Við suðumark á alþingi
Þetta léttvæga atvik kann að reynast litla þúfan sem veltir þunga hlassinu því að allt bendir til að hitinn meðal stjórnarsinna sé að ná suðumarki vegna óstjórnarinnar á þingstörfum.
Ríkisstjórnin ákveður dagskrá alþingis með stuðningi þingforseta og í dag, laugardaginn 14. júní, er breytingin á EES-lögunum, sem ranglega er kennd við bókun 35 við EES-samninginn, á dagskránni. Miðflokksmenn raða sér áfram á mælendaskrána.
Af fréttum má ráða að í skjóli þessara umræðna ætli Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar þingsins, að böðla frumvörpum út úr nefndinni þótt þau hafi ekki verið rædd til hlítar, hvorki tvöföldun auðlindaskattsins né strandveiðarnar. Sigurjón hefur beinna persónulegra hagsmuna að gæta vegna þessara mála.
Sigurjón sagði á Útvarpi Sögu að þing gæti komið saman í ágúst til að ræða óafgreidd mál. Þórunn Sveinbjarnardóttir þingforseti aftók það. Var það í fyrsta sinn á sex mánuðum sem einhver úr Samfylkingunni sagði styggðaryrði um þingmann Flokks fólksins. Spurning vaknar hvort Sigurjón krefjist bannfæringar á þingforsetanum fyrir að ganga gegn vilja sínum.
Þetta léttvæga atvik kann að reynast litla þúfan sem veltir þunga hlassinu því að allt bendir til að hitinn meðal stjórnarsinna sé að ná suðumarki vegna óstjórnarinnar á þingstörfum. Augljóst er að Kristrún Frostadóttir lítur ekki á það sem sitt hlutverk að skerast beint í leikinn, ríkisstjórnin sé einhuga um þingmálaskrána og það sé alþingis að tæma hana.
Alþingishúsið (mynd: alþingi).
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, skrifaði umvöndunarpistil á Facebook föstudaginn 13. júní og talaði þar sem þingmaðurinn með lengsta setu á alþingi. Umvöndunin missir marks því að hún lætur eins og það sé stjórnarandstöðunni að kenna að engin önnur mál komist að á alþingi en það sem hún flytur sjálf um breytingu á EES-lögunum. Þetta tefji fyrir raunverulegum þjóðþrifamálum. Það er í hendi Þorgerðar Katrínar að óska eftir að málið verði ekki áfram á dagskrá þingsins. Hún hlýtur að telja sér til pólitísks framdráttar að þingstörfum sé háttað á þennan hátt.
Vilji stjórnarflokkarnir halda þannig á störfum alþingis fyrir sumarhlé að deilt sé um allt, stórt og smátt, hafa þeir það í hendi sér. Þeir verða þá einnig að horfast í augu við afleiðingarnar. Væl undan málþófi með undirleik fyrrverandi stjórnmálaprófessors í fréttatíma sjónvarps breytir ekki pólitískum lögmálum á alþingi.
Í Miðflokknum væla menn undan því að sjálfstæðismenn taki ekki þátt í málþófinu með þeim. Arnar Þór Jónsson, forsetaframbjóðandi og fyrrv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, heyktist á því um árið að leggja til í flokksráði að sjálfstæðismenn féllu frá málinu sem kennt er við bókun 35. Sagðist hann ekki hafa náð augnsambandi við fundarstjóra! Hvergi er vikið að gagnrýni á þetta mál í ályktunum landsfundar sjálfstæðismanna frá byrjun mars á þessu ári.
Það er kjækur hjá þeim sem eiga undir högg að sækja í pólitíkinni að skeyta skapi sínu á Sjálfstæðisflokknum í stað þess að afla málstað sínum fylgis með stefnufestu og málefnalegum rökum. Forystumenn sjálfstæðismanna ættu að leggja harðar að sér við að reka lygina ofan í ósannindamennina.