð á íslenskum fjölmiðlum eða ómaklega meðferð þeirra á mönnum og málefnum. Hann hefur oftar en einu sinni tekið upp hanskann fyrir mig og gerir það enn á þennan hátt í blaðinu í dag:
„Í síðasta pistli var bent á að NFS hefði ranglega fullyrt í liðinni viku, að Björn Bjarnason hefði brotið jafnréttislög við skipan hæstaréttardómara haustið 2003. Enginn dómur liggur fyrir um það heldur aðeins álit kærunefndar jafnréttismála - þeirrar sömu og áleit að Valgerður H. Bjarnadóttir hefði brotið jafnréttislög við ráðningu leikhússtjóra á sínum tíma.
En NFS er ekki af baki dottin. Nei, stöðin fullyrti þetta aftur í aðalfréttatíma sínum í fyrradag, eins og ekkert væri sjálfsagðara. - Sagt er að sannleikurinn geri menn frjálsa, en ætli í þessu máli sé ekki óhætt að spá því að lygin geri þá brátt hása.
***
DV segir kosti og galla á fólki í föstum dálki í blaðinu, eða fær nánar tiltekið til þess þrjá einstaklinga sem þekkja vel til viðkomandi. Efst í dálkinum dregur blaðið síðan saman fáeina kosti og galla sem fólk nefnir í viðtölunum sem birt eru fyrir neðan. Téður Björn var nýlega tekinn fyrir með þessum hætti í blaðinu - en þá tók blaðið upp á því. sem er algjör nýbreytni, að búa sjálft til ýmsa galla á honum í samantektinni efst. Enginn viðmælandi hafði nefnt neitt af því sem þar var búið til.“
september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar
desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars, febrúar, janúar

desember, nóvember, október, september, ágúst, júlí, júní, maí, apríl, mars